Ferðamenn á vegum Íslands stórhættulegir.

Ég var að horfa á myndband á Facebook þar sem eru nokkur dæmi um ferðamenn á bílaleigubílum sem stöðva bíla sína á miðjum veginum og skapa stórhættu með þessu háttalagi. Þetta er lífhættulegur leikur og nú þarf strax að setja viðurlög við þessu brjálaða athæfi.

Sektir gera lítið gagn nema vera verulegar, það er 50.000 kr sekt fyrir að keyra bifreið yfir 110 km hraða og því finnst mér eðlilegt að ökumenn sem leggja á miðjum þjóðvegi verði sektaðir um lágmark 50.000 kr. Spurning hvort myndskeið frá vetvangi með bílnúmeri greinilegu dugir til þess að kæra viðkomandi til lögreglu?

Þetta er mál sem þarf að vinna hratt og vel og eiga bílaleigur að fá stífar reglur um að uppfræða leiganda að þetta uppátæki sé lífshættulegt og þá væri gott að geta bent á að 50.000 sekt sé við því.


Framsóknarleiðréttingin var aldrei kláruð en auglýst þannig??

Ég vil endilega koma því á framfæri að leiðréttingin á íbúðalánum var ekki kláruð eins og Framsóknarflokkurinn auglýsir grimmt þessa dagana.

Maður er búin að fá nóg af svona auglýsingum sem eru ekki réttar en eru samt notaðar til þess að veiða í atkvæði.

Það rétta er að öll íbúðarlán voru leiðrétt NEMA öll íbúðarlán sem húsnæðis og samvinnufélög eru með eins og tildæmis Búseti, ekkert af þeim lánum voru leiðrétt og hefur þetta að sjálfsögðu kostað leigendur þessara félaga mikið í hækkaðri húsleigu vegna stökkbreittra lána.

Þetta eru einfaldlega kosningarsvik sem eru svo notuð til þess að veiða atkvæði í dag. Þetta hroki. 


Kaupmáttur aldrei verið verri, hjá öryrkjum og öldruðum?

Það er mjög merkilegt að lesa svona fréttir um að kaupmáttur hafi aldrei verið meiri? Hvað er verið að tala um, einhverja afmarkaða hópa eða hvað?

Hér er dæmi um veruleika, endilega lesið þetta og fræðist um kjör þessa hóps.

Um síðustu áramót hækkuðu greiðslur til mín frá Tryggingastofnun um 4.722 kr á mánuði fyrir skatt og þar með útborgað ca 2.800 kr. Þessi hækkun var horfin daginn eftir því matarkarfan hækkaði strax og hefur verið að hækka allt árið. Það þarf engan sérfræðing til þess að segja mér eitthvað annað, ég er með heimilisbókhald og sé tölurnar 80.000 kr innkaup um síðustu áramót eru í dag ca 100.000 eða rétt yfir 20% hækkun.

Nú er svo komið að lífeyrissjóðnum mínum en greiðslur frá honum lækkuðu í byrjun ársins um ca 2.000 kr vegna lækkunar á verðbólgu (verðhjöðnun svokölluð?) en svo hefur hann hækkað aðeins á árinu en samt kemur þetta út þannig að lífeyrisgreiðslur standa í stað allt árið 2015 svo heildarhækkun á mínum heildarlífeyri eru þessar 2.800 kr eða 33.600 kr yfir árið sem hækkun á ráðstöfunarfé.

Ég vildi bara sýna fram á hvernig veruleikinn er í þessum málum og það er greinilegt að þúsundir aldraðra og öryrkja er með verulega skerta kaupmáttaraukningu á þessu ári, það er með ólíkindum að ríkisstjórn íslands skuli ætla að kjöldraga þennan hóp einu sinni enn og neita þeim um sambærilega hækkun og þeir lægst launuðu fengu þann 1 maí. 25.000 kr í krónutöluhækkun og prósentuhækkun eftir það. Það eru alltaf til fjármunir hjá ríkinu í alls kyns hluti sem mega bíða eða eru óþarfir, ég get ekki séð að Vigdísarhús eða hvað það heitir þurfi að byggja á meðan þessi hópur fólks á landinu er dregin ofan í svaðið og situr eftir eins og útspýtt hundskinn á eftir.

Ég skora á ríkisstjórn íslands að endurskoða þessar lífeyrisgreiðslur og samræma þær kjörum þeirra lægst launuðu og þá á ég við núna strax, ekki á næsta ári heldur strax. Hafið hugfast að 10% hækkun á litlar upphæðir er ekki neitt og þess vegna voru lægstu laun hækkuð með krónutöluhækkun um 25.000 í kjarasamningum.

Ég skora líka á öryrkjabandalagið og félög aldraðra að taka höndum saman berjast fyrir næstu kosningar og fella þetta fólk frá stjórn landsins og ráða fólk til starfa sem skilur mannlegar nauðsynjar. 

 


mbl.is Kaupmáttur aldrei meiri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kosningu um ESB eða þingkosningar, við loforð skal standa.

Alveg sama hvort fólk vill ganga í ESB eða ekki þá skal kjósa um málið.

Þegar flokkur leggur fram kosningarloforð þess efnis að kjósa skuli um áframhald viðræðna þá á sú kosning að fara fram. Ef ekki, þá er flokkurinn ekki með umboð til þess að halda áfram í stjórn og því skilt að slíta stjórninni. Ef þarf byltingu til þess að kenna flokkum að standa við loforð sín þá verður bara svo a vera. Þjóðin er búin að vera með svika ríkisstjórn á undan þessari og er búin að fá nóg af því. 


mbl.is Erfiðara fyrir Sjálfstæðisflokkinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru andstæðingar að skipta um skoðun varðandi ESB?

Þetta er spurning sem hefur leitað á mig undanfarna mánuði og hef ég hlerað að það er fleiri en ég sem eru að skipta um skoðun og vilja skoða betur inngöngu í ESB. Ég hef verið andstæðingur fyrir inngöngu alla tíð en þegar maður fer að hugsa málið betur og rifja upp hvernig búið að fara með fólk í þessi landi varðandi vaxtaokur, verðtryggingu og sveiflur krónunnar okkar.

Ég get ekki séð að þessi ríkisstjórn hafi þá stefnu að breyta þessu kerfi okkar og setja tildæmis fastgengisstefnu á eða koma með ákveðna áætlun um afnám gengishaftanna og því er ég skíthræddur um að við eigum eftir að sjá innan skamms aðra niðursveiflu með tilheyrandi hörmungum fyrir millistéttina og þá verst settu og þá gefst landinn upp er ég hræddur um.

Það er nú bara þannig að traust á stjórnmálamönnum er mjög lítið og þeir eru ekki að tala máli þeirra sem á því þurfa að halda en láta fólk halda að þessi skuldaleiðrétting sé eitthvað sem skiptir máli, hún skiptir alls engu máli ef kerfinu er ekki breitt samhliða. Fjórar milljónir eru fljótar að gufa upp í næsta verðbólguskoti það vitum við öll. Mín skoðun er líka sú að það sé ekki heill hugur á bakvið þær breitingar sem þarf að gera, því miður, ég vil sjá samning við ESB og sjá hvort hann getur rofið vítahringinn sem hefur verið hér á landi, allt mitt líf allavega. 


mbl.is Ekki ætlað að segja inn eða út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn er verið að leiða íbúðarkaupendur út í óvissuna.

Miklar umræður og pælingar hafa orðið um leiðréttingar íbúðarlána og er það bara að hinu góða að almenn umræða sé um svona stórt mál sem ég styð þótt þetta snerti mig ekki á neinn hátt því ég bý í íbúð sem Búseti á og slapp því vel út úr hruninu (það getur líka verið gott að leiga) en leigan hefur auðvitað hækkað vegna hrunsins því um sömu lán að ræða sem Búseti er með og almenningur.

Ég hef heyrt að leigufélög séu ekki inn í þessum leiðréttingarpakka þrátt fyrir að forsætisráðherra segir að þetta gildi um öll verðtryggð húsnæðislán það er því ekki rétt hjá honum og er þetta gróf mismunun að mínu mati því leigendur Búseta vonuðu að til lækkunar leigu gæti komið við leiðréttinguna.

Annað og alvarlegra varðandi þetta allt saman er að það eru farnir að stíga fram hagfræðingar bankanna og ræða um að þessi leiðrétting hafi góð áhrif á hagvöxt o.s.f.v. og minnir þetta mann á allar góðu spárnar fyrir hrun sem rættust svo aldrei, heldur fór allt til fjandans hér á landi. Á meðan verðbólga er þetta há eða 3,7% í dag og vextir auðvitað allt of háir eins og allir vita þá er ekki hægt að spá með einhverja bjartsýni í huga því mörg verkefni á eftir að vinna áður en við sjáum til himins á ný.

Þessi leiðrétting er alveg sanngjörn en hún getur fokið út í vindinn á stuttum tíma á meðan núverandi kerfi er á íslandi, þá á ég við ónýtt húsnæðislánakerfi með allt of hárri greiðslubirgði (fyrir meðalmanninn allavega) og síðan erum við með vístitöludrauginn sem verður að leggja niður, helst strax i dag. Fólk sækir í óverðtryggð lán sem er eðlilegt eftir hafa horft upp á eignaupptöku hér á landi á 8 til 10 ára fresti en vextir eru það háir að það er allt of há greiðslubirði á þessum lánum, þau þurfa að vera til lengri tíma eins og víða út í heimi og á hámark 3% vöxtum. Það er auðvitað fáranlegt að við skulum láta bjóða okkur upp á að það kosti fyrir 4 manna fjölskyldu um það bil 300.000 að greiða af meðalhúsnæðisláni og versla í matinn, bara fáranlegt. smá innskot sem dæmi um matarinnkaup á spáni, í Carrefour sem er stór verlsunarkeðja þá er hægt að versla fjórum sinnum meira fyrir sama pening en á íslandi en þá er samt búið að kaupa gjaldeyri á háu verði í íslandi, er þetta eðlilegt?

Að lokum þá er bara lífsnauðsynlegt fyrir okkur íslendinga að leiðrétting lána, verðtrygging húsnæðislána, húsnæðislánakerfið verði tekið allt saman í gegn og endurskoðað og breytt, allt í einum pakka á sama tíma ásamt fastgengisstefnu, nú er lag og þarf mikinn kjark til og vonandi er fólk við stjórn sem þorir að taka á þessum málum áður en næsta hrun skellur á okkur. 


mbl.is Meirihlutinn ánægður með leiðréttingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

KSÍ leigi alla bíósali á landinu þegar leikurinn stendur yfir.

Þar sem KSÍ klúðraði miðasölunni svona hroðalega finnst mér bara eðlilegt að samtökin standi fyrir því að landsmenn geti farið í hvaða bíósal á landinu og séð leikinn í bullandi stemningu (sigurstemningu)

 


Stjórmálamenn rökstyðji tekjur af auknum álögum.

Lengi hef ég velt fyrir mér hvað liggur á bakvið hækkun gjalda eins og td olíugjald og áfengisgjald.

Nú hefur Sjálfstæðisflokkurinn haft þá sýn að með því að lækka skatta þá skyli það sér með auknum tekjum til ríkisins og getur það alveg verið rétt þar sem meira fé í umferð skilar sér í gegn um veltuna í verslunar og þjónustugeiranum í auknum tekjum til ríkisins, þetta vita flestir.

Nú hefur Bjarni Ben ákveðið að hækka áfengisgjaldið þrátt fyrir minnkandi sölu hjá ÁTVR. Þetta er á móti sýn Sjálfstæðisflokksins til of hárra gjalda og skatta. Hver er útreikningurinn á bakvið þessa ákvörðun og hefur verið hugsað til þess að eftir því sem áfengi hækkar meira er verið að auka tekjur þeirra sem framleiða og smygla áfengi og selja á svörtum markaði? Mér finnst eðlilegt að menn rökstyðji svona ákvarðanir svo almenningur geti fylgst með hvort hugmyndafræðin gengur upp með gjaldahækkunum og ef svo er þá er hugmyndafræði Sjálfstæðisflokksins fallin.

Þetta nákvæmlega sama á við um olíuskatta, fólk spara við sig akstur einfaldlega vegna þess að margir hafa einfaldlega ekki efni á því að keyra, ég sjálfur er búin að kaupa bensín fyrir um 100.000 kr minna á ári síðstu tvö ár heldur en árin á undan, kemst bara ekki undan því að draga úr akstri vegna verðlags bensíns. Ef það eru td 5000 manns sem hafa gert það sama og ég er ekki um neina smá peninga að ræða í minni veltu og því hljóta tekjur ríkisins að lækka með minnkandi veltu og ef sýn sjallana er notuð á að lækka olíugjald strax til þess að hugmyndafræði þeirra fái að blómstra.

Þetta eru bara dæmi af tveimur vöruflokkum og svona er mjög víða en ekkert virðist breytast þrátt fyrir að það sé komin hægri stjórn, hvað veldur, eru Bjarni og Sigmundur orðnir svona hrifnir að vinstri leiðinni sem gafst hræðilega hjá síðustu stjórn.

Farið nú að hisja upp um ykkur buxurnar og koma þjóðinni af stað á nýjan leik með ákörðunum og framkvæmdum en ekki eintómum nefndum og pælingum, við þurfum framkvæmd verkefnanna núna.


Plata íslendinga enn biluð,hjakkar í sömu rispunni áratugum saman?

Það má segja að nánast alla mína tíð hafi Ísland hjakkað í sama farinu eins og rispuð plata sem spilast ekki áfram og hamast bara í sömu rispunni. Hérna er eignaupptaka mjög vinsæl leið og hafa stjórnmálamenn afskaplega gaman af þeim leik sem sýnir sig af verkum þeirra að gera alltaf sömu hlutina áratugum saman. Engu máli skiptir hvaða fólk eða flokkar sitja á Alþingi, ekkert breytist nema örlitlar áherslur hvernig á að nýta þá peninga sem eru til skiptanna en stjórnkerfið sjálft er það nákvæmlega sama og fyrir 50 árum síðan og ekki annað að sjá en það verði það áfram.

Allir þekkja kjarasamninga og þeirra sögu, hækka laun, hækka verðbólgu, hækka lánin. Háin þrjú klikka ekki og eru enn mjög vinsæl hjá stjórnendum landsins. Gjaldþrot heimila í miklum mæli eru alveg samkvæmt bókinni í dag eins og fyrir 50 árum síðan og sjáið til, eftir rúm 4 ár kemur næsta holskefla eignaupptöku almennings, já 2018 verður næsta hrun og hjá því verður ekki komist því sama kerfið verður áfram, sem er verðtrygging, snarvitlaus vísitala, ónýtur gjaldmiðill, versnandi heilbrigðiskerfi og skólakerfi og aukinn landflótti.

Ef einhverjum finnst ég svartsýnn þá verður það bara svo að vera en ég er miklu meira þreittur að horfa upp á að engin skuli hafa kjark til þess að framkvæma breitingar, taka á vísitölunni, taka á gjaldmiðlamálum, taka á útþöndum ríkisrekstri sem alltaf eru til peningar í, taka á byggingarkostnaði þar sem ríkið framkvæmir en það hefur verið í tísku að byggja byggingar sem eru svo dýrara að fólk tekur andköf í stað þess að byggja ódýrari byggingar sem samt sem áður þjóna sínum tilgangi fullkomlega þótt þær beri þess ekki merki að vera minnismerki einhvers sem ekki kann að fara vel með almannafé. Það eru svo fjölmargir hlutir sem þarf að taka á í þessu landi til þess að að okkur öllum geti liðið vel en ekki einungis 10 til 20% landsmanna.

Það er hálf hjákátlegt að horfa upp á sparnaðaraðgerðir núsitjandi ríkisstjórnarinnar en þar er einungis verið að skera niður í þessum hefðbundnu liðum, heilbrigðiskerfinu og skólakerfinu í stað þess að ráðast með hörku á ríkisreksturinn sjálfan en með því að skoða hann vel er eflaust hægt að leggja niður fjöldann allan af stofnunum sem ekkert gagn gera, það má flytja ríkisstofnnir úr rándýru húsnæði í ódýrara húsnæði og svona má lengi halda áfram. Ég veit að sumir horfa á þann þátt að margir ríkisstarfsmenn muni missa vinnuna kannski 1000 manns eða svo og er það auðvitað ekki gott en til þess að ná tökum á þessum ríkissrekstri þarf að færa fórnir og verður ríkið að taka þátt í því eins og hinn almenni starfsmaður í landinu. Hærri atvinnuleysibætur segja sumir, já það er rétt en miklu lægri ríkisútgjöld munu verða öllum til góða til lengri tíma litið.

Nú er tími aðgerðaleysis enn við líði á landinu og sennilega verðum við í sama farinu eftir 50 ár í viðbót en með því að skrifa greinar og opna umræður má kannski búa til hinn fullkomna stjórnmálamann sem kemur til starfa í framtíðinni?  


Kjararáð á að leggja niður áður en talað er um launakjör.

Mér finnst þessi yfirlýsing Bjarna gjörsamlega ótímabær og óskynsöm, það á maðurinn að vita, við viljum ríkisstjórn sem talar við okkur af skynsemi en ekki á þennan hátt án þess að hafa komið fram með nokkrar tillögur til þess að bæta kaupmátt okkar landsmann á nýjan leik. Beinar launahækkanir hafa aldrei skilað auknum kaupmætti heldur þarf að bæta hann í gegn um skattakerfið.

Kjararáð er tímaskekkja sem ber að leggja niður hið fyrsta þjóðinni til heilla og að allir opinberir starfsmenn fari undir sama hatt og fái launahækkanir í takt við annað fólk og eru síðustu afturvirku launahækkanir gott dæmi um hvað þetta er rosalega rotið kerfi að hafa þetta ráð við lýði hér á landi.

Ég óska því eftir að lagafrumvarp verði lagt fram strax í haust að kjararáð verði leyst frá störfum og annað og sanngjarnara kerfi verði tekið upp og er ég alveg viss um að stór meirhluti landsmanna er sammála mér, þetta ætti að vera krafa í næstu kjarasamningum.


mbl.is „Menn stilli kröfum í hóf“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband