Mótmælasvelti er vissulega sorglegt, svona er ísland í dag.

Maður fær bara hroll af því að lesa um þetta mál og það sem verra er að þúsundir Íslendinga lifa við ófullnægjandi þjónustu eftir að vinstri stjórnin komst að.
mbl.is Sorglegt að fara þurfi þessa leið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimilin í vondum málum samkvæmt könnun Hagstofunnar.

Það eru mjög fróðleg skrif í DV í dag þar sem er vitnað í könnum Hagstofunnar um stöðu heimilanna í dag og þar sýnir hvað staðan er í raun erfið, allavega mikið verri en ríkisstjórnin heldur.

Heimili sem eiga efitt með að ná endum saman hefur fjölgað úr 33.100 í 62.600 eða tvöföldum frá hruni.

Endilega lesið þessa frétt og sjáið þann mikla árangur sem ríkisstjórnin hefur náð með heimilin á sama tíma og fjármálastofnanir skila tuga milljarða hagnaði.

Þetta er réttlætið.


Skelfilegar fréttir að Hreyfingin skuli íhuga að styðja þá óstjórn sem verið hefur.

Bara fá orð, ef Hreyfingin gengur inn og styrkir þessa stjórn má stimpla hana sem landráðafólk sem stuðlar að því að halda almenning áfram í gíslingu fátæktar og skattpíningar.
mbl.is Breytingar á ríkisstjórninni ræddar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Takk fyrir árið kæru bloggarar, og hafið það sem best um áramótin.

Ég vildi bara þakka ykkur skoðanaskiptin á árinu en því miður þá er það nú svo að mjög margt þarflegt kemur fram á blog.is sem hinir ýmsu háu herrar og dömur þyrftu að lesa til þess að komast í takt við þjóðfélagið.

Íslendingar eiga skilið að stjórnvöld hlusti á þá og forgangsraði eftir efnum til þess að það mannlega fái að blómstra en ekki einhverjir draummórar einstakra embættismanna sem hafa vald til þess að láta sitt blómstra en gleymir öllum hinum sem þurfa að blómstra líka, fátækt á ekki að líðast á íslandi í þeim mæli sem hún er og þar þarf að lyfta grettistaki.

Ég vona bara að næsta ár verði ár fólksins sem á landinu býr, alls fólksins, enga mismunun og sátt verður að nást um hin ýmsu mál.


Seðlabanlastjóri ekki í neinum tengslum við þjóðfélagið.

Þetta er alveg hreint með ólíkindum hvernig seðlabankastjóri talar og er það alveg ótrúlega mikið í takt við Steina og Jójó sem alltaf eru að tala um að hér sé allt á réttri leið. Á sama tíma er verið að segja upp gríðarlegum fjölda fólks og búið að tilkynna frekari uppsagnir hjá fullt af fyrirtækjum. Iðnaðarmenn í Reykjavík hafa nú ekki góðar sögur að segja af því sem framundan er og fara þeir í hópum þessar vikurnar á atvinnuleysisbætur.
Hérna er ekki allt á uppleið og ráðamenn verða að fara að sætta sig við að sannleikurinn er sagna bestur, það er alveg eins gott og segja bara eins og er, okkur hefur mistekist ætlunarverk okkar að koma atvinnulífinu af stað til þess að efla tekjustofn ríkisins og er því komið að leiðarlokum hjá þessari stjórn, það er þó heiðarlegt.
mbl.is Fjármálakerfið hefur styrkst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt á uppleið en samt aukið atvinnuleysi???

Steini og Jójó eru enn einu sinni að verða vör við að stefna þeirra gengur ekki upp en nú er svo komið að þau ættu að sjá að þetta mistókst sem þau hafa verið að reyna. Að skattleggja fólk og fyrirtæki til þess að halda uppi ríkissjóði gengur bara ekki upp, ef afla þarf tekna verða þær að koma frá atvinnulífinu, annað er ekki mögulegt eins og allir sjá, afturhaldið er að hruni komið og nú skulum við kjósa jafnarmannastjórn sem vill fara millileiðina í efnahagsstjórn en ekki gjörsamlega lengst út í horn til vinstri eins og nú er. En förum ekki þá leið að kjósa samtýning í kring um Guðmund Steingrímsson ESB sinna, það hefur aldrei skilað sér þessi nýju framboð.
mbl.is Fjárhagsleg áhrif óljós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hundruðum miljóna fórnað í ekkert, í óþökk meirihluta landsmanna.

ESB stefnir hratt í að leysast upp í tóma vitleysu og Jóhanna þumbast áfram að eyða þeim litlu peningum sem ríkissjóður hefur til ráðstöfunar, hundruðir miljóna eiga eftir að fara í þetta rugl og hundruðum miljóna hefur þegar verið eitt. Það verður að stöðva þetta bruðl strax.
mbl.is „Erfið en góð ákvörðun"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ögmundur var þá vanhæfur til þess að taka ákvörðun.

Ég bloggaði þann 8. nóvember þess efnis að Ögmundur væri vanhæfur til þess að fara með þetta mál og var það vegna þess að hann tók einhliða ákvörðun án þess að taka tillit til hagsmuna þjóðarinnar. Ég er ekkert endilega að segja að hann hafi átt að segja já strax, það sem ég vildi sjá var fagleg vinnubrögð og viðræður manna á milli hvort þetta er eitthvað sem væri hægt að semja um þannig að sátt sé um málið. Þetta sýnir líka mjög glöggt hvað stjórnarflokkarnir tveir eru ósamstíga í öllum málefnum og er það næg ástæða til þess að stíga til hliðar.
mbl.is Stjórnvöld í viðræðum við Nubo
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin af stjórnarliðum er ómissandi, segið af ykkur öll sem eitt.

Jón ekki ómissandi segir Ólína sem er hvað hörðust í því að eyðileggja gott fiskveiðikerfi, sem hægt er að bæta með viðræðum við hagsmunaaðila en ekki einhliða laga og reglugerðabreytingum.

Þið eruð öll missandi hvað alþjóð varðar svo það er best að þið segið af ykkur hið allra fyrsta svo þjóðin geti kosið það fólk sem það vill hafa við stjórn.


mbl.is Fráleitt að Jón sé ómissandi segir Ólína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forseti vor, landið er stjórnlaust. Hjálp.

Maður er bara orðin orðlaus að horfa upp á þennan skrípaleik hjá stjórnarflokkunum, átök um völd og sæti og landið er stjórnlaust.
Nei, nú er nóg komið og ég kalla eftir forseta vorum og grípa inn í þetta rugl og leysa stjórnina frá völdum og skipa utanþingstjórn strax. Þú ert sá eini sem hefur gert eitthvað af viti í landsmálunum síðan eftir hrun og við treystum á þig og koma landinu undir stjórn ábyrgra aðila.
mbl.is „Þjóðin veit fyrir hvað ég stend“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband