Færsluflokkur: Bloggar

Tillaga um stjórnlagaráð er lögbrot og niðurlæging fyrir hæstarétt.

Það er gott hjá Skúla að styðja ekki þessa tillögu enda er hún að mínu mati lögbrot og niðurlæging fyrir Hæstarétt Íslands.
mbl.is Styður ekki tillögu um stjórnlagaráð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skattar í OECD koma okkur ekki við, núverandi skattar eru að drepa íslensk fyrirtæki.

Þetta sýnir að mínu mati að Steingrímur hefur aldrei verið í sambandi við þjóðfélagið og hefur ekki hugmynd um hvað er að gerast á klakanum. Hann er spurður út í hvort ekki sé æskilegt að lækka tryggingargjald fyrirtækja en nú þegar hefur hækkununin drepið helling af minni fyrirtækjum. Svarið er að skattar á fyrirtæki séu ekki háir hér á landi miðað við OECD, nú spyr ég. Hvað kemur það málinu við er ekki málið að fyrirtækjum fækkar hér á landi alveg gríðarlega og 600 fyrirtæki eru við það að gefast upp og landflóttinn er miklu meiri en menn gera sér grein fyrir. Það er þetta sem verður að koma í lag strax og koma skattar í öðrum löndum þessu ekkert við.
mbl.is Tillögur um skuldamál 400 fyrirtækja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki betra að VG stígi til hliðar, alþingi gæti notað Atla og Lilju.

Mér finnst nú meira vit í að þingflokkur VG stígi til hliðar úr úr ríkisstjórn og þá skapast svigrúm til þess að fara í endurreisn landsins. Þau Atli og Lilja geta annað hvort stofnað nýtt framboð eða gengið inn í Hreifinguna, þau eru starfhæf á alþingi og er það meira en hægt er að segja um alla aðra stjórnarþingmenn.
mbl.is Hvetja Atla til að stíga til hliðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjósum ekki gjaldþrot yfir þjóðina, fellum Icesave öll sem eitt.

Það eru að koma svo margar og góðar upplýsingar um þennan blessaða Icesave samning að það virðist vera fásinna að samþykkja hann eins og hann er og blasir þjóðargjaldþrot við eftir 3 til 4 ár vegna greiðsluþunga miðað við samninginn en síðan ef eða þegar krónan fellur næst þá er þetta endanlega búið. Það er enn verið að leyna okkur mikilvægum upplýsingum eins og sést á hegðum ríkisstjórnarinnar í þessu máli. Það var spurt um fyrstu greiðslu Icesave á næsta ári sem er 26 miljarðar og var spurt hvort þetta væri vaxtagreiðsla eða afborgun, 3 þingmenn voru spurðir og engin vissi svarið, er þetta eðlilegt?

 

Hvers vegna tóku Hollendingar og Bretar ekki tilboði því sem gert var 70 miljarða eingreiðslu og þrotabú Landsbankans til sín, já hvers vegna, ætli það sé vegna þess að þeir vilja blóðmjólka Íslendinga vegna vaxtagreiðslna næstu 20 árin eða svo, ætli það sé rétt?

Segjum Nei við Icesave. 


Jóhanna er bara ekki með á því hvað er að gerast hér á landi nema ESB drauma.

Dæmigerð hegðun forsætisráðherra þjóðarinnar, það er byrjað á þessu verkefni og búið að samþykkja af alþingi að það skuli rísa og þá er ekki eftir neinu að bíða, áfram með verkið og sköpum mörg hundruð störf strax.
mbl.is Álver vantaði í upptalninguna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gjörsamlega ósamstærf stjórn, stöðvið alla kjarasamninga og utanþingsstjórn strax.

Nú finnst mér alveg nóg komið af óstjórn í landinu og nú ætlar sjórnin að koma fram með sjárútvegsfrumvarp án alls samráðs við fólkið í landinu, þessi aðferðafræði er ekki möguleg í þetta litlu landi og því tímabært að koma af stað byltingu og heimta fagmenn í allar ráðherrastöður og þessir fagmenn verða að starfa í að lágmarki eitt ár. Þann tíma geta blessuðu flokkarnir okkar farið yfir sín mál, klárað að hreinsa út það fólk sem á alls ekki heima á þingi lengur og búa til rökstuddar stefnuskrár sem verða kynntar fólki mjög vel og tímanlega fyrir næstu kosningar.

Þetta er leiðin út úr stöðnuninni sama hvað hver segir og nú að bara að framkvæma nýja hluti í nýju Íslandi en við búum greinilega ennþá í gamla Íslandi þrátt fyrir loforð um annað.


mbl.is „Mjög óttasleginn út af því sem er að koma fram“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Byrjað að kjósa um Icesave án kynningar um kosti og galla?

Það er akúrat í anda þessarar ríkisstjórnar að gera ekki neitt og nú er komið að því að kjósa um Icesave samninginn án þess að ríkisstjórnin geri nokkurn skapaðan hlut í að kynna fyrir okkur um hvað er að ræða. Hræðsluáróður er ekki það sem við þurfum og hefur sýnt sig að höfnun á tveimur samningum hefur ekkert gert okkur illt hingað til og hvers vegna þá núna? Það sem er að í dag er aðgerðarleysi en ekki Icesave.

Það eru alltaf að koma fram fleiri og fleiri raddir sem halda því fram að við ættum að fella samninginn því ef hann verði samþykktur þá fari ríkið í greiðsluþrot eftir nokkur ár og þá er nú ekki mikið sem við höfum út úr því að samþykkja samninginn annað en okkar eigið gjaldþrot. Margir halda því fram og telja að þetta mál þurfi að fara fyrir dómstóla því mjög margir lögfræðingar telja að við séum með sterka stöðu og gætum unnið þetta mál.

Eins og staðan er í dag þá hef ég breytt nýjustu skoðun minni úr Já í Nei og þannig verður mitt atkvæði nema til komi mjög sterk rök fyrir því að við lifum af að samþykkja samninginn. Ég ætla líka að bæta því við að almenna umræðan út á götu er að snúast upp í að segja nei og á þar stóran hlut ríkisstjórn Íslands sem hefur aldrei verið í tengingu við fólkið í landinu. Sem sagt Nei við Icesave hjá mér.


Ekkert rætt um lækkun skatta í samningapakka við ríkisstjórnina?

Jóhanna telur upp verkefni sem allir vita að eru að fara að stað en þetta eru verkefni sem ríkisstjórnin á engan heiður af og á ekki að státa sig af heldur er beðið eftir að ríkisstjórnin komi af stað nýjum verkefnum fyrir utan þau sem eru að fara af stað, því 2.200 störf eru engan vegin nóg.

Til þess að bæta kjör fólks hér í landi verður að lækka tekjuskatta og færa skattleysismörk í 200.000 og sleppa öllum launahækkunun það er að mínu mati eina leiðin án þess að til komi verðbólga og verðlag hækki og éti upp allar launahækkanir á nokkrum mánuðum, þetta þekkjum við íslendingar best allra þjóða og því þá að fara sömu leiðina ef hún hefur alltaf misheppnast.

Síðan verður að taka orð Vilhjálms Egilssonar án þess að ég sé neitt sérstaklega hrifin að störfum hans til alvaralegra skoðunar þess efnis að ef erlend fjárfesting fer ekki að skila sér inn í landið þá dettum við í mikinn forapoll sem þjóðin getur orðið að busla í í langan tíma, vonum að svo fari ekki með tilheyrandi enn meiri skattahækkunum og auknum landflótta, nógur er hann fyrir.  


mbl.is Ganga á fund ríkisstjórnarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrsti Samfylkingarmaðurinn með viti er búin að gefa sig fram, vonandi koma fleyri úr skápnum.

Þótt Helgi hafi alltaf verið einn þessara venjulegu þröngsýnu Samfylkingarmanna að mínu mati þá fær hann 3 plúsa frá mér að koma úr skápnum með þá hugsun að hér séu ofurskattar nú þegar og ekki á þá bætandi. Þetta er staðreynd sem allt venjulegt fólk veit um en þetta er sá fyrsti í stjórnarflokkunum sem hefur þessa skoðun að ég held. Ferfalt húrra fyrir batnandi manni. 
mbl.is Eigum að létta af ofursköttum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur vill áfram eignaupptöku á 10 ára fresti, er þetta í lagi?

Hér á landi hefur eignaupptaka átt sér stað á 10 ára fresti þrisvar sinnum undanfarin 40 ár og síðan hrunið 2008, hvers vegna gerist þetta og hvers vegna er sama hverjir eru við stjórn þegar þetta gerist, vinstri, hægri eða miðjumenn? Það hlýtur að tengjast gjaldmiðli okkar sem hefur verið notaður sem skeinupappír fyrir alþingismenn hingað til. Verðbólga. verðtrygging og eignaupptaka er það sem verður hér áfram við lýði ef skoðun Steingríms fær að ráða.

Ég segi, hættum ESB umræðum og tökum upp dollar eða norska krónu einhliða eða tengjum okkur við annan þessara gjaldmiðla, það er ekkert vit í öðru. Evran er að hrynja svo það er ekki kostur.


mbl.is Steingrímur vill byggja á krónu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband