Færsluflokkur: Bloggar

ESB verður fellt, hvers vegna að halda áfram viðræðum?

Það virðast alltaf vera til peningar hjá sumum stjórnmálamönnum til Þess að henda honum út um gluggann. Er það ekki morgunljóst að við viljum ekki í ESB?

mbl.is Telur fráleitt að hætta aðildarviðræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru fasteignakaupendur að leika sér að eldinum, hvað á eftir að afskrifa?

Ég er mjög hræddur við þá þróun sem er í gangi um þessar mundir á Íslandi að fólk hafi gefist upp á að leita sér að leiguhúsnæði og fari út í fasteignakaup í staðinn. Ég reyndar skil stöðuna sem búið er að búa til af fjármálastofnunum að halda að sér ónýttum eignum til þess að halda leigu og fasteignaverði uppi en mergurinn málsins er að það gengur ekki upp miklu lengur og hvernig fer þá?
Verðtrygging hefur verið há undanfarna mánuði og er engin breyting á henni þrátt fyrir hrunið, fasteignaskuldir halda áfram að hækka jafnt og þétt og erfileikarnir eru að hrannast upp hjá millitekjufólkinu sem sýnir að allar þær ráðstafanir sem gerðar hafa verið eru að verða að engu eins og almenningur hefur haldið fram að myndi gerast fyrir daufum eyrum ríkisstjórnar.
Nú virðist vera risavaxið mál í gangi innan Íbúðarlánasjóðs vegna skulda margra húsnæðissamvinnufélaga því skuldir þeirra hafa að sjálfsögðu hækkað eins og hjá einstaklingum og hlýtur að vera eftir að afskrifa mjög stórar upphæðir vegna þeirra en mér finnst að þetta sé mál sem á að þagga niður framyfir næstu kosningar og koma milljarðavandamáli á næstu ríkisstjórn (hvers vegna sér maður aldrei neitt um þetta í fjölmiðlum)?
Þegar verður búið að afskrifa þá miljarða sem þarf til þess að þessi félög sem mér finnst þjóðfélaginu nauðsynleg verði rekstrarhæf þá verður að moka fé úr ríkiskassanum til þess að rétta af Íbúðarlánasjóð. Það fer einnig að koma að því að sjóðurinn og bankarnir verða að fara að losa sig við eitthvað að þeim þúsundum eigna sem eru í eigu þeirra og hvað gerist þá er markaðsöflin ráða.
Það verður verðlækkun á markaðnum og hvað þá, sama sagan og við þekkjum í gegn um tíðina kemur upp á nýjan leik og einhver annar skrifar svipaða grein og þessi er eftir 10 ár eða svo. Þetta er ísland í hnotskurn áratugum saman og bið ég því fók að fara varlega. Það er fólk sem býr í Danmörk að greiða tíu sinnum lægra vexti af húsnæðislánum heldur er hér, verðtryggingarinnar vegna.
mbl.is Þörf fyrir mikla lækkun skulda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju ekki leigufélag strax?? ?Slóðaháttur ríkisins.

Það er alveg merkilegt með alla hluti sem að ríkinu snúa að það virðist ekkert geta gerst með áhuga og dugnaði eins og þetta dæmi sannar.
Það bráðvantar mörg hundruð íbúðir á markaðinn strax, það er fullt af fólki sem er nánast á götunni því það finnst ekkert leiguhúsnæði á sanngjörnu verði en bankarnir og íbúðarlánasjóður liggja á eignum sínum óleigðum til þess að halda uppi allt of háu íbúðar og leiguverði.
Það átti fyrir löngu síðan að vera búið að stofna leigufélag og koma öllum eignum í úleigu, það er ekki nóg að hugsa einungis um peningaöflin, það er líka fólk í landinu sem þarf öruggt leiguhúsnæði strax.
mbl.is Stefna að stofnun leigufélags um áramót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alltaf sömu vinnubrögðin, ég gerði ekkert vitlaust, ég hef rétt fyrir mér.

Öll mál lélegustu ríkisstjórn allra tíma sem nú situr hafa verið á þennan veg, allaf er það lögin sem hafa rangt fyrir sér en ekki sá eða þau sem vinna verkið.
Við höfum oft orðið vör við þessi vinnubrögð áður og það er ekkert mál fyrir þetta fólk að brjóta lögin og ef það gerist þá er það bara, ég hafði rétt fyrir mér og búið mál.

mbl.is Óviðunandi að ráðherrar brjóti lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tek ekki þátt í fáranlegri skoðanakönnun stjórnvalda og er ekki einn um það.

Þetta rugl í kring um stjórnarskránna okkar er alveg með eindæmum vitlaust og alveg kolrangt tímasett. 75% fólks í landinu er á móti sitjandi ríkisstjórn og mun ekki taka þátt í þessum leik að mæta á kjörstað til þess að taka þátt í skoðanakönnun um stjórnarskránna, þvílík þvæla.
Það er alþingis að vinna í þessu máli og það þarf að vera fullkomin sátt um allar breytingar á stjórnarskránni innan þingsins áður en til kemur að þjóðin kjósi um hvort hún vill þær breytingar sem þarf að gera eða ekki.
Það liggur ekkert á þessu þessu máli og þarf það bara sinn tíma á þinginu 2 til 5 ár eða svo.
Ég hef verið að ræða þetta mál á götuhorninu og verð ég ekki var við annað að fólki sé nákvæmlega sama um þessa skoðanakönnun og að það ætli ekki að mæta til þess að svara þessum spurningum.
Alltaf er til fé til að sóa í svona óþarfa.
mbl.is Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar að hefjast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sömu sorglegu vinnubrögðin áfram sem engu skila.

Það er alveg sama hvar ber niður, þessi stjórn hefur ekki geta unnið með hagsmunaðaðilum í neinni atvinnugrein landsins, ávallt einhver uppþot og óánægja sem á eftir að koma harkalega í bakið á landsmönnum fljótlega? Bara spurning um tíma. Ofurskattar hafa aldrei skilað auknum tekjum nema kannski fyrsta árið og síðan lækka tekjurnar mjög hratt þegar atvinnugreinarnar sem ráðist er á, fara að draga saman seglin með tilheyrandi auknu atvinnuleysi sem er þó nóg fyrir ef tekið er tillit til þeirra 10 til 15.000 manns sem hefur flutt úr landi til þess að fá vinnu.
Það er stutt til kosninga og þá verður sem betur fer hægt að breyta öllum áherslum varðandi skatta og atvinnulíf, stöðva þetta ESB rugl, og koma gjaldeyrismálum þjóðarinnar í lag áður en þjóðin fer á hausinn.

mbl.is Greiða engan virðisaukaskatt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkið hlýtur að þurfa að kaupa Fríkirkjuveg 11 á ca 700.000.000.

Ég get alveg stutt að húsið verði friðað að utan sem innan en vinnubrögðin á bak við þetta mál er enn eitt hneykslismálið sem þessi ríkisstjórn stendur að.
Þegar umræddur kaupandi kaupir húsið er það friðað að utan og hann var búin að leggja allar tillögur fram um hvernig ætti að nýta húsið og breytingar innahúss voru líka tilbúnar að ákveðnu leiti.
Þetta segir manni að ríkið hlýtur að verða dæmt til þess að kaupa húsið til þessa að geta nýtt það til þess hlutverks sem það vill að húsið verði nýtt í, það liggur alveg ljóst fyrir að mínu mati.
Það eru alltaf til peningar í svona hluti frá hendi ríkisstjórnarinnar.
mbl.is „Allar forsendur brostnar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sameina á alla lífeyrissjóði í landinu til þess að bjarga eignum okkar.

Það er bara ein leið til þess að verja fjármagn landsmanna sem liggur í lífeyrissjóðunum. Það kostar offjár að reka allar þessar stofnanir og því kjörið að spara gríðarlega fjármuni með því að sameina allt heila klabbið í einn sjóð.
mbl.is Ríkið standi við skuldbindingar sínar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað margir hafa dottið út af atvinnuleysisskrá vegna brottflottnings úr landi??

Þessar tölur um atvinnuleysi eru ekki marktækar nema tekið sé fram hvers vegna atvinnuleysi er minna en verið hefur. Það ganga sögur um að margar fjölskyldur flytji af landi brott í hverjum mánuði og detta því af atvinnuleysisskrá og þetta verður því að vera á hreinu hvort fækkunin á skránni er vegna þessa og að hvað miklu leiti. Ef það er ekki verið að skapa ný störf þá er ekkert að marka þessar tölur til hins betra. Það er nokkuð mikið um uppsagnir í landinu þessa mánuðina og því finnst mér þessar upplýsingar skjóta skökku við??

mbl.is Atvinnuleysi í maí 5,6%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins mætti fólk á Austurvöll, koma ríkisstjórninni frá í leiðinni.

Nú er tækifærið þar sem fjöldi fólks er samankomið á Austurvelli og koma ríkisstjórninni frá völdum strax í dag.
mbl.is Mun draga máttinn úr útveginum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband