Færsluflokkur: Bloggar

Steingrímur er einfaldega opinber starfsmaður frá byrjun til enda sem kann ekki að hugsa um almenning.

Ömurlegri málflutning en sá sem er í þessari frétt hef ég bara ekki séð á prenti í minni lífstíð og vonandi verður lát á því að hlusta á mann sem veit ekki hvað tilfynningar fólks eru en tala þannig að hann viti eitthvað um þá hluti.

Raunveruleikinn er ljós og það vitum við allir landsmenn að þessum manni hefur mistekist all hrapalega og er það ljóst eftir að 50% heimila ná ekki endum saman í dag.
Hvað er að gerast þegar maðurin segist hafa gert allt sem hann gat til þess að bjarga fjölskyldum, maðurinn sem setti 900 miljarða í að endurreisa bankakerfið sem auðvitað blómstrar í dag.

Ef það hefði verið ákveðið að leggja niður eins og tvo banka og lækka höfuðstól allra sem skulduðu, þá væri það fólkið í landinu sem blómstraði og gæti haldið uppi verslun og þjónustu. Þetta er hroðalegt að fá svona landráðafólk yfir landann á erfiðum tímum, fólk sem elskar fjármálstofnanir fram yfir sitt eigið fólk.

Ömurlegt að þurfa að horfa upp á þetta.


mbl.is Munum áfram nota krónu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maðurinn á götunni spáir betur en stjórnvöld.

Það er sama hvar borið er niður, maðurinn á götunni spáði því að landflótti yrði mikill og er hann enn að aukast, þetta hefur ræst og það er skýringin á minna atvinnuleysi, færri sem búa í landinu. Við erum að mennta fólk til þess að það geti starfað erlendis.

Maðurinn á götunni hefur sagt að skuldavandamál heimila séu mun alvarlegri heldur en stjórnvöld halda, nú er að komið að því að greiðsluviljinn er ekki að verða neinn og fólk tekur að sjálfsögðu þær ákvarðanir að kaupa á sig gjaldþrot og byrja upp á nýtt, það er ekki neinn vilji frá stjórnvöldum að koma í veg fyrir að þessi þróun fá að blómstra og því verður þetta niðurstaðan og fjármálastofanir munu eignast þúsundir íbúða næsta árið.

Maðurinn á götunni er búin að átta sig á því að það er lífeyrissjóðir, Íbúðarlánasjóður og bankar sem halda uppi himinháu leiguverði hér á landi með því að koma ekki þeim hundruðum íbúða á leigumarkað sem þeir eiga, allt planað og þessu var spáð af manninum á götunni.

Maðurinn á götunni hefur haft áhyggjur af eignarhluta banka í fyrirtækjum og þeim fjármunum sem ausið er í þau í samkeppni við manninn á götunni og er það orðið ljóst að þannig er það.

Maðurinn á götunni hefur sagt að hann muni ekki styðja inngöngu í ESB og hann hefur sagt að engin tiltrú sé á störfum alþingis er þar með ekki tímabært að núsitjandi ríkisstjórn segi af sér þar sem hún hefur ekki mannin á götunni með sér þar sem það er hann sem virðist ávallt hafa rétt fyrir sér?


mbl.is Fimm flytja úr landi á dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mesta spilling sem verið hefur á þessi landi frá upphafi að mínu mati. Norrænnt hvað?

Þó ég hafi ekki lifað nema í rúm fimmtíu ár þá hef ég ekki lifað aðra eins spillingu í þessi þjóðfélagi heldur en nú er og hef ég ekki lesið um að hún hafi verið svona rótæk fyrir minn tíma.

Það er sama hvar borið er niður, td. stjórnmálin þar sem menn hafa leikið sér með almannafé til þess að styrkja hinar og þessar fjármálastofnanir og síðan taka þær stofnanir við og leika sér með fé viðskiptavina sinna til þess að fara í samkeppni við fyrirtæki sem eru rekin af einstaklingun eða hlutafélögum og allt gerist þetta þegar hin norræna velferðastjórn tekur við en þá veit maður hvað stendur á bak við þann titil.
Síðan má nefna eftirlitsstofnanir sem virðast vera gjörsamlega óvirkar, og á ég þar við Samkeppnisstofnum, Fjármálaeftirlitið, viðskiptaráðherra og fjármálaráðherra en þessir ráðherrar hafa dregið fyrrverandi forsætisráðherra fyrir Landsdóm fyrir sömu afglöp og þeir eru að fremja um þessar mundir.

Það getur ekki gengið að reka heila þjóð á þessum forsendum að almenningur sé látinn þola endalausar skattahækkanir og hækkanir á opinberri þjónustu á meðan fjármálastofnanir leika lausum hala undir stjórn erlendra vogunarsjóða.
Þessi þjóð heitir Ísland og rekur sig á að framleiða græna orku sem verður að virkja, fiskveiðar eru stór þáttur og að honum þarf að fara varlega að til þess að eyðileggja ekki þann útveg og að síðan er það ferðaþjónusta en ef þetta er allt virkt þá værum við ekki í djúpum skít eins og er í dag. Allar þessar greinar skapa störfin sem við þurfum og síðan taka hina greinarnar við verslun og þjónusta þegar fólk eignast peninga til þess að eyða.

Þetta er Ísland í dag.


mbl.is Ummælin ekki pólitísk afskipti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kannski hefði verið betra að þjóðin hefði verið gerð upp, frekar en núverandi ástand.

Maður veltir því bara fyrir sér hvort það hefði verið betra að þjóðin hafði farið á hausinn og þar með hefði þurft að afskrifa meirhluta skulda okkar. Miðað við hvernig núverandi stjórnvöld hafa farið með almenning í landinu og margskitið upp á bak hvað eftir annað þá hallast ég að því að það hefði varla geta versnað ástandi með gjaldþroti landsins.
mbl.is Hefðum að óbreyttu farið á hausinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flýjum land, það er ekkert annað í stöðunni.

Það á að nauðga okkur enn og aftur með hækkunum og þar með áframhaldandi hækkun á verðbólgu. Nóg komið og þá er bara að flýtja úr landi.
mbl.is Hækka skatta á bensín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skandall að Jóhanna skuli halda völdum, hún segir að það sé allt í lagi hér!!!

Nú er komið að því að koma þessari konu frá völdum, kona sem hefur bæði staðið sig vel og illa sem ráðherra í gegn um tíðina en sem forsætisráðherra þá hefur hún aldrei náð takti við okkur fólkið í landinu, það er eins og við séum ekki til. Bankar, íbúðarlánasjóður ásamt ýmsum fjármálastofnunum hafa haft forgang og hafa enn. Steingrímur er alveg sama vandamálið og Jóhanna og ekki er þörf á fleiri orðum um hann. Öll í kór Jóhanna, Ólína og Ögmundur hafa ekki góða lykt á bakinu eftir þessa viku.

Tökum eftir að það er það sama að gerast núna og þegar bankabólan byrjaði hérna um árið að núna eru sérfræðingar frá bönkunum farnir að koma í viðtöl og spá um hvað (á að gerast hér á næstu tveimur árum) ekki hvað gerist. Þarna á ég við tildæmis að fasteignaverð muni hækka um 18% á næstu 2 árum, tilhvers að vera að koma þessu á framfæri? Til þess að tala verðið upp og til þess að bankarnir haldi verðinu uppi og þar með handónýtum efnahagsreikningum sínum þar sem fasteignir eru allt og hátt skráðar og því hagnaðartölur blekking. Það væri gaman að fá þær tölur upp á borðið tildæmis hvað á eftir að afskrifa marga tugi miljarða af húsnæðisleigufélögum eru það 10, 20 eða 30 miljarðar?

En Jóhanna segir að þetta sé allt í lagi og við eigum bara að bíða eftir engu, er þetta í lagi? Það verður fróðlegt að sjá hvort hún þorir að mæta og taka við undirskriftunum frá Hagsmunasamtökum Heimilanna en það væri samt gott að fræða hana um fyrir hverja þau samtök vinna.

 


mbl.is Kvótafrumvarpið gallað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sár og svekkt yfir sannleikanum, það er skiljanlegt.

Það er ekki annað hægt en að taka undir ummæli Vilhjálms því þau eru sönn og ekki hægt að hrekja þau þar sem atvinnulíf á íslandi á undir högg að sækja og er hratt hnignandi og sést það mjög vel á landflótta sem er miklu meiri heldur en ég hélt eftir að hlustað á mann götunnar og ekki lýgur hann.

Það er ljóst að VG fólk sem hefur ávallt talað um að gera eitthvað annað en byggja álver og virkja ætlar ekki að gera eitthvað annað, það er sést best á þeim ótrúlega hroka sem VG fólk getur beitt að fólki sem hyggur á fjárfestingar hér á landi, þetta er bara með ólíkindum. Getur þetta fólk ekki mótað sér stefnu og sagt hreint og beint á hverju þjóðin á að lifa og hvar á að skapa atvinnu, það er kallað atvinnustefna. Og hvar er Samfylkingin, hún er einfaldlega undirokuð til þess eins og halda í stólana.

Það er komið að leiðarlokum hjá Jóhönnu og co, þjóðin hefur snúið baki við þessari stjórn og þá á hún að fara frá, takk fyrir.

ALLIR Á AUSTURVÖLL KLUKKAN 10. Á LAUGARDAG.


mbl.is Sár og svekkt vegna orða SA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er þó einn kafli í lagi hjá kallinum.

Það er gott að hægt er að sjá einn kafla í lagi hjá ráðherranum að vilja ekki ganga í ESB en því miður er allt annað sem frá honum kemur rugl og vitleysa.
mbl.is „Einfaldlega til að stöðva viðræðurnar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rugludallur sem ekkert veit og á ekki að láta skoðun sína í ljós.

Það þarf ekkert að skrifa meira um þetta rugl. Hefur aldrei gengið í neinu þjóðfélagi og mun aldrei ganga. 
mbl.is Hækki fjármagnstekjuskatt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svandís skilur ekki hvað atvinnulíf er.

Það er alveg hreint með ólíkindum að ráðherrann skuli ekki gata talað jákvætt um svona tækifæri þótt þurfi að skoða lög og reglur. Svona neikvæð framkoma er einungis til þess að fæla fólk frá landinu og á alls ekki að líðast okkar almennings vegna. Fyrir norðausturland er þarna á ferðinni tækifæri sem getur skapað mörg hundruð störf og mun skila ríkinu miklum tekjum en það er eins og ríkisstjórnin vilji ekki tekjur frá atvinnulífinu en þess í stað ræðst hún endalaust á almenning til þess að alfla tekna. Þessi stjórn verður bara að víkja áður en tjónið sem hún hefur valdið verður meira.
mbl.is Stór plön þarf að skoða vel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband