Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál

Nú er Steingrímur ánægður eða var hann búin að gera ráð fyrir þessum hækkunum?

Alltaf versnað ástandið hjá fjölskyldum landsins og byrgðarnar aukast og aukast en ekkert er gert til þess að létta aðeins á frá hendi stjórnvalda. Málið er að þegar bensín og olíuverð er orðið svona hrikalega hátt þá geta stjórnvöld lækkað tímabundið skattlagningu sína á þessa vöru, þau geta það og það er auðveld framkvæmd sem er öllum landsmönnum til bóta. Nei það er ekkert gert í málinu frekar en öðrum málun er snerta almenning og landið stefnir hraðbyr í algjöra stöðnun. Hvað olíuna varðar veltir maður fyrir sér hvort Steingrímur hafi vonað að verðið skildi hækka svona mikið og þetta væri allt á áætlun hjá honum, er það raunin? Maður með hans vald og hefur eitthvað í fari sínu sem heitir manngæska myndi gera eitthvað í þessu máli strax.
mbl.is Bensínskattar hafa aldrei verið jafnháir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég spái að 80% felli Icesave, stuðningur er fjarlægur möguleiki.

Það er að mínu mati alveg útilokað að íslendingar styði mál að þessu tagi, það eru engin rök fyrir því nema kannski að það sé komin uppgjöf í landann vegna málsins en það má ekki gerast, alls ekki.
mbl.is 57,7% myndu samþykkja Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mjög eðlilegt hjá Ólafi en óeðlileg viðbrögð hjá Jóhönnu og Steingrími. Fellum Icesave.

Ég vil byrja á því að þakka forsetanum fyrir að standa með landsmönnum og leyfa okkur að klára þetta icesave mál sem við tókum að okkur að kjósa um og ekki verður afgreitt nema í atkvæðagreiðslu, það er mjög eðlileg niðurstaða og finnst mér undrun Jóhönnu og Steingríms furðuleg hegðun og lítilsvirðing við lýðræðið. Málið er að alþingi hefur ekki fengið nýtt umboð frá þjóðinni til þess að taka einhliða ákvörðun um afgreiðslu þessa máls, það situr enn stjórn sem hefur ekki stjórn á neinu hér á landi og hefur þjóðina ekki með sér, það er ástæða þess að hún nær engu í gegn. Stjórn sem vinnur ekki með fólkinu er ekki góð stjórn og því langbest fyrir alla landsmenn að hún víki strax og kosið verði til alþingiskosninga um leið og Icesave málið, með því spörum við stórfé og fáum nýja stjórn og þá er hnúturinn leystur og alþingi öðlast nýtt umboð frá þjóðinni.

Fellum Icesave samninginn með 80% atkvæða, þjóðin greiðir ekki skuldir einkafyrirtækis.


mbl.is Undrast mjög ákvörðun forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers vegna er Icesave samningurinn ekki kynntur almenningi í almennri umræðu?

Það sem mér hefur alltaf fyndist mjög undarlegt í þessu hundleiðinlega Icesave máli er hræðsla ráðamann að kynna okkur almenningi í tildæmis sjónvarpsþáttum á öllum stöðvum hvað þessi samningur þýðir. Hvað er mikil áhætta af því að samþykkja hann, hverjir eru plúsarnir við samþykkt, og þarf þá álit fagmanna ekki alþingismanna. Við vitum öll hvað gerist ef við höfnum samningnum og það er akúrat ekki neitt hvorki til hins betra eða verra. Eru Bretar og Hollendingar í skýjunum að hafa náð þessum samning á borðið vegna þess að þeir bjuggust aldrei við því að við Íslendingar tækjum að okkur að græða skuldir einkafyrirtækis. Það má halda svona áfram lengi.

Það er fjölmörgum spurningum ósvarað varðandi þennan samning og við eigum fullan rétt á því að hann sé kynntur almennilega fyrir okkur á mannamáli og við eigum líka fullan rétt á því að hann fari fyrir þjóðaratkvæði aftur vegna þess að hann á annað borð fyrir þjóðaratkvæði síðast, ekkert hefur breyst varðandi þann þátt málsins.


mbl.is Icesave á hraðferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjálp, Lilja Móses, Björn Valur, Atli Gísla og aðrir með viti í VG. Slítið samstarfinu við Samfylkinguna áður en það verður og seint.

Þetta gengur ekki lengur að Samfylkingin ætli sér að vaða hér yfir allt og alla á skýtugum skónum með sýn gæluverkefni sem þjóðin hefur engan áhuga á lengur því Jóhanna gleymdi að það þarf að hafa fólkið með sér í svona stór verkefni eins og ESB, breyting á kvótakerfinu, stjórnlagaþing o.s.f.v það einfaldlega gleymdist og nú er brýnt að VG stöðvi þetta áður en þjóðir rúllar í svartholsleið Samfylkingarinnar og allt efnahagslífið verður ónýtt á eftir þótt ekki sé það burðugt fyrir.
mbl.is Eru að leika sér að eldinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Horfum bara í kring um okkur, er ekki stöðnun?

Það þarf ekki einu sinni að skrifa um hvert stefnir hjá okkur, það sjá allir sem vilja.
mbl.is Eykur líkur á greiðsluþroti ríkisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þar fóru 300 milljónir í ekkert, dæmigert fyrir þessa stjórn ef stjórn má kalla.

Hef ekkert frekar um málið að segja en að þetta er að verða einn brandari allt saman sem hér á íslandi er að gerast þótt alvarlegt sé. Framkvæmdalega er allt sem þessi stjórn hefur gert, glatað.
mbl.is Stjórnlagaþingskosning ógild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það verða rýr skilaboð sem frá stjórninni koma miðað við aðgerðaleysi hingað til.

Ekki veit ég hverju forystumenn ASÍ og Samtaka atvinnulífsins eru að bíða eftir. Þessi stjórn hefur nánast ekkert gert fyrir almennig frá því hún tók við og hvers vegna hún ætti að gera það núna þegar hún er að verða búin að morka lífið úr okkur og alla von um betri tíð veit ég ekki.
mbl.is Bíða eftir svari ríkisstjórnarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mörgum Vinstri rauðum er skemmt en Húsvíkingar er skiljanlega sárir.

Já það kom að því að þessari ríkisstjórn tókst að eyðileggja þetta tækifæri Húsvíkinga og áfram heldur sú stefna að nýta ekki grænar auðlindir Íslands og orðið tímabært að VG skýri flokkinn upp á nýtt því Vinstri grænir á alls ekki við lengur, Vinstri rauðir á betur við núna þar sem þeir skilja hvert byggðarlagið á eftir öðru í blóði sínu og vilja ekki nýta grænustu orku veraldar landsmönnum í hag.
mbl.is Alcoa sagt ætla að draga sig í hlé á Bakka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur ætti ekki að vera í vandræðum að lána VG úr ríkissjóði á 3% vöxtum óverðtryggt.

Eins og fyrirsögnin segir þá kæmi þetta manni ekkert á óvart því Steingrímur virðist geta mokað miljörðum í fjármálastofnanir á lúxuskjörum en þegar að almenningi kemur þá kveðjur við annað tón.
mbl.is Skuldir VG miklar eftir 2009
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband