Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál

Sorglegur vöruskiptajöfnuður en þó okkur í hag: Enn sem komið er.

Þetta eru 11.6 milljarðar okkur í hag í janúar og ekki er verið að vinna mikið í því að auka útflutningstekjurnar okkar heldur er verið að vega að þessum greinum á ýmsa vegu og svo hafa markaðir út í heimi sitt að segja en þeir eru ekki okkur í hag eins og stendur.

Ég hef áhyggjur af því að nú er verið að hefja framkvæmdir við Vaðlaheiðagöng og verið að bjóða út göng fyrir austan en þessi atvinnuvegur er þekktur fyrir að þamba í sig gjaldeyri meðan á framkvæmdum stendur og ekki höfum við efni á því í þeirri stöðu sem við erum í. Ég hef ekkert á móti göngum en þau verða að koma þegar við erum í betri stöðu.

Eina sem við getum gert í stöðunni er í fyrsta lagi að setja veiðilagafrumvarpið ofan í skúffu og vonast til að útvegsmenn auki fjárfestingar í landinu. Það verður að laga skattakerfið strax þannig að það sé vænlegt fyrir erlend fyrirtæki að líta til Íslands en það hafa td mörg fyrirtæki hætt við öll sín áform á Húsavík vegna skattastefnu stjórnvalda.

Það er allavega ljóst að eitthvað verður að gerast fljótt til þess að afla okkur meiri gjaldeyris svo ég tali ekki um að fjölga störfum á landinu en þeim hefur í raun ekkert fjölgað frá hruni ef tillit er tekið til þess hvað margir hafa flúið land og starfa erlendis. Það er nú þannig hjá stjórnvöldum eins og það fólk hafi aldrei verið til þegar er verið að biðja um góðar tölur varðandi atvinnuleysi. 


mbl.is Flutt út fyrir 55,7 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúverðug og sumstaðar ósönn loforð Sjálftstæðismanna: Dæmi.

Í einnu auglýsingu Sjálfstæðismanna stendur orðrétt.

Lækkum eldsneytisgjaldið

- það skilar sér til heimilanna

og lækkar höfuðstól lána ????

Ég vil bara benda á að öll hækkun höfuðstóls sem leggst á höfuðstól verður þar allt þar til lánið er uppgreitt eða lækkun á eldsneytisgjaldi lækkar ekki höfuðstól lána, heldur er það þannig að lækkun á eldsneytisgjaldi hækkar minna höfuðstól lána. Lækkun á höfuðstól á sér ekki stað nema í verðhjöðnun sem er ekki að gerast á Íslandi næstu misserin. 

 

Annað sem þarfnast skýringar fyrir almenning.

Fellum niður skatt þegar greitt er inn á höfuðstól húsnæðislána í stað þess að greiða í séreignasjóð.

Þarna er væntanlega verið að hvetja til þess að fólk spari ekki með því að leggja í séreignasjóð heldur noti það litla sem afgangs er til þess að greiða inn á lán ef ég skil þetta rétt. Hvað þá um sparnaðinn er hann ekki nauðsynlegur hverju þjóðfélagi. Er ekki vænlegra að lækka greiðslubirgði fólks með lengingu lána t.d. til 80 ára og setja allavega þak á verðtryggingu en best að losna við hana alveg. Þá hefur fólk afgang sem það getur notað til þess að kaupa vöru og þjónustu sem skapar störf, ég bara spyr.

Ef maður svo mikið sem tekur eitthvað mark á þessum loforðum sem auglýst eru þessa dagana af Sjálfstæðisflokknum þá er lágmark að það sé tilvísun inn á nánari útfærslur og tímasetningar loforða.

Ég er samt enn á þeirri skoðun að það er glapræði að kjósa þennan flokk til valda, það vantar enn meiri uppstokkun svo almenningur sé sáttur. 


Ótrúverðug og gamaldags stefna Sjálfstæðismanna, ekkert nýtt í boði.

Nú er maður búin að heyra svona byrjunina á stefnu Sálfstæðisflokksins og virkar þær mjög illa á mig og finnst mér þarna verið að tala um gamaldags leiðir sem allar hafa verið farnar áður og engar rótækar leiðir til þess að rífa okkur upp úr stöðnuðu stjórnkerfi okkar til þessa.

Krónan er allt í einu núna orðin besti gjaldmiðill sem í boði er, það eru engar forsendur í dag til þess að taka upp nýjan gjaldmiðil, segir Bjarni. Þarf ekki bara að hora á afleiðingar þess er krónan fellur, þarf meira til. Háir vextir og há verðbólga og áframhaldandi verðtrygging. Þetta  er flokkur sem vill hafa þann kost að geta fellt krónuna áfram og þannig flokk kjósum við ekki, nema vera sátt við að hafa óbreytt ástand hér áfram. Að draga úr vægi verðtryggingar er bara blekkingarleikur.

Flokkurinn ætlar ekki að taka á stöðu heimilanna með afgerandi hætti og er talað um að auka sparnað fólks, hvaða sparnað, kaupmátturinn er orðin svo lítill að það er ekki króna afgangs til þess að leggja fyrir. Það er nú ekki flókið að sjá að meðalfjölskylda sem greiðir af þriggja herbergja íbúð, með öllu tilheyrandi því að eiga íbúð, greiðir af 2 milljón kr bílaláni og síðan eru það aðföng fyrir heimilið. Þegar búið er að taka þetta saman eru þetta ca. 4.5 milljónir og þá eru allir aðrir póstar eftir sem við bara köllum, að vera til. þetta segir okkur að lítil fjölskylda þarf að hafa lágmark 10 til 12 milljónir í árstekjur til þess að standa undir þessu.Það eru ekki þau laun sem eru í boði almennt. Hér er brýn þörf á skuldaleiðréttingu til þess að lækka greiðslubirgði strax og finnst mér leið Hægri grænna mun vænlegri og fljótvirkari heldur en gamaldags stjórnarleiðir Sjálfstæðismanna.

Bjarni vill afskrifa hluta skulda hrægammajóðanna og hvernig gerir hann það? Hægri grænir eru með góða leið sem farin hefur verið í baráttu við hrægammasjóði víða um heim.

Ef maður ber sama leiðir og hugmyndafræði framboðanna sem verða í boði í vor þá eru Hægri grænir með mjög góða stefnuskrá sem er vel útskýrð og þar er eldmóður á ferð sem við Íslendingar þurfum á að halda í dag, nýjar fljótvirkar leiðir sem eru öllum landsmönnum til bóta. Mín persónulega skoðun er sú að það besta sem gæti gerst eftir þessar kosningar er að Hægri grænir og Framsóknarmenn mynduðu saman ríkisstjórn og hef ég fulla trú á því að það geti gerst, ég hef ekki trú á því að Íslendingar vilji halda í gamaldags vinnubrögð eins og Sjálfstæðisflokkur, VG og Samfylkingin hafa upp á að bjóða. Björt framtíð er ESB bóla sem springur enda gat Guðmundur Steingrímsson ekki einu sinni tekið afstöðu með eða á móti vantarausttillögu Þórs Sari í vikunni sem er harla lélegt. Það er mín skoðun að menn eigi að taka afstöðu til mála á alþingi.

 


Allir landsmenn vita að krónan er ónýt, ekkert nýtt í þeim efnum. Kjósum nýtt fólk til valda.

Ár eftir ár eftir ár er verið að ræða sama vandamálið, blessuðu handónýtu krónuna og stjórnmálaöflin sem vilja geta fellt hana  eftir sínu höfði vilja endilega geta gert það áfram og boðið almenningi upp á 10 ára hrun í landinu. Þessi umræða er orðin hundleiðinleg og komin tími til aðgerða, við erum með allt of háa vexti, við erum með gjaldeyrishöft og við erum með of háa verðbólgu sem á bara eftir að hækka miðað við hvað krónan fellur jafnt og þétt, ofan á þetta allt erum við með verðtryggingu.

Það verður að stöðva þessa áratuga stöðnun og til þess er aðeins ein leið, og nú er tækifærið, kjósa nýtt afl með nýjar leiðir og virðast Hægri grænir með lausn á þessum vandamálum og ættu því að komast til valda í þessu landi, við höfum engu að tapa að gefa nýju fólki möguleika á að snúa til betri vegar. Tökum okkur öll saman og kjósum XG til valda og sjáum hvort það verður okkur ekki til heilla. Það er búið að reyna allt hitt í áratugi, án árangurs.


mbl.is Már sér ekki fram á fljótandi krónu aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endalausar undirritanir á Húsavík en ekkert gerist.

Maður les reglulega að það sé alltaf eitthvað í farvatninu varðandi framkvæmdir á Húsavík en það virðist ekkert verða neitt af neinu nema það er undirritað eitthvað á ný.

Er ekki komin tími á framkvæmdir? 


mbl.is Samkomulag um kísilver á Bakka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta hrun 2016? Heiðar Már örugglega nærri því en það brýtur regluna.

Ég er sammála Heiðari að það styttist í næsta hrun en ef við förum eftir reglunni þá verður það 2018 eftir minni reynslu en þrisvar hef ég lent í eignaupptöku eins og það heitir en það hefur verið nánast reglan að 10 ára líði á milli. Minnistæðast er er þegar við hjónin skulduðum ekki neitt og áttum peninga sem við settum í íbúðarkaup og þá var Jóhanna yfir húsnæðislánakerfinu og það hrundi og við fengum aldrei húsnæðislánið. Eftir að hafa rekið okkur á bankalánum í 2 ár gáfumst við upp og seldum og gengum út með 3 milljónir í skuld. En við fengum ávísun frá ríkinu upp á heilar 135 krónur sem misgengisbætur???  Þetta var svona reglulega og er enn.

Nú eru loksins og renna upp nýjir tímar og manni gefst tækifæri að kjósa flokk sem þorir að fara í breytingar á stjórn landsins og fara nýjar leiðir eins og að blokka hrægammasjóðina af út í horni og losa þar með um gjaldeyrishöftin með tilkomu ríkisdals sem verður tengdur dollar. Mörg mál sem þrefað er um á alþingu árum saman en ekkert gerist. Ekkert hik íslendingar, kjósum XG Hægri græna flokk fólksins. Kynntu þér góða stefnuskrá Hægri grænna á heimasíðu þeirra.


mbl.is Heiðar Már sér fyrir nýtt hrun 2016
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður að bæta kjör í gegn um skattakerfið, annars er það óðaverðbólga.

Sagan á að vera búin að kenna okkur að beinar launahækkanir á sama tíma og verðbólga er of há þýðir bara hækkandi verðbólgu, kaupmætti verður að skila til baka í gegn um skattakerfið. Annað er óðs manns æði. 


mbl.is Ábyrgðin er stjórnvalda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá er bara að skella sér í leiðréttingu skulda úr því við unnum Icesave málið.

Þar sem stjórnvöld voru búin að undirbúa sig undir að tapa Icesave málinu þá hljóta að vera til reyðu um 300 milljarðar úr þrotabúi Landsbankans og er þá ekki réttast að leiðrétta skuldir landsmanna um þá upphæð, var ekki talað um að 20% almenn leiðrétting kostaði 200 milljarða?
Það var almenningur sem vann þetta mál með aðstoð fagaðila sem skipulögðu málið algjör ósigur sitjandi minnihlutastjórnar sem hefur hraunað yfir almenning undanfarin ár að mínu mati.
mbl.is „Stórkostlegur sigur fyrir okkur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stefnuskrá Hægri grænna mjög athyglisverð, eru stóru breytingarnar sem við þurfum framundan???

Þar sem ég er búin að fá nóg af þeirri stöðnuðu ómarkvissu hagstjórn sem verið hefur hér á landi allavega síðustu 40 ár, hef ég verið að kynna mér nýju framboðin sem fram hafa komið.
Stefnuskrá Hægri grænna er mjög athyglisverð og mjög vel unnin og rökstudd með góðum greinagerðum, ég hvet fólk að kynna sér stefnumálin á heimasíðu Hægri grænna og sjá hvort þar er ekki eitthvað sem fólk er tilbúið að leggja lið með því að kjósa þennan flokk í næstu kosningum.
Við íslendingar megum ekki sitja aðgerðalausir og kjósa bara til að kjósa og hleypa kannski fjórflokkunum að á nýjan leik og fólk verður að átta sig á því ef fjórflokkarnir komast að, þá mun ekkert breytast.
Það verður áfram ónýtur gjaldmiðill rekinn hér og hann felldur eftir óskum stjórnmálamanna, það verður há verðbólga, háir vextir og næsta hrun verður 2018 samkvæmt reglunni, því hér verður eignaupptaka á 10 ára fresti og hefur maður sjálfur heldur betur fengið að finna fyrir því og það fer nánast allt lífið í að greiða upp skuldir eftir þessar eignaupptökur. Athugið að nú þegar er að myndast eignabóla sem er góður grunnur fyrir næsta hrun, hérna verður hátt verðlag áfram og gjaldeyrishöft.Ekkert verður gert til þess að leiðrétta stökkbreittu lánin og þannig má lengi telja. Við höfum akkúrat ekkert að gera í ESB, við þurfum annan gjaldmiðil og þar er lausnin á mörgun tengdum vandamálum, við þurfum ekki endilega Evru, getum vel notast við tengingu við dollarann enda eru viðskipti og okkar og skuldir mestmegnis í dollurum.
Viljum við Íslendingar sama stappið áfram, svikin kosningarloforð o.s.f.v.??? Nei við viljum þetta ekki og þess vegna verðum við að hleypa að nýju fólki hér við stjórn og þá verða breytingar. Við höfum engu að tapa.
Ég bíð spenntur eftir því að sjá þann hulduher af góðu fólki sem mun bjóða sig fram fyrir hönd Hægri grænna og ég óska þeim flokki alls hins besta í framtíðinni. Þarna er komin sá miðjuflokkur sem við höfum verið að bíða eftir og nýtum nú tækifærið. Ég vil nýja framtíð og set X við G.
ps. Ekki væri verra ef Jón Daníelsson hagfræðingur væri flokknum innan handa sem ráðgjafi því hann er ótrúlega séður og glöggur maður.

Sparaðu okkur þessa nefnd Katrín, það er að koma ný stjórn.

Endalasut eru til peningar í nýjar og nýjar nefndir og nú á að stofna nefnd til þess að koma með breytingar á eigin verkum, þvílík fásinna.
Það er að koma ný stjórn í þessu landi og alveg lágmark að fráfarandi stjórn spari þá fáu aura sem er að fá úr ríkiskassanum eins og staðan er í dag.
Það mætti tildæmis nota þessa nefndarpeninga í að gera við nokkra glugga í Landsspítalanum.
mbl.is Katrín vill endurskoða skattkerfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband