Fagmennskan látið víkja fyrir pólítísku rifrildi og ósameiningu.

Hvað eigum við almennir borgarar að þurfa að horfa upp á þetta lengi að ríkisstjórn sem er hvorki fugl né fiskur og brothætt sem egg, pota svona vinnubrögðum inn í þjóðfélagið að það sé mikilvægara að halda þessari liðónýtu stjórn á lífi með því að láta eina ráðherrann fara sem hefur unnið sitt starf af heilindum hún Ragna Árnadóttir, framúrskarandi fagmaður sem vinnur sína vinnu mjög vel, Það er alltaf verið að telja okkur trú um að það þurfi að vinna á siðspillingunni hér á landi en hvað er þetta annað en siðspilling og ósætti í stjórnarháttum? Það mega allir ráðherra víkja mín vegna nema Ragna enda held ég að hún myndi alveg ráða við það ein að stjórna þessu landi miðað við vinnubrögð annara undanfarið ár. 


Afsögn Jóhönnu í dag?

Mikið væru það gleðileg og uppbyggjandi tíðindi ef Jóhanna segði af sér í dag, það myndi gefa okkur Íslendingun byr undir báða vængi ef hún hyrfi á brott með allt sitt hafurtask.
mbl.is Aukafundur í ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sama óstjórnin og þegar Davíð sat, sama spillingarbælið.

Þetta hlýtur að vera stollt Samfylkingar að hafa komið þessum sómamanni að en mér er spurn hvers vegna í ósköpum seðlabankastjóri ekki búin að neita þessari tillögu opinberlega til þess að róa almenning, vill hann kannski fá fólk í mótmæli fyrir utan spillingarbælið til þess að geta verið eins og Davíð var við völd er þetta ekki sjálfstæð stofnun og hvers vegna í ósköpum datt Láru þetta í hug?

Þetta er hreinn viðbjóður að þurfa að horfa upp á þetta gerast á þessum tímum.

 


mbl.is Skorar á Láru að draga tillögu til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú þurfum við naflaskoðun allra embættisverka á Íslandi, núna ekki á morgun.

Það er talað,talað, talað og talað en ekki nokkur skapaður hlutur breytist en það er hægt að tala um AGS, ESB, ástandið í Grikklandi (sjá frétt), bann á nektardansi, banna léttölsauglýsingar, hækka skatta, fangelsa útrásarvíkinga, skýrslu hrunsins, nuddast út af því sem liðið er og nánast allt á milli himins og jarðar nema að byggja hérna upp lífvænlegt umhverfi fyrir almenning. Þetta er fortíðin sem er verið að vinna í en nútíðin og framtíðin virðast ekki skipta nokkru máli?

Í alvöru talað, þá er þetta skammarlegt og nánast hryðjuverk gangnvart landsmönnum hvernig er staðið að málum hér á landi. Tildæmis, hvers vegna má ekki taka þá stefnu að gera eitthvað markvert fyrir almenning þótt það kosti ríkissjóð eða fjármagnseigendur fé eins og tildæmis að afnema verðtryggingu, afskrifa skuldir, gera fólki kleift að eignast eitthvað á nýjan leik fljótt eftir að það lendir í gjaldþrotum, hætta að nuddast út af fortíðinni, vinna saman að uppbyggingu, leggja niður flokkaþras, gera fólk ánægt og gefa því von um að það geti stigið upp úr þessari stöðnun sem hér varir, þetta eru hlutir sem skipta máli og snerta tilfinningar landsmanna og við þörfnumst þess að eitthvað sé gert sem er hægt að finna fyrir fljótt og vel. Ég vil ekki heyra að við höfum ekki efni á þessu og hinu, ef við höfum tildæmis efni á að fara i aðildarviðræður við ESB þá eru til peningar og kannski má bara forgangsraða betur, fókið fyrst og síðan ESB o.s.f.v. þetta snýst ekki allt um peninga sem eru til ráðstöfunar núna heldur hvernig við getum aflað tekna fyrir ríkissjóð í dag og síðan á morgun og hinn og síðan koll af kolli, til þess erum við ríkust allra þjóða, það fer ekki á milli mála. 

Það er allt í lagi að stíga til hliðar ef manni hefur mistekist eða gert mistök í starfi það er frekar uppbyggjandi fyrir viðkomandi að stíga til hliðar og geta sagt, mér urðu á mistök og myndi það frekar styrkja mannorð viðkomandi frekar en að rægja það. Að sitja og gera hver mistökin á eftir öðrum og vera með almenning á móti sér er bara ekki bjóðandi lengur í þessu þjóðfélagi og nú á ég við alla ráðamenn þjóðarinnar sama hvaða starfi hann gegnir. Hver og einn ætti að setjast niður og fara yfir sín verk að bera þau saman við almenningsviðhorfið og fá niðurstöðu hvort honum sé stætt og ef honum finnst það þá verður hann að rökstyðja það við almenning frá öllum hliðum.

Það vantar góðan þáttagerðamann sem þorir að tala og spyrja ákveðið, taka saman embættisverk fólks, tildæmis ráðherra og fá fólkið svo í þátt þar sem er farið yfir verk þeirra og það látið svara og rökstyðja svör sín. Okkur almenning vantar skýr svör í dag á fjölda mörgum atriðum eins og má tildæmis lesa hér fyrir ofan og við þurfum að fá að vita hvers vegna fólk kemst upp með að vinna illa fyrir samfélagið en sitja samt sem fastast en fjöldinn allur af opinberum starfsmönnum stendur alls ekki undir starfi sínu en situr samt. Ég er bara að reyna að opna aðeins umræðu um að brjóta upp í eitt skipti fyrir öll þessi stöðnuðu viðhorf og venjur í íslensku stjórnarfari, okkur hefur aðeins þokast með afsögnum nokkurra aðila sem áttu allar fullan rétt á sér en það er vonandi bara byrjunin á mörgun þjóðhagslega hagstæðum afsögnum hvort sem það heitir ráðherrar, alþingismenn, ríkistjórn eða einfaldlega opinber embættismaður. Byrjum núna bloggarar landsins og koma af stað umræðu um að taka allt stjórnkerfið í gegn og að fólk verði látið svara fyrir verk sín í nútíðinni en látum vera það sem er búið og verður ekki breytt því breytingarnar verða að byrja núna.   


mbl.is Steingrímur þakkar fyrir krónuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kreppan frá og allt á uppleið og launin munu hækka hjá öllum?

Það er gott til þess að vita að kreppunni sé lokið er það ekki annars það sem hægt er að lesa út úr þessari frétt að byrjunin sé að hækka laun Seðlabankastjóra og síðan semur Það opinbera um hækkanir og allt í fínum málum þar til kemur að almúganum?

 


mbl.is Laun seðlabankastjóra hækki um 400 þúsund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er eðlilegra að setja fjármuni í Íbúðalánasjóð heldur en bjarga fjölskyldum?

Það er allt við sama heygarðshornið hjá ríkistjórninni, nú finnst Árna Páli mjög eðlilegt að ausa fjámunum inn í íbúðarlánasjóð til þess að bjarga honum en fjölskyldur halda áfram að verða gjaldþrota og fleiri og fleiri eignir lenda í höndum Íbúðarlánasjóðs, af hverju í ósköpum sjá menn ekki ekki að það er engin keðjuverkun í landinu lengur vegna stefnu ríkisstjórnarinnar, það er allt stopp og ekkert gerist. Ég sagði fyrir um ári síðan að íbúðarlánasjóður þyrfti að yfirtaka um 1000 íbúðir á þessu ári (2009) en þær eru á fjórða hundrað en þá á eftir að taka þúsundir fjárnáma og uppboðsbeiðna fyrir sem hefur verið frestað en ef þær hefðu verið afgreiddar þá væri ég nærri lagi. Þetta fannst mörgum alveg fráleitt að svo margar íbúðir yrðu yfirteknar en raunin er bara þessi og bankarnir yfirtaka nokkrar íbúðir á dag. Stefna stjórnarinnar hefur mistekist hroðalega á öllum sviðum og verða afleiðingarnar rosalegar ef ekki verður breitt um stefnu og reynt að afskrifa flatan niðurskurð og byggja upp atvinnulífið en þessar tvær aðgerðir eru nátengdar og búa til svokallaða keðjuverkun sem verður að vera í öllum þjóðfélögum. Skattar verða að lækka eins og skot því skattarnir verða frekar að koma inn í gegn um vsk kerfið í miklu meira mæli að það mun  fjölga störfum og svo koll af kolli.

Ríkisstjórnin sveik Íslendinga með viljayfirlýsingu til AGS, rannsókn strax.

Þetta er alveg ótrúlegt að lesa um þennan gjörning sem ríkisstjórnin hefur gert með því að undirgangast kúgun AGS og það svona rosalega og þau skitu alveg upp á bak. Mér er spurn hvort ekki sé ástæða til þess að fá þetta fólk sem vann rannsóknarskýrsluna til þess að rannsaka vinnubrögð núverandi ríkisstjórnar og hef ég nú á tilfinningunni og margt mjög slæmt ætti eftir að koma þar fram sem mætti flokka undir landráð, óásættanleg vinnubrögð, röð misstaka til bjargar heimilum, rangar og slæmar ákvarðanatökur og Icesave sem nú hefur endanlega verið klúðrað með því að fara á bak við almenning og skila inn fáránlegri viljayfirýsingu til ASG í skjóli nætur og svo er bara logið af okkur þegar farið er að grenslast um málið. Það hefur aldrei fyrr verið meiri spilling á Íslandi, það kemur allt í ljós þegar verður farið að rannsaka hvað fer þarna fram. Að lokum þá hefur líka aldrei verið meira pukur og lítið gagnsæji eins og í dag.

Til hvers var AGS gefin yfirlýsing um að Íslendingar greiddu Icesave???

Nú er maður alveg hættur að skilja hvert við erum að stefna, gefa út yfirlýsingu um að við munum greiða Icesave til AGS án þess að máli séu tengd. Nei nú er verið að ljúga mjög alverlega af þjóðinni einu sinni enn og nú þurfum við bara sannleikann upp á borðið. Steingrímur er verið að kúga þjóðina án þess að þú segir frá því og hvers vegna þurfti að gefa út viljayfirlýsingu ef AGS segir að málin séu ekki tengd?

Furðulegur stuðningur en svona er prógrammið.

Þetta er alveg í anda sjálfstæðisflokkssins að fórna einum og bjarga öðrum og mynnir aðeins á undanfarna atburði í sögu þjóðarinnar. Ef sjallarnir halda að skoðanakannir sýni rétta mynd af fylgi flokksins þá held ég að þeir hafi skotið sig í í fótinn því að fylgið er eingöngu vegna lélegrar stjórnunar núverandi ríkisstjórnar og mun breytast fljótt ef til kosninga kemur og þá mun fylgið jafnast á alla flokka. Bjarni getur aldrei ekki orðið foringi flokksins til þess að hefja hann til flugs, það liggur alveg ljóst fyrir að hann er ekki sú persóna og bakgrunnurinn er ekki réttur, þetta eiga allir að vita og sjá. Kristján Þór Júlíusson gæti orðið góður foringi og leiðtogi því hann hefur réttu persónueinkennin og mjög góðan bakgrunn. Þar sem ég er ekki sjálfstæðismaður er þetta bara ábending um að það þarf að hreinsa út alla sem hafa óhreinan bakgrunn, alveg sama í hvaða flokki hann er.
mbl.is Lýsa yfir stuðningi við Bjarna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þurfum að nýta okkur umfjöllunina okkur í hag.

Þótt þetta gos hafi gríðarleg áhrif um allan heim þá verður það samt þannig að lokum að miljónir manna vilja koma hingað og við því verðum við að verða viðbúin. Ríkiskassinn á að geta bólgnað út í stað þess að þurfa bara að bæta það tjón sem gosið mun valda og þá er ég að tala um núna en ekki eins og með heimilin sem gleymdust og eru gleymd.
mbl.is Ísland ofarlega í huga ferðalanga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband