Uppgjafatónn stjórnarinnar er áberandi. Niðurfærið skuldir strax og segir svo af ykkur.

Það er algjör uppgjöf komin í þessa stjórn og fer það ekki á milli mála að hún er algjörlega strand í því máli sem á þjóðina hvílir. Kannski er best fyrir þau að niðurfæra skuldirnar um 18% og segja síðan af sér til þess að fara ekki frá í algjörri niðurlægingu. Það yrði þá næstu stjórnar að koma atvinnulífinu af stað og þá er björninn unninn og allt fer að rúlla upp á við á nýjan leik.

 


mbl.is Okkur hefur ekki mistekist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erla J. Steingrímsdóttir

Ég er bara nokkuð sammála þessu, einfalt plan en virkar:)

Erla J. Steingrímsdóttir, 12.10.2010 kl. 16:19

2 Smámynd: Tryggvi Helgason

Fáir nýta sér "úrræðin", - segir ríkisstjórnin. Er þá ekki málið að "úrræðin" séu ekki þau réttu, og séu því gagnlaus ?

Vandamálið í þessu öllu saman er bara eitt, - bara aðeins eitt, - og það er vísitölubindingin. Og þar af leiðandi er aðeins um eitt úrræði að ræða, og sem kemur til greina, og það er að afnema með lögum þessar vísitölureglur.

Svona vísitölubindingar þekkjast hvergi á byggðu bóli, - nema á Íslandi, og Alþingi þarf að afnema þessar reglur. Þar með er dæmið leyst.

Hversu langt aftur í tímann öll lán svo verði endurreiknuð, - upp á nýtt, - er svo Alþingis að ákveða.

Það er furðulegt að enginn þingmaður hefur heyrst nefna þetta; - það er, að afnema vísitölubindingarnar.

Tryggvi Helgason, 12.10.2010 kl. 17:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband