29.11.2011 | 13:53
Segir kona sem hefur snúið baki við þjóðinni ásamt kolleggum sínum.
![]() |
Mikið áfall ef VG snýr baki við Jóni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.11.2011 | 11:07
Víða hægt að byggja golfvelli ef áhugi er fyrir hendi og leyfi fást.
Það er ekki sama hvar er sótt um leyfi, allavega færðu ekki leyfi á íslandi nema vera séra Jón úr réttum heimshluta, svona er nú alþjóðavæðingin á íslandi.
![]() |
Trump að klára besta golfvöll heims (myndskeið) |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.11.2011 | 08:47
Það eru því miður mörg mannréttindabrotin sem hafa verið framin hér á landi.
Ég man að ríkisstjórnin lét reikna út fyrir sig hver lágmarksframfærsla þarf að vera á Íslandi og voru þessar tölur opinberaðar að mig minnir snemma á þessu ári og var þar um upphæðir að ræða sem ekki þóknuðust tölu Jóhönnu eða rúmar 300.000 kr eftir skatta, pr einstakling til þess að geta lifað af mánuðinn mannsæmandi lífi og er þar miðað við einstakling í leiguíbúð.
Þessu plaggi var stungið í skúffuna og ekki hefur verið minnst á það síðan en haldið er áfram að troða á landsmönnum með alls kyns lækkunum og hækkunum.
Hér er stunduð í dag, óþverra pólítík þar sem hagsmunir fjármagsfyrirtækja taka öll fyrstu hundrað sætin.
![]() |
Ríkið hirðir alla launahækkun ellilífeyrisþega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.11.2011 | 09:11
Besta jólagjöfin í ár er " Ríkisstjórnin burt"
Handbendi vogunarsjóða er þetta fólk einnig og nú er líka komið í ljós að hér mega útlendingar helst ekki eiga viðskipti að undanskildun vogunarsjóðunum.
Við erum nú þegar komin út í horn og verður ekki bjargað þaðan af þessu fólki, það eitt er víst.
Gerið nú bara eitt fyrir fólkið í landinu, segir af ykkur strax.
![]() |
Segir stöðu sína sterka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.11.2011 | 18:22
Ekki lengur bjóðandi þetta stjórnarsamstarf.
Ekki kemur mér á óvart að fólk segi sig úr Samfylkingunni,hún svíkur öll sín loforð og er einungis eins og útspýtt hundskinn í höndum VG í dag, ég á við að það er einungis einn flokkur sem öllu stjórnar hér í dag.
Ég fer fram á það að þessi stjórn fari frá strax og skipuð verði utanþingsstjórn næstu 2 ár til þess að hægt sé að vinna að skuldavanda landsmanna og koma atvinnulífinu af stað en því miður þá minnkar áhugi erlendra fjárfesta hratt þessa daga að koma með fé hingað.
![]() |
Segir sig úr Samfylkingunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.11.2011 | 16:30
Felldu stjórnina Sigmundur, þá stöðvarðu hryðjuverkin.
![]() |
Brjáluð ákvörðun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þetta er gott dæmi um hvað Jóhanna og Steingrímur eru í litlum tengslum við fólkið, atvinnulífið og bara allt sem gerist í þessu þjóðfélagi, engin tengsl eru til staðar.
Það eru nokkrir dagar síðan Jóhanna og Steingrímur voru að dásama hvað allt væri á góðri leið og á sama tíma er þjóðfélagsumræðan um fyrirhugaðar fjöldauppsagnir og væntanlegar uppsagnir sem verða mjög miklar, það þarf bara að hlusta á fólk og það liggur alveg í loftinu að nokkur fyrirtæki munu leggja upp laupana á næstu vikum, eitt stórt fyrirtæki mun yfirtaka annað og við það eina dæmi munu sjálfsagt tugir manna missa vinnuna, þið getið í eyðurnar hvaða sameining það er.
Atvinnulífið á Íslandi hefur fengið hryðjuverkastjórn yfir sig, enda hér allt að hrynja en ekki á uppleið, það eru hreinar línur.
![]() |
Slæmar horfur í atvinnulífi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.11.2011 | 15:26
VG er alveg sama um lokun á Grundartanga, VG vill ekki atvinnu hér á landi.
![]() |
Hundruð myndu missa vinnuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.11.2011 | 10:16
Eftirstöðvar leyndra tilvonandi afskrifta upp á borðið strax. Fjölmiðlamál sem sefur.
Maður er auðvitað búin á fá sig fullsaddan að allri þeirri lýgi sem hefur viðgengist hér á landi að undanförnu í nánast öllu stjórnkerfinu. Það er að verða eðlilegt að halda sannleikanum frá almenningi og þetta hefur norræn velferðastjórn innleitt hér á landi.
Í DV í dag er listi yfir menn sem hafa fengið akskriftir sem eru svo háar upphæðir að maður fær nettan svima að sjá þetta á prenti en þetta eru staðreyndir og sönnun þess að þessi leið var valin í stað þess að taka á vandamálum fjölskyldna, því miður mínir kæru landar.
Nú hefur Jóhanna Sigurðardóttir sagt að ekkert frekara verði gert fyrir heimilin þrátt fyrir að nú er hættulegasti hópurinn að komast í veruleg vandræði það eru þeir sem hafa þokkalegar tekjur þegar vinnu er að hafa en búa í yfirveðsettu húsnæði og fá enga niðurfellingu vegna þess að þeirra lán eru hjá íbúðarlánasjóði og þar gilda önnur lög en tildæmis hjá Landsbankanum.
Ég þekki marga sem eru í þessari stöðu. Það sem er alvarlegt við þessa stöðu er að flestir í þessum hópi sem eru trúlega nokkur þúsund fjölskyldur munu trúlega velja gjaldþrotaleiðina og hvers vegna, jú vegna þess að þetta fólk þarf að velja á milli þess að semja um að binda sig ævinlangt við skuldirnar á íbúðinni sem hækka vel um þessar mundir eða að fara í gjaldþrot og byrjað upp á nýtt eftir tvö ár og þá allavega skuldlaus, er þetta einhver spurning?
Það verða gríðarlegar afskriftir vegna þessa og það hljóta að vera til áætlanir hjá hinu opinbera eða hjá (hinu leynda) hverjar þessar afskriftir geta orðið, allavega einhverjir tugir miljarða og síðan er það stóri pakkinn sem engin vill tala um sem er einnig að mesti leiti á Íbúðarlánasjóði, það eru öll húsnæðissamvinnufélögin félög sem leiga úr samkvæmt búseturéttarákvæðum, já þarna erum við að tala um þúsundir íbúða sem félögin leiga út en eru allar með tölu með stökkbreitt lán sem verður að afskrifa um gríðarlegar fjárhæðir til þess að félögin geti lifað. Sumir segja að þau geti bara farið á hausinn ef þau standa svona illa en þá stendur eftir búseturéttur þúsunda manna sem er í uppnámi og ekki væri það til að bæta stöðu fjölskyldna að tapa þeim rétti sínum.
Fjölmiðlar verða að taka sér tak og fara ofan í þetta mál og fá upp á yfirboðið hvað er að gerast á þessum vígstöðvum því ef íbúðarlánasjóðir þarf að afskrifa segjum 100 milljarða í heildina vegna þeirra málaflokka sem ég hef rætt hér, þá þarf sjóðurinn helling af fé frá ríkinu sem er ekki til. Staða ríkissjóðs er ekki rétt nema öll þessu mál séu opinber.
Þeir sem til þekkja komi þessu rétta boðleið til fjölmiðla, takk.
8.11.2011 | 15:57
Ögmundur virðist óhæfur til þess að gegna ráðherrastarfi.
![]() |
Sporin hræða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |