Færsluflokkur: Íþróttir

KSÍ leigi alla bíósali á landinu þegar leikurinn stendur yfir.

Þar sem KSÍ klúðraði miðasölunni svona hroðalega finnst mér bara eðlilegt að samtökin standi fyrir því að landsmenn geti farið í hvaða bíósal á landinu og séð leikinn í bullandi stemningu (sigurstemningu)

 


Katrín Jakobsdóttir ætlaði að banna læstar útsendingar á landsleikjum með einfaldri norrænni lagasetningu, hvar er hún.

Ég man eftir sjónvarpsviðtali við Katrínu Jakobsdóttur þar sem var verið að ræða þetta vandamál hvers vegna landsmenn fái ekki að sitja við sama borð og sjá landsleiki í opinni útsendingu. Þar talaði hún um að eitthvert norðurlandanna eða öll (ekki viss um það) væri með einfalda lagasetningu á að það sé bannað að afrugla landsleiki og ætlaði hún að beita sér fyrir því en það er eins og með annað, svikin loforð. Gaman væri að sjá þetta viðtal aftur en ekki veit ég hvernig maður finnur það???

Er Redknapp að verða tæpur og kannski landsliðið efst í huga???

Sem gamall Tottenham aðdándi er ég að sjálfsögðu hrikalega fúll að við skulum aðeins hafa unnið einn leik af síðust átta leikjum er skelfileg frammistaða.
Þegar maður horfir á leik liðsins í dag miðað við fyrir áramót þá er eins og annað lið sé inn á vellinum, allavega ekki betra lið en Norwich í gær.
Eitt hefur vakið athygli mína hjá Redknapp og er ég þá að tala um liðsuppstillingar sem eru oft mjög furðulegar og hann virðist stundum telja sig hafa efni á því að venmeta andstæðingana og í staðinn ganga þeir á lagið og leggja okkur að velli. Sem dæmi úr leiknum í gær þá stillti hann grútmáttlausum King í miðvarðastöðu en maðurinn er greinilega ekki heill og er allur skakkur og þreyttur en þetta er gert á sama tíma og Gallas er búin að sína 3 mjög góða leiki í röð. Svo má nefna þessar róteringar í miðjum leik með Bale á milli kanta eins og með Lennon. Það er margt að hjá þessu liði í dag og er það bara mín skoðun að Harry Redknapp eigi að taka landsliðið og Tottenham að fá alvöru þjálfara sem heimtar árangur og skilar honum. Ég spái að Tottenham lendi í 6 til 7 sæti í deildinni en gætu rifið sig upp í bikarnum og unnið hann.
mbl.is Redknapp: Þeir áttu þetta skilið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn eru landsleikir í ruglaðri útsendingu, hvar er lagasetning menntamálaráðherra???

Mér er bara spurn hvar lagasetning á að bannað sé að rugla sjónvarpsútesndingar á landsleikjum hjá íslenskum landsliðum.
Þegar þessi stjórn komst að var þetta sterktí umræðunni og man ég að Katrín Jakobsdóttir sagðist ætla a beita sér í þessu máli og það væri í raun ekki flókið því norðmenn séu með þannig lög sem standa.
Er þetta bara enn eitt af málefnum þessarar ríkisstjórnar sem dalar uppi??

mbl.is Íslenska landsliðið á Ólympíuleikana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Katrín, lagasetningu strax á læstar landsleikjaútsendingar.

Katrín Jakobsdóttir var að skoða hvort ekki væri hægt að setja lagasetningu á að bannað væri að sýna landsleiki Íslands í læstri útsendingu og gaf loforð að það yrði gert ef ég man rétt en eitthvað virðist það ganga hægt að koma þetta litlu máli í gegn um þingið. Þarna er komið kjörið tækifæri fyrir VG að standa við eitt loforð til fólksins.
mbl.is Telur RÚV hafa sýnt leikinn án leyfis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslensku stelpurnar flottar, til hamingju.

Þær standa sig vel stelpurnar okkar á Algarve mótinu og vinna alla sína leiki og mæta bandaríkjunum í úrslitum og nú þarf RÚV að koma inn og sína þann leik til þess er RÚV.
mbl.is Ísland í úrslit á Algarve mótinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rooney á eftir að verða ánægður í Tottenham og fá nokkra titla í vetur.

Við Spursarar getum alltaf tekið á móti góðum fótboltamönnun ekki málið, Rooney velkomin og við getum sett Robbe Keen og Jenas upp í kaupverðið og 10 millur á milli.
mbl.is Man.Utd selur ekki Rooney í janúar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sókn er besta vörnin.

Það er bara að vona að Íslenska liðið þori að pressa aðeins á Portúgalana þó þeir séu góðir, taka þá frekar snemma á miðjunni og mata stungur inn á Heiðar og 1 -0 sigurinn verður sætur? Bjartsýnn, hver er það ekki á Íslandi í dag. 
mbl.is Byrjunarlið Íslands gegn Portúgal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eiður á svo sannarlega heima hjá Tottenham.

Þar sem ég er Tottenham aðdáandi hef ég fylgdst mikið með Eiði í leikjum Spurs og er ekki hægt að segja annað en hann sé að gera mjög góða hluti. Flæði boltans innan liðsins er með mun meiri gæðum en það var fyrir komu hans, útsjónarsemi hans og áræðni er skemmtilegt á að horfa og er hægt að segja að Eiður sé vaknaður á ný og gott fyrir hann að komast í hraðan og skemmtilegan fótbolta.
mbl.is Eiður Smári áfram hjá Tottenham?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leiðinlegt fyrir jaxlinn okkar.

Já Hermann var óheppinn og greinilegt að hann vissi strax hvað hafði gerst eftir svipnum að dæma.

En því miður þá er boltinn súr á köflum og skelfilegt fyrir Portsmouth að missa sinn besta mann að mínu mati en ég óska honum bara góðs bata.


mbl.is Redknapp: Meiðsli Hermanns draga úr sigurgleðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband