2.2.2012 | 15:05
Kreppan varir á meðan þessir flokkar stjórna.
Þessi stjórn hefur aldrei hlustað á raddir fólksins enda skiptum við ekki máli.
Ríkisstjórnin, þessi eina sanna vinstri stórn sem maður hélt að ætlaði að vinna með fólkinu heldur uppi atvinnuleysi og þar með áframhaldandi kreppu.
Er eitthvað óeðlilegt að fólk sé svartsýnt og neikvætt við þessar aðstæður, ég bara spyr?
![]() |
Þjóðin hefur ekki jafnað sig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.1.2012 | 17:12
svartnættið heldur áfram í rúmt ár, því miður.
Maður hélt nú í vonina að Samfylkingim væri að hrynja en þegar einhver er við stjórn sem minnir á Hitler þá er ekki annað hægt en að láta í minni pokann og halda þessu rugli áfram.
Þetta er í raun ótrúlegt, Árni Páll er útskúfaður og ónýtur pólítíkus héðan í frá en hans fólk viðist ekki styðja hann og svona er þetta bara.
![]() |
Tillaga um landsfund dregin til baka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.1.2012 | 10:37
Þorramaturinn hækkaði um tæp 54% á einu ári. Kaupmáttur eykst?
Ég verð bara að koma með þetta innlegg þegar maður sér því fleygt fram að kaupmáttur sé að aukast en eins og almenningur hefur fundið fyrir þá hefur allt hækkað langt umfram kauphækkanir undanfarna mánuði. Getur þá staðist að kaupmáttur launa hækki á sama tíma?
Ég er í smá hóp sem heldur þorrablót árlega og er um að ræða 10 manns og hef ég haft þá reglu að að halda utan um það magn sem til þarf þar sem ég sé um innkaupin og hef ég haldið utan um kostnaðinn líka.
Árið 2010 kostaði pakkinn 18.352. Árið 2011 kostaði sama magn 18.879 og nú árið 2012 kostaði sama magn 28.758 eða tæp 54% hækkun á milli ára.
Þarf fleiri orð um að kaupmáttartölur séu bara rugl og standast ekki?
![]() |
Kaupmáttur launa hefur hækkað um 3,7% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.1.2012 | 21:49
Aðför að lýðræði.
![]() |
Frávísunartillaga lögð fram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.1.2012 | 14:38
Jóhanna getur treyst því að ég krossa við NEI eins og meirihluti þjóðarinnar mun gera.
![]() |
Ég treysti þjóðinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.1.2012 | 14:32
Mennta fólk til þess að það geti unnið erlendis?
Er þá ekki markmiðið að nota skattpeninga almennings til þess að mennta fólk svo það geti fengið góð störf erlendis, ég sé ekki betur en svo sé.
![]() |
Misskildasta ríkisstjórn sögunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.1.2012 | 10:42
Öll félög leggi fram kröfu að vanefndastjórnin fari frá völdum.
Mér finnst persónulega ekki skynsamlegt að segja upp samningum en ef öll félög landsins sem komu að samningaborðinu leggja fram kröfu þess efnis að þessi ríkisstjórn fjármálafyrirtækja fari frá völdum strax og boðað verði til kosninga án tafar sé sterkasta leiðin. Ef stjórnin ætlar sér að sitja áfram þrátt fyrir að öll helstu verkalýðsfélög landsins hafi lagt til að hún færi frá völdum þá verða þessi félög að fara fram á að fjöldamótmæli fari fram á Austurvelli.
Ef þessi leið er farin þá er það allavega leið almennings og lýðræðis sem hefur nú ekki verið mikið um undanfarið, allar aðgerðir og leiðir sem farnar hafa verið eru á móti almenning og við það verður ekki unað lengur.
Verkalýðsfulltrúar, sýnið nú hvað í ykkur býr og stöðvið þessa stjórn vanefnda.
![]() |
Íhuga uppsögn samninga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.1.2012 | 18:05
Verið að rústa landsbyggðinni en hvar er verið að hagræða?
Það er alveg sama hvar er borið niður, alltaf skal landsbyggðin verða fyrir barðinu ef talað er um niðurskurð hjá hinu opinbera og svo má líka nefna stórhækkaðan flutningskostnað til landsbyggðarinnar sem er að veltast út í verðlagið, hvar eru þessar umtöluðu aðgerðir til flutningsjöfnuðar?
Það er víða á höfuðborgarsvæðinu sem má taka til og hagræða, ég vil nefna tildæmis Hagstofuna, hvar er hún til húsa, jú auðvitað í einni dýrustu götu landsins í Borgartúni en hvað er Hagstofan að gera í Borgartúni? Hvers vegna er hún ekki í ódýrara húsnæði? Vegagerðin, íbúðarlánasjóður, Ríkiskaup, Fasteignamat ríkisins og svona má lengi telja upp ríkisfyrirtæki sem eru með dýra staðsetningu miðað við þá starfssemi sem þar fer fram.
Ég myndi ætla að það mætti spara mikla fjármuni að taka aðeins til í þessum efnum en það má víða bera niður í dýrum ríkisrekstri á Íslandi, stjórnkerfið tekur bara ekki á vandanum, inn í kjarnanum sem er óþarft umfang ríkisrekstrar.
Ef tekið væri á þessum málum með festu þá þarf ekki ávallt að láta landsbyggðina verða verst úti vegna niðurskurðar. Það er tildæmis mun hagstæðari húsnæðiskostur fyrir margar ríkisstofnanir á landsbyggðinni frekar en á höfuðborgarsvæðinu.
![]() |
Opinberum störfum fækkar á landsbyggðinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.1.2012 | 09:23
Ekkert undarlegt við landflóttann og hann á eftir að aukast.
Fólk þarf ekkert að vera hissa þótt landflótti sé í hámarki þessi misserin á íslandi. Hér er bara sú staða að ekkert hefur gengið upp til þess að koma landinu upp úr kreppunni, ég hlusta ekki á neinar lygar lengur um hagvöxt og að allt sé á góðri leið hérna, hagvöxtur er vegna þess að fólk hefur verið að eyða sparnaði sínum og nú fer hann að klárast og hvað þá.
Það er verið að fara sömu fúlu leiðina hér eins og alltaf hefur verið, hækkanir, hækkanir og hækkanir sem fara út í verðlagið og hækkar lán landsmanna, sama leiðin og það segir okkur að hér hefur ekki orðið nein breyting, allt er við sama heygarðshornið. Spilling hefur aukist alveg gríðarlega eftir að þessi stjórn komst að og valdapólíkin er að tröllríða öllu um þessar mundir, það er ekki verið að hugsa um líðan þjóðarinnar, það er verið að hugsa um að halda í völd, sama hvað það kostar, völdum skal haldið.
Maður er búin að blogga svo mikið um þetta allt saman og hefur mikið af því sem maður var hræddur um að myndi gerast hér á landi því miður gerst og yfirgangur stjórnarinnar í garð almennings er loksins orðin gegnsær, okkur skal troðið inn í ESB sama þótt stór meirihluti þjóðarinnar sé á móti því og mun verða á móti því.
![]() |
Landflótti áfellisdómur yfir ríkisstjórninni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.1.2012 | 13:58
Afleiðing ofsköttunar.
![]() |
Ekki minni umferð frá 2005 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |