Ég bíð bara eftir fréttinni frá Svandísi Svavasdóttur þegar hún fer að blanda sér í málið en 99% líkur hljóta að vera á því að hún stöðvi fyrirhugaðar framkvæmdir.
VG fólk verðum við að senda til fjalla að týna fjallagrös, allt eins og það leggur sig og það má vel vera að einhverjarar tekjur sé hægt að hafa af því en við getum ekki lengur látið VG stöðva allar framkvæmdir á landinu, það er meira að segja verið að stöðva framkvæmdir sem eru komnar af stað og síðan það nýjasta með þetta þotuleigufyrirtæki í Keflavík sem áætlar að framkvæma fyrir gríðarlegar fjárhæðir og skapa helling af störfum. Þetta er vopnalaust fyrirtæki og hvers vegna ættum við ekki vilja fá þetta hingað í stað þess að þessar höfuðstöðvar verði settar upp í öðru landi því til góðs og við sitjum áfram í algjöru vonleysi með VG stjórn sem vill ekki skapa störf.
Mjólkárvirkjun ekki í umhverfismat | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Viðskipti og fjármál, Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Til er fólk sem af sannfæringu er á móti og berst gegn vitfirringu stríðsátaka. Slík afstaða ætti að vera algild meðal allra manna, enda viðbjóður hernaðar ólýsanlegur. Heilagleikinn fer þó uppúr geislabaugnum í andstöðunni við komu og veru fyrirtækis sem leigir út vopnlausar þotur til æfinga.
Heilaga baráttuna gegn hertöku stóriðjunnar á orkulindum Íslands, styður dingli þó fullkomlega.
Dingli, 18.3.2010 kl. 16:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.