19.3.2010 | 15:59
Er ekki ríkisstjórnin orðin að fjárglæfrafólki? Tekin við af víkingunum?
Ég get bara ekki séð betur en að það sé alveg hægt að heimfæra það á ríkisstjórn íslands að hún sé samsafn af fjárglæframönnum. Hvað er annað hægt að segja eftir þær hamfarir sem stjórnin hefur sýnt varðandi auknar álögur á almenning og síðan koma nýjar og nýjar leiðir til þess að reyna að ná auknum skatti af skítblönku fólkinu sem á skerinu býr. Ég bara spyr hvort þetta sé bjóðandi þjóð eins og íslandi því það eru til aðrar leiðir sem ekki hefur verið litið á hjá þessari stjórn, eins og td. að afla tekna með fjárfestingum og aukinni atvinnu en stjórnin stendur í vegi fyrir öllum framförum. Þetta gengur ekki við þurfum aðrar áherslur.
Nægir ekki til að lina þjáningar heimilanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Viðskipti og fjármál, Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Kassinn er tómur, aðdragandann ætuu allir að þekkja. Þessi þjóð er í raun gjaldþrota. Ég sé ekki marga kosti í stöðunni nema að taka allt af víkingunum nokkuð sem mér myndi hugnast
Finnur Bárðarson, 19.3.2010 kl. 16:17
Satt segir þú þau eru eins og útrásaþjófarnir ef ekki verri.
Koma öllum skuldum á þá sem minnst eiga og helst meira svona er vinstri stjórn ef þeir lofa einhverju þá er það svikið það er pottþétt.
Jón Sveinsson, 19.3.2010 kl. 16:20
Ég held að réttnefni á embættis- og stjórnmálamönnum Íslands sé; Landráðavíkingar !
Axel Pétur Axelsson, 19.3.2010 kl. 18:16
Það er svona að upplifa NORRÆNA velferðastjórn....lol....skrímsladeild & spunameistar Samspillingarinnra & Lady GaGa fara ávalt á kostum, í NEIKVÆÐRI merkingu þess orðs. Samspillingin er stórhættuleg land & þjóð, verkstjórnin ávalt í molum - nú er mál að linni! Tek heilshugar undir þín orð: "Hvað er annað hægt að segja eftir þær hamfarir sem stjórnin hefur sýnt varðandi auknar álögur á almenning og síðan koma nýjar og nýjar leiðir til þess að reyna að ná auknum skatti af skítblönku fólkinu sem á skerinu býr."
kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)
Jakob Þór Haraldsson, 19.3.2010 kl. 18:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.