Er Redknapp að verða tæpur og kannski landsliðið efst í huga???

Sem gamall Tottenham aðdándi er ég að sjálfsögðu hrikalega fúll að við skulum aðeins hafa unnið einn leik af síðust átta leikjum er skelfileg frammistaða.
Þegar maður horfir á leik liðsins í dag miðað við fyrir áramót þá er eins og annað lið sé inn á vellinum, allavega ekki betra lið en Norwich í gær.
Eitt hefur vakið athygli mína hjá Redknapp og er ég þá að tala um liðsuppstillingar sem eru oft mjög furðulegar og hann virðist stundum telja sig hafa efni á því að venmeta andstæðingana og í staðinn ganga þeir á lagið og leggja okkur að velli. Sem dæmi úr leiknum í gær þá stillti hann grútmáttlausum King í miðvarðastöðu en maðurinn er greinilega ekki heill og er allur skakkur og þreyttur en þetta er gert á sama tíma og Gallas er búin að sína 3 mjög góða leiki í röð. Svo má nefna þessar róteringar í miðjum leik með Bale á milli kanta eins og með Lennon. Það er margt að hjá þessu liði í dag og er það bara mín skoðun að Harry Redknapp eigi að taka landsliðið og Tottenham að fá alvöru þjálfara sem heimtar árangur og skilar honum. Ég spái að Tottenham lendi í 6 til 7 sæti í deildinni en gætu rifið sig upp í bikarnum og unnið hann.
mbl.is Redknapp: Þeir áttu þetta skilið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn eru landsleikir í ruglaðri útsendingu, hvar er lagasetning menntamálaráðherra???

Mér er bara spurn hvar lagasetning á að bannað sé að rugla sjónvarpsútesndingar á landsleikjum hjá íslenskum landsliðum.
Þegar þessi stjórn komst að var þetta sterktí umræðunni og man ég að Katrín Jakobsdóttir sagðist ætla a beita sér í þessu máli og það væri í raun ekki flókið því norðmenn séu með þannig lög sem standa.
Er þetta bara enn eitt af málefnum þessarar ríkisstjórnar sem dalar uppi??

mbl.is Íslenska landsliðið á Ólympíuleikana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tæplega 1000 íbúðir standa lausar á meðan bráðvantar eignir á leigumarkaðinn.

Það er búið að tala um það í eitt til tvö ár að breita lögum þannig að Íbúðarlánasjóður geti leigt út eignir í meira mæli en gert er en eins og allt annað hjá þessari kommúnista ríkisstjórn þá gerist ekki neitt, ekkert.

Ég heyrði um daginn að það vantaði ca 1000 íbúðir á Reykjarvíkursvæðið og þarna standa íbúðir tómar sem eru í eigu fjármálastofnana og Íbúðarlánasjóðs og við almenningur greiðum allan kostnað við að halda þeim eignum í lagi, hita, rafmagn, vaxtakostnað, tryggingar, fasteignagjöld og fl. Það vita allir að allur svona kostnaður lendir alltaf að lokum á almenningi, þarf ekki að deila um það.

Það er vitað að markaðurinn virkar þannig að ef framboðið eykst hratt þá lækkar leigan og er það ekki akkúrat það sem þarf að gerast í dag að leiga verði eðlileg miðað við kaupmátt almennings? Það er að mínu mati með ráðum gert að halda þessum eignum auðum til þess að halda uppi leiguverðinu í stað þess að reikna dæmið til lengri tíma litið og þá myndu allir græða á þessu, almenningur, fjármálastofnanir og ríkiskassinn líka vegna þess að fólk hefði aðeins meiri pening til afnota sem færi í neyslu og vanskil húsaleigu yrðu miklu minni.
Þarf ekki svona einu sinni til tilbreytingar að hugsa um fólkið í landinu í fyrsta sæti?


mbl.is 7,6% lántaka í vanskilum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samtök fólksins HH berjast áfram, eitthvað sem veitir bjartsýni.

Ég var einn að þeim sem skráði sig strax í Hagsmunasamtök heimilanna og þau urðu til, því með þessa ríkisstjórn er ekki von um neitt sem heitir réttlæti og því ættu allir landsmenn að skrá sig í samtökin og efla þau fjárhagslega með temmilegum árgjaldi, ég greiddi valfrjálsan seðil frá samtökunum að upphæð 1.500 kr sem er hverrar krónu virði miðað við tilgang samtakanna.

Koma svo, allir að skrá sig, það kostar ekki neitt.


mbl.is Undirbúa lögsókn gegn verðtryggingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sé ekki betur en VG sé á sömu leið og kannski lenda þeir fyrir Landsdómi??

Það er alveg ótrúlegt að VG maður skuli tala svona þar sem hans eigin flokkur er á leiðinni til fjandans með þessa þjóð og ekki er hægt að kenna hruninu um allt. Það er forgangsröðunin sem er alveg skelfileg hjá þessari ríkisstjórn VG manna.
Fyrst voru það bankarnir sem voru allt í einu orðnir bestu vinir Steingríms.

Síðan er kastað eins miklum peningum og mögulegt er til þess að sækja um inngöngu í fallandi ESB og segja sögur að bæði þjóðverjara og frakkar verði búnir að leggja evrunni innan 2 ára og hvað þá?

Svo er það Landsdómur, moka peningun í þann skrípaleik. Það er ekkert sem bendir til að Geir fái dóm í þessi máli, ekkert. Það eru 15 dómarar í þessu máli og hver og einn þeirra fær 900.000 á mánuði í þrjá mánuði eða samtals 40.500.000 bara í laun og á örugglega eftir að falla til annað eins í þessu skrípa máli eða miklu meira.

Svona má lengi telja VG er á móti fólki og atvinnu. Björn Valur ætti að líta í eigi barm áður en svona talsmáti er notaður í okkar alþingi sem hefur nánast ekkert traust frá þjóðinni í dag.


mbl.is „Ósmekklegasta ræðan á Alþingi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hún sem var formaður viðskiptanefndar en man ekki neitt?

Það er alveg á tandurhreinu að hún var vöruð við þar sem hún sat fund með Davíð þar sem hann kom inn á að staða bankanna væri orðin tæp, hún hefur ekki mikið verið að hugsa um vinnuna meðan á fundinum stóð.
mbl.is Davíð átti að vara okkur við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gegnsæi og allt upp á borðinu en ekki Landsdómur?

Þetta er lýsandi fyrir ríkistjórnina að vera að læðupúkast og passa að almenningur hafi sem mynstan aðgang að því sem er að gerast á landinu.
Auðvitað átti að sýna beint frá réttarhöldunum, hverju er eiginlega verið að leyna?
mbl.is Hefði átt að sýna réttarhöldin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er betra að ná verðbólgu niður fyrst.

Yfirlýsingar VG eru ekki neitt til að taka mark á því verðbólga er langt yfir því sem lagt var upp með og flokkurinn hefur svikið öll sín kosningarloforð hingar til.
mbl.is VG vill afnema verðtryggingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur hefur ekki enn séð hvað olli hruninu, ótrúlegt en satt.

Steingrímur hefur enn ekki áttað sig á að það voru tilbúnir peningar úr lofti sem sköpuðu þessar miklu skuldir eða afleiðingar lána sem hækkuðu langt fram úr því sem raunhæft var og fullt af þessum lánum voru og eru ólögleg.
Þetta er í raun sorglegt að hann skuli halda að almenningur trúi þessi rugli og nefna einhverjar stjarnfræðilegar upphæðir sem voru afskrifaðar, lánin einfaldlega voru leiðrétt eða réttast sagt sum lánin en ekki er búið að taka á vertryggingarhækkunun lána sem voru líka afleiðing þessa að verið var að leika sér með að búa til peningaupphæðir á pappírum en ekki í raun.
Ég segi enn og aftur, þessi stjórn hefur ekki sýnt á neinn hátt að hún ráði við eitt né neitt hér á landi og hún eigi að víkja og það strax til þess að ekki verði frekara tjón af störfum hennar og nú er tildæmis verið að leika sér að breytingu á stjórnarskránni sjálfri á einhverjum methraða, mál sem ætti að taka mörg ár í vinnslu.
mbl.is 200 milljarðar afskrifaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er komið nóg blessaða ríkisstjórn, víkið úr fúlum sætum ykkar.

Enn eitt klúðrið er komið í ljós hjá þessari blessuðu norrænu velferðastjórn sem hefur sett flest heimili í landinu á hausinn.
Hvað kemur næst?
Þetta er ekki bjóðandi lengur að hafa landið algjörlega stjórnlaust eins og kom skýrt og greinilega fram á viðskiptaþingi í dag, stjórn sem er ekki í takt við þjóðfélagið er hættuleg og gerir ekkert nema ógagn, því fer ég fram á að það verði kosið hið fyrsta.

mbl.is Sigmundur: Hæstiréttur dæmir ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband