Nú erum við á hálum ís íslendingar, þarf ekki að ræða svona stórmál áður en því er klúðrað?

Ég hef nú áður bloggað mínar skoðanir á kvótamálum án þess að vera útgerðarmaður og eru þær alveg óbreittar og finnst mér afskaplega illa staðið að lagabreytingum einhliða frá hendi ríkisstjórnar, hvaða pælingar liggja þarna á bakvið er stjórnin að reyna að fela sína verkleysu á öllum öðrum sviðum því VG var með einhverjar hugmyndir að breyta kvótakerfinu? Þetta er þvílík fásinna og illa staðið að þessu að stórskaði á eftir að hljótast af, við erum að ræða stærstu útflutningsgrein okkar, skiptir hún svona litlu máli að hægt sé að fúska með málið og koma öllu í bál og brand í stað þess að reyna að ná sátt um breytingar á kerfinu við þá menn sem hafa veiði reynsluna sem ég er handviss um að hægt er að ná. Það er strax farið að draga saman seglin í fiskvinnsluhúsum eins og Dalvík og hvað þýðir það, ríkið þarf að greiða hærri atvinnuleysisbætur og svo koll af kolli allt fer í rúst vegna ofstjórnar VG í þessu máli. Við skulum aðeins fara okkur hægar í þessu máli og ekki dæma kerfið og halda að við fáum pening beint í ríkiskassann bara ef kerfinu er breitt, nei það eru tugur atriða sem þarf að útfæra mjög vandlega áður en sátt næst um breytingar á kerfinu, það er besta leiðin fyrir íslendinga að mínu mati. Það er ekki allt eins slæmt og ríkisstjórnin okkar ekki einu sinni kvótakerfið.

Að lokum, til hamingju ríkisstjórn af hafa rústað stöðugleikasáttmálanum.


mbl.is Vilja að skötuselslög verði afnumin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórnin týndist og stjórnarandstaðan geltir, smellpassar við fréttina er það ekki annars?

Það fyrsta sem mér datt í hug er ég sá þessa frétt um verkefni Selfossslögreglunnar sem voru af ýmsum toga eins og lesa má en er þetta ekki málið að stjórnin er bara týnd og afgangurinn geltir á þingi án þess að nokkuð gerist í þjóðmálunum. Kannski við ættum að byðja Selfosslögregluna að leita uppi ríkisstjórnina.
mbl.is Hæna týndist og hundur gelti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reynið nú að skilja að þetta er ekki hernaður.

VG sér ekkert nema hernað í þessu dæmi en þarna er um að ræða fyrirtæki sem leigir út þotur og er ekki í hernaði. Það er bara alveg sama hvaða atvinnutækifæri koma hér upp þá er VG á móti eins og sést best á atvinnustiginu í landinu.
mbl.is Hafna algerlega her í Keflavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fiskvinnsluhús loka, þetta er allt að koma hjá VG að slátra frystihúsunum líka.

Allt á réttri leið hjá VG og SF, slátra á öllum atvinnugreinum landsins. 
mbl.is Óttast kvótaskort og stöðvun í fiskvinnslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki ríkisstjórnin orðin að fjárglæfrafólki? Tekin við af víkingunum?

Ég get bara ekki séð betur en að það sé alveg hægt að heimfæra það á ríkisstjórn íslands að hún sé samsafn af fjárglæframönnum. Hvað er annað hægt að segja eftir þær hamfarir sem stjórnin hefur sýnt varðandi auknar álögur á almenning og síðan koma nýjar og nýjar leiðir til þess að reyna að ná auknum skatti af skítblönku fólkinu sem á skerinu býr. Ég bara spyr hvort þetta sé bjóðandi þjóð eins og íslandi því það eru til aðrar leiðir sem ekki hefur verið litið á hjá þessari stjórn, eins og td. að afla tekna með fjárfestingum og aukinni atvinnu en stjórnin stendur í vegi fyrir öllum framförum. Þetta gengur ekki við þurfum aðrar áherslur.
mbl.is Nægir ekki til að lina þjáningar heimilanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veruleikaskert fólk við stjórn hér á landi. Skattar á afskriftir.

Maður er eiginlega bara orðlaus yfir þessu útspili og gerir sér ekki grein fyrir hvað er verið að fara. Við erum að tala um venjulegt fólk sem verður fyrir stökkbreittum hækkunum á lánum vegna stjórnvaldsmistaka og vegna þess er fólki hefnt ef það fær einhvern hluta af hækkununum felldan niður. Það er það sem ég segi, þessi stjórn hefur gefist upp og á að blása til fréttamannafundar klukkan 12,00 í dag og segja af sér, þetta hreinlega er ekki hægt lengur.

Mér datt nú í hug ákveðin maður sem ekki var með lýðræðislegar hvatir á sínum tíma þegar ég sé myndina af Steingrími með þessari frétt?


mbl.is Afskriftir verða skattlagðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VG úr ríkisstjórn strax, við þurfum störf, strax.

Þetta gengur ekki lengur þessi þröngsýna skoðun VG fólks á landinu, því er eina leiðin að koma þessum flokki úr ríkisstjórn og þar verður hann ekki næstu 200 árin eftir þetta ömurlega ár sem hann hefur verið í stjórn ef stjórn má kalla.
mbl.is VG hafnar alfarið einkaflugher
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Því miður virkjunin verður ekki stækkuð, VG sér fyrir því. Gæti skapað atvinnu.

Ég bíð bara eftir fréttinni frá Svandísi Svavasdóttur þegar hún fer að blanda sér í málið en 99% líkur hljóta að vera á því að hún stöðvi fyrirhugaðar framkvæmdir.

VG fólk verðum við að senda til fjalla að týna fjallagrös, allt eins og það leggur sig og það má vel vera að einhverjarar tekjur sé hægt að hafa af því en við getum ekki lengur látið VG stöðva allar framkvæmdir á landinu, það er meira að segja verið að stöðva framkvæmdir sem eru komnar af stað og síðan það nýjasta með þetta þotuleigufyrirtæki í Keflavík sem áætlar að framkvæma fyrir gríðarlegar fjárhæðir og skapa helling af störfum. Þetta er vopnalaust fyrirtæki og hvers vegna ættum við ekki vilja fá þetta hingað í stað þess að þessar höfuðstöðvar verði settar upp í öðru landi því til góðs og við sitjum áfram í algjöru vonleysi með VG stjórn sem vill ekki skapa störf.


mbl.is Mjólkárvirkjun ekki í umhverfismat
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ASÍ hefur nú ekki verið almenning hliðhollt að undaförnu Gylfi minn.

Já Gylfi Arnbjörnsson er bara svona ansk... ánægður með gerviaðgerðapakkann og ég held jafnvel að hann trúi að stjórnin eigi eftir að gera eitthvað í þessum hugargælun sínum.

Alltaf bjarsýnn hann Gylfi ASÍ.


mbl.is Langt gengið eða skammt?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er logið og logið og logið af okkur eins og Laddi hefði sagt.

Mig grunaði að þetta væri allt eitt alsherjarrugl hjá stjórninni eins og á eftir að koma betur í ljós en til að byrja með. Draga úr vægi verðtryggingar, tókuð þið eftir í Kastljósi í kvöld hvert svarið var frá Samfylkingarmanneskju sem ég vil ekki vita hvað heitir, nú auðvitað að auka framboð á óverðtryggðum okurlánum, andskotans lygarugl er hérna í gangi, það er bara ekki hægt að orða þetta öðruvísi.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband