Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Hundruðum miljóna fórnað í ekkert, í óþökk meirihluta landsmanna.

ESB stefnir hratt í að leysast upp í tóma vitleysu og Jóhanna þumbast áfram að eyða þeim litlu peningum sem ríkissjóður hefur til ráðstöfunar, hundruðir miljóna eiga eftir að fara í þetta rugl og hundruðum miljóna hefur þegar verið eitt. Það verður að stöðva þetta bruðl strax.
mbl.is „Erfið en góð ákvörðun"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ögmundur var þá vanhæfur til þess að taka ákvörðun.

Ég bloggaði þann 8. nóvember þess efnis að Ögmundur væri vanhæfur til þess að fara með þetta mál og var það vegna þess að hann tók einhliða ákvörðun án þess að taka tillit til hagsmuna þjóðarinnar. Ég er ekkert endilega að segja að hann hafi átt að segja já strax, það sem ég vildi sjá var fagleg vinnubrögð og viðræður manna á milli hvort þetta er eitthvað sem væri hægt að semja um þannig að sátt sé um málið. Þetta sýnir líka mjög glöggt hvað stjórnarflokkarnir tveir eru ósamstíga í öllum málefnum og er það næg ástæða til þess að stíga til hliðar.
mbl.is Stjórnvöld í viðræðum við Nubo
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin af stjórnarliðum er ómissandi, segið af ykkur öll sem eitt.

Jón ekki ómissandi segir Ólína sem er hvað hörðust í því að eyðileggja gott fiskveiðikerfi, sem hægt er að bæta með viðræðum við hagsmunaaðila en ekki einhliða laga og reglugerðabreytingum.

Þið eruð öll missandi hvað alþjóð varðar svo það er best að þið segið af ykkur hið allra fyrsta svo þjóðin geti kosið það fólk sem það vill hafa við stjórn.


mbl.is Fráleitt að Jón sé ómissandi segir Ólína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forseti vor, landið er stjórnlaust. Hjálp.

Maður er bara orðin orðlaus að horfa upp á þennan skrípaleik hjá stjórnarflokkunum, átök um völd og sæti og landið er stjórnlaust.
Nei, nú er nóg komið og ég kalla eftir forseta vorum og grípa inn í þetta rugl og leysa stjórnina frá völdum og skipa utanþingstjórn strax. Þú ert sá eini sem hefur gert eitthvað af viti í landsmálunum síðan eftir hrun og við treystum á þig og koma landinu undir stjórn ábyrgra aðila.
mbl.is „Þjóðin veit fyrir hvað ég stend“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Segir kona sem hefur snúið baki við þjóðinni ásamt kolleggum sínum.

Þetta finnst mér frekar neyðarleg setning hjá stjórnarþingmanni sem baki hefur snúið að þjóðinni og andar að sér ferskum fjármála andvaranum.
mbl.is Mikið áfall ef VG snýr baki við Jóni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það eru því miður mörg mannréttindabrotin sem hafa verið framin hér á landi.

Kristín hefur svo sannarlega rétt fyrir sér að mörg mannréttindabrotin hafa verið framin hér á landi undanfarin tvö til 3 ár í alls kyns mynd.
Ég man að ríkisstjórnin lét reikna út fyrir sig hver lágmarksframfærsla þarf að vera á Íslandi og voru þessar tölur opinberaðar að mig minnir snemma á þessu ári og var þar um upphæðir að ræða sem ekki þóknuðust tölu Jóhönnu eða rúmar 300.000 kr eftir skatta, pr einstakling til þess að geta lifað af mánuðinn mannsæmandi lífi og er þar miðað við einstakling í leiguíbúð.
Þessu plaggi var stungið í skúffuna og ekki hefur verið minnst á það síðan en haldið er áfram að troða á landsmönnum með alls kyns lækkunum og hækkunum.
Hér er stunduð í dag, óþverra pólítík þar sem hagsmunir fjármagsfyrirtækja taka öll fyrstu hundrað sætin.
mbl.is Ríkið hirðir alla launahækkun ellilífeyrisþega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Besta jólagjöfin í ár er " Ríkisstjórnin burt"

Jón, Ögmundur, Árni Páll, Jóhanna, Steingrímur, Svandís og fleiri, allt er þetta fólk að mínu mati sem hefur smánað þessa þjóð með yfirgengilegum og lélegum vinnubrögðum með tilheyrandi spillingu, óheiðarleika og bruðl með almannafé.
Handbendi vogunarsjóða er þetta fólk einnig og nú er líka komið í ljós að hér mega útlendingar helst ekki eiga viðskipti að undanskildun vogunarsjóðunum.
Við erum nú þegar komin út í horn og verður ekki bjargað þaðan af þessu fólki, það eitt er víst.
Gerið nú bara eitt fyrir fólkið í landinu, segir af ykkur strax.
mbl.is Segir stöðu sína sterka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki lengur bjóðandi þetta stjórnarsamstarf.

Ekki kemur mér á óvart að fólk segi sig úr Samfylkingunni,hún svíkur öll sín loforð og er einungis eins og útspýtt hundskinn í höndum VG í dag, ég á við að það er einungis einn flokkur sem öllu stjórnar hér í dag.

Ég fer fram á það að þessi stjórn fari frá strax og skipuð verði utanþingsstjórn næstu 2 ár til þess að hægt sé að vinna að skuldavanda landsmanna og koma atvinnulífinu af stað en því miður þá minnkar áhugi erlendra fjárfesta hratt þessa daga að koma með fé hingað.


mbl.is Segir sig úr Samfylkingunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Felldu stjórnina Sigmundur, þá stöðvarðu hryðjuverkin.

Jæja Sigmundur Ernir, sýndu nú hvað í þér býr og fáðu nokkra stjórnarþingmenn til þess að fella þessa hryðjuverkastjórn, strax.
mbl.is Brjáluð ákvörðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verið að rústa atvinnulífinu og gengur vel. Allt á góðri leið að sögn Jóhönnu?

Þetta er gott dæmi um hvað Jóhanna og Steingrímur eru í litlum tengslum við fólkið, atvinnulífið og bara allt sem gerist í þessu þjóðfélagi, engin tengsl eru til staðar.

Það eru nokkrir dagar síðan Jóhanna og Steingrímur voru að dásama hvað allt væri á góðri leið og á sama tíma er þjóðfélagsumræðan um fyrirhugaðar fjöldauppsagnir og væntanlegar uppsagnir sem verða mjög miklar, það þarf bara að hlusta á fólk og það liggur alveg í loftinu að nokkur fyrirtæki munu leggja upp laupana á næstu vikum, eitt stórt fyrirtæki mun yfirtaka annað og við það eina dæmi munu sjálfsagt tugir manna missa vinnuna, þið getið í eyðurnar hvaða sameining það er.

Atvinnulífið á Íslandi hefur fengið hryðjuverkastjórn yfir sig, enda hér allt að hrynja en ekki á uppleið, það eru hreinar línur.


mbl.is Slæmar horfur í atvinnulífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband