8.4.2009 | 16:24
Gjaldþrotin koma þó.
Já það má segja það að ekkert á að gera fyrir almenning nema að seinka gjaldþrotunum. Greiðslujöfnun er engin leið úr þessum ógöngum með gengislánin, staðan er svo alvarleg hjá þúsundum fjölskyldna að því verður vart lýst á prentuðu máli.
Við skulum athuga að gengið á eftir að falla all rosalega þegar höftin verða aflögð og gjaldeyrinn rennur úr landi vegna þessara blessuðu krónubréfa en ég hef enga trú á því að það takist að semja við eigendur krónubréfa þeir vilja ekki fjárfesta á íslandi.
Það er bara ein leið að mínu mati til þess að losa fólk undan gengislánunum er hún að þessum lánum verði breytt í krónur á sanngjörnu gengi og það sem allra fyrst áður en næsta gengishrun verður. Það sama á við um verðtryggð lán, endurskoðun á þessari blessuðu vísitölu strax og færa lánin aftur á vísitölu fyrir hrun.
Íbúðalán í greiðslujöfnun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
www.heimilin.is
Þórður Björn Sigurðsson, 8.4.2009 kl. 22:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.