21.9.2010 | 08:06
Bjartara framundan ef stjórnin springur, getur bara verið til góðs.
![]() |
Mikil reiði innan VG |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.9.2010 | 10:23
Hættum nú þessu fortíðarrugli öllu saman, Landið stjórnlaust í tvö ár.
Þetta er orðið algjörlega óþolandi að heyra frá þessu stjórnmálafólki að þrasa um það sem gerðist allt aftur í 10 ár aftur í tímann og það virðist vera að þetta lið ætli að finna lausn á vandamálum dagsins í dag með því að sökkva sér í fortíðina hún gerir ekkert fyrir okkur í dag hún er liðin og kemur ekki aftur í því horfi sem hún var. Það sem skiptir máli er það að vinnubrögðin í dag skapa aðstæðurnar sem verða á morgun o.s.f.v. því er brýnt að stjórnendur landsins fari að huga að einhverju öðru en því sem hefur gerst, það er öll orka notuð í að reyna að finna einhverja sökudólga fyrir hinum og þessum gjörðun (hvað breytist þótt Ingibjörg og Geir sitji í fangelsi í 1 ár? Ekkert). Sömu vandamálin eru hér til staðar á meðan ekki er verið að vinna af heilindum að því að rétta þjóðina við þá gerist ekkert og það er staðan í dag, það gerist ekkert.
Ný vinnubrögð upp á borðið í dag, ekki á morgun, í dag. Icesave í hendur lögmanna og Steingrímur hættir að tjá sig um það mál, hann hefur mikið stærra verkefni á borðinu eins og að halda lífi í þjóðinni, Jóhanna sem hefur verið algjörlega gangslaus til þessa þarf að standa upp og fara að stjórna þessu afdala liði í ríkisstjórninni og fara að huga að því hvers vegna allt er stopp í þessu þjóðfélagi. Ef það er VG sem stöðvar allan framgang og vill ekkert hliðra til í einu né neinu til þess að skapa störf þá er það starf forsætisráðherra að slíta þessu samstarfi og freista þess að komast í nýja stjórn með öðrum aðilum. Hvað varðar stefnuna í gengislánunum og þá lagasetningu sem Árni Páll boðar þá er að mínu mati þarna á ferðinni ein stærstu mistök íslandssögunnar, þessi lög munu rústa íslenskum heimilum endanlega, húsnæðislán geta aldrei borið sömu vexti og bílalán aftur í tímann, að fólki skuli detta þetta í hug er rannsóknarefni en við skulum ekki rannsaka fleira heldur hætta við svona viteysu og fara að taka af málununum í alvöru, taka á vandamálum dagsins í dag.
18.9.2010 | 19:23
Hefur Steingrímur umboð þjóðarinnar í þessu máli?
![]() |
Steingrímur: Íslendingar munu borga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
![]() |
Feginn að það er kominn dómur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.9.2010 | 12:23
Bylting ef lánveitandi vinnur málið?
Þá er komið á því íslendingar góðir, vinnur fólkið og fær sanngjarna leiðréttingu eða vinna fjármálastofnanir, þessu er erfitt að spá en grunur minn liggur í því að spillingarstjórnmálin vinni í dag og við sitjum uppi með sárt ennið, því miður en maður heldur í þessa litlu von að fókið vinni og samningsvextir haldi enda var skrifað undir það þegar fólk tók lánin.
Ef þetta fer á versta veg fyrir fókið í landinu þá er tímabært að stofna til Byltingar og fella ríkisstjórnina og fá eitthvað fólk til starfa til þess að koma atvinnulífinu af stað ásamt leiðréttingu lána, allt er betra en það fólk sem situr við stjórn landsins í dag.
![]() |
Dómur í gengislánamáli í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
![]() |
Farið verði að vilja íbúa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
![]() |
Meira en nóg af áhættufjárfestingum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.9.2010 | 18:09
Verst er að vinnubrögð ráðherra hafa versnað til muna undanfarið ár.
![]() |
Lausafjárkreppan aldrei rædd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.9.2010 | 11:07
Allir úr fyrrverandi stjórn verði ákærðir og Samfylkingin víki úr núverandi stjórn.
Mín skoðun er sú að öll fyrrverandi stjórn verði ákærð í stað þess að velja tvo til fjóra til að ákæra, því ríkisstjórn á að vinna saman að stjórn landsins og allir eiga að bera sömu ábyrgð. Í dag er ríkisstjórn sem vinnur ekki saman heldur lætur bara landið rúlla áfram í óstjórn á meðan 40.000 heimili eru í stórfelldum vandræðum, er ekki ástæða til þess að ákæra núverandi stjórn fyrir þessi vinnubrögð?
![]() |
Ágreiningur um hve marga ætti að ákæra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ég hélt að 1 apríl hefði verið í síðustu viku þar sem komu fram í sjónvarpi Katrín Jakobsdóttir og Svandís Svarsdóttir þar sem þær sögðust hafa ákveðið að láta skafa utan að beinum hvalsins sem rak hér á land á dögunum og láta móta hana og koma fyrir á safni. Hvaða andsk.... rugl er hér í gangi á sama tíma og verið að að drepa þjóðina hægt vegna niðurskurðar á þjónustu á öllum sviðum. Hvað ætli svona aðgerð kosti margar miljónir fyrir utan að það þarf eflaust að byggja utan um þetta ferlíki og þarf það ansi marga fermetra og síðan þarf að reka húsnæðið, er komið 2007 aftur??? Þetta eru vinnubrögð sem sýna hvað er í gangi innan þessarar ríkisstjórnar, það er bullandi spilling sem aldrei fyrr, ekkert gerist í atvinnumálum, ekkert gerist í leiðréttingu lána, engar nýjar hugmyndir í tekjuöflun fyrir ríkissjóð o.s.f.v. Það er samt hægt að láta eins og síðasti hvalurinn hafi rekið hér á land og byggja yfir hann. Þjóðfélag á harðri niðurleið og ekki skrítið að okkur fækki hratt en þar er skýringin á minna atvinnuleysi, einfaldlega færra fólk í landinu.