Færsluflokkur: Bloggar

Ekki lengur bjóðandi þetta stjórnarsamstarf.

Ekki kemur mér á óvart að fólk segi sig úr Samfylkingunni,hún svíkur öll sín loforð og er einungis eins og útspýtt hundskinn í höndum VG í dag, ég á við að það er einungis einn flokkur sem öllu stjórnar hér í dag.

Ég fer fram á það að þessi stjórn fari frá strax og skipuð verði utanþingsstjórn næstu 2 ár til þess að hægt sé að vinna að skuldavanda landsmanna og koma atvinnulífinu af stað en því miður þá minnkar áhugi erlendra fjárfesta hratt þessa daga að koma með fé hingað.


mbl.is Segir sig úr Samfylkingunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Felldu stjórnina Sigmundur, þá stöðvarðu hryðjuverkin.

Jæja Sigmundur Ernir, sýndu nú hvað í þér býr og fáðu nokkra stjórnarþingmenn til þess að fella þessa hryðjuverkastjórn, strax.
mbl.is Brjáluð ákvörðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verið að rústa atvinnulífinu og gengur vel. Allt á góðri leið að sögn Jóhönnu?

Þetta er gott dæmi um hvað Jóhanna og Steingrímur eru í litlum tengslum við fólkið, atvinnulífið og bara allt sem gerist í þessu þjóðfélagi, engin tengsl eru til staðar.

Það eru nokkrir dagar síðan Jóhanna og Steingrímur voru að dásama hvað allt væri á góðri leið og á sama tíma er þjóðfélagsumræðan um fyrirhugaðar fjöldauppsagnir og væntanlegar uppsagnir sem verða mjög miklar, það þarf bara að hlusta á fólk og það liggur alveg í loftinu að nokkur fyrirtæki munu leggja upp laupana á næstu vikum, eitt stórt fyrirtæki mun yfirtaka annað og við það eina dæmi munu sjálfsagt tugir manna missa vinnuna, þið getið í eyðurnar hvaða sameining það er.

Atvinnulífið á Íslandi hefur fengið hryðjuverkastjórn yfir sig, enda hér allt að hrynja en ekki á uppleið, það eru hreinar línur.


mbl.is Slæmar horfur í atvinnulífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VG er alveg sama um lokun á Grundartanga, VG vill ekki atvinnu hér á landi.

Vg er alveg að ná því að skattleggja okkur út af kortinu í viðskiptum við umheiminn, alveg sama hvort "eitthvað annað" bjóðist þá neita þeir því samt sem áður. Ég skil ekki hvernig ríkissjóður skrimtir án þess að fá aðrar tekjur en skattlagningu á eignalausan almenning, kannski er hann bara á hausnum hvort eð er og komin uppgjöf í stjórnina?
mbl.is Hundruð myndu missa vinnuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eftirstöðvar leyndra tilvonandi afskrifta upp á borðið strax. Fjölmiðlamál sem sefur.

Maður er auðvitað búin á fá sig fullsaddan að allri þeirri lýgi sem hefur viðgengist hér á landi að undanförnu í nánast öllu stjórnkerfinu. Það er að verða eðlilegt að halda sannleikanum frá almenningi og þetta hefur norræn velferðastjórn innleitt hér á landi.

Í DV í dag er listi yfir menn sem hafa fengið akskriftir sem eru svo háar upphæðir að maður fær nettan svima að sjá þetta á prenti en þetta eru staðreyndir og sönnun þess að þessi leið var valin í stað þess að taka á vandamálum fjölskyldna, því miður mínir kæru landar.

Nú hefur Jóhanna Sigurðardóttir sagt að ekkert frekara verði gert fyrir heimilin þrátt fyrir að nú er hættulegasti hópurinn að komast í veruleg vandræði það eru þeir sem hafa þokkalegar tekjur þegar vinnu er að hafa en búa í yfirveðsettu húsnæði og fá enga niðurfellingu vegna þess að þeirra lán eru hjá íbúðarlánasjóði og þar gilda önnur lög en tildæmis hjá Landsbankanum.

Ég þekki marga sem eru í þessari stöðu. Það sem er alvarlegt við þessa stöðu er að flestir í þessum hópi sem eru trúlega nokkur þúsund fjölskyldur munu trúlega velja gjaldþrotaleiðina og hvers vegna, jú vegna þess að þetta fólk þarf að velja á milli þess að semja um að binda sig ævinlangt við skuldirnar á íbúðinni sem hækka vel um þessar mundir eða að fara í gjaldþrot og byrjað upp á nýtt eftir tvö ár og þá allavega skuldlaus, er þetta einhver spurning?

Það verða gríðarlegar afskriftir vegna þessa og það hljóta að vera til áætlanir hjá hinu opinbera eða hjá (hinu leynda) hverjar þessar afskriftir geta orðið, allavega einhverjir tugir miljarða og síðan er það stóri pakkinn sem engin vill tala um sem er einnig að mesti leiti á Íbúðarlánasjóði, það eru öll húsnæðissamvinnufélögin félög sem leiga úr samkvæmt búseturéttarákvæðum, já þarna erum við að tala um þúsundir íbúða sem félögin leiga út en eru allar með tölu með stökkbreitt lán sem verður að afskrifa um gríðarlegar fjárhæðir til þess að félögin geti lifað. Sumir segja að þau geti bara farið á hausinn ef þau standa svona illa en þá stendur eftir búseturéttur þúsunda manna sem er í uppnámi og ekki væri það til að bæta stöðu fjölskyldna að tapa þeim rétti sínum.

Fjölmiðlar verða að taka sér tak og fara ofan í þetta mál og fá upp á yfirboðið hvað er að gerast á þessum vígstöðvum því ef íbúðarlánasjóðir þarf að afskrifa segjum 100 milljarða í heildina vegna þeirra málaflokka sem ég hef rætt hér, þá þarf sjóðurinn helling af fé frá ríkinu sem er ekki til. Staða ríkissjóðs er ekki rétt nema öll þessu mál séu opinber.
Þeir sem til þekkja komi þessu rétta boðleið til fjölmiðla, takk.


Ögmundur virðist óhæfur til þess að gegna ráðherrastarfi.

Það lítur greinilega þannig út samkvæmt svörum Ögmundar varðandi Nubo að ráðherrann gerir sér ekki einu sinni grein fyrir þeim tekjum sem af svona framkvæmdum verða, það liggur fyrir áætlun frá þessum manni og að sjálfsögðu færa hundruðir starfa miklar tekjur í ríkissjóð, það sér meira segja barn á grunnskólastigi. Þessi maður er algerlega óhæfur til starfa að mínu mati og á að segja af sér þingmennsku hið allra fyrsta svo þjóðfélagið geti farið að snúa sér að því að afla tekna áður en þorri fólks verður fluttur úr landi.
mbl.is „Sporin hræða“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er haldið áfram niðurrifs starfsseminni hér á landi.

Einfaldlega það sem ég átti von á það er alveg sama hvar á landinu eiga að fara fram framkvæmdir þá eru þær stöðvaðar og þar er Ögmundur í fyrsta sæti og Steingrímur í öðru sæti. Hér mun ekki verða til atvinna þetta eina og hálfa ár sem þessi stjórn á eftir að sitja og við það verðum við að sætta okkur við, því miður en það mun taka stuttan tíma að koma landinu á skrið eftir að þetta lið fer frá völdum, til þess höfum við allra þjóða mestan efnivið að vinna úr.
mbl.is Vaðlaheiðargöng ekki framarlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Styttist í nýjar tölur um minna atvinnuleysi frá svokallaðri (velferðastjórn?)

Jæja, brottflutningurinn fram yfir þá sem hingað flytjast heldur áfram að vera mikill og á hlýtur hann að aukast miðað við stöðuna í þjóðfélaginu í dag.
H
ér er erfiður vetur framundan atvinnulega séð og því engin ástæða til þess að dveljast áfram á klakanum sem getur svo sem verið ágætur en ekki á meðan svona ástand varir.

Nú fara að birtast nýjar tölur um að atvinnuleysi hafi minnkað og er mjög auðvelt að reikna það dæmi því ekki er um aukin störf að ræða um þessar mundir því sögur fara að hópuppsögnum fyrir áramótin og hruni nokkurra stórra fyrirtækja. Þá er bara að telja brottflutta og draga frá aðflutta og þá er mismunurinn minna atvinnuleysi, þetta eru nú aðferðirnar sem notaðar eru í dag.


mbl.is Fjöldi barna og unglinga meðal brottfluttra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sama siðblindan áfram og engin tenging við fólkið í landinu.

Það er alveg rosalega ömurlegt eða bara helvítis fokking fokk að þurfa að upplifa að sjá stjórnmálamenn nánast njóta þess að pína fólk og nú er verið að reyna að hafa atvinnuleysisbætur af fólki í þrjá mánuði, fólki sem er búið að vera atvinnulaust í þrjú ár.
Hvers konar rugl er í gangi hérna, hvernig væri að fara að snúa sér að því að byggja upp þjóðina í stað þess að halda áfram að brjóta hana niður.
Þjóðin hefur vald til þess að koma þessu landráðafólki frá völdum hér á klakanum og nú vil ég sjá alvöru leiðtoga stíga fram og draga upp baráttu fána sem verður ekki dregin niður fyrr en þetta fólk segir af sér, þetta tekur tvo til þrjá daga og þá verður þetta lið sem stjórnar hér að taka sitt dót úr skúffunum eða öll þau mál er varða almenning sem hafa farið í skúffuna og setja á tætarann og best fyrir okkur væri að það kæmi sér úr landi.

mbl.is Togast á um lengingu bótatíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Átti Jóhanna við að þúsundir myndu missa vinnuna á árinu en ekki að hún ætlaði að búa til helling af störfum?

Ég bara spyr vegna þess að það eru hundruðir manns að missa vinnuna fram til áramóta miðað við þann samdrátt sem á sér stað þessar vikurnar og veturinn lýtur mjög illa út atvinnulega séð.
Það er ekkert sem bendir til þess að þessi ríkisstjórn sé að gera eitthvað til þess að skapa ný störf.
mbl.is Á sjöunda tug missa vinnuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband