Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál

Einfaldlega best fyrir landsmenn að stjórnin falli og þá er góðæri framundan.

Ég skil ekki hvers vegna er verið að teygja lopann í þessari ömurlegu vinstri stjórn sem maður hélt að myndi vinna að málefnum fólksins en hefur fyrst og fremst unnið fyrir fjármálastofnanir og bjargað þeim á kostnað fólksins í landinu. Þetta er ekki bjóðandi lengur, allt annað er betra en þetta ástand. Það er líka athyglisvert hvað spilling hefur margfaldast í höndum vinstri stjórnar. 

Hér á landi vantar ekki tækifærin, það þarf bara að kunna að nýta þau. 


mbl.is Hissa á ummælunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brýnasta verkefnið segir sá sem engu verkefni hefur lokið.

Það er nú þannig með þennan blessaða mann Árna Pál að hann talar of mikið miðað við það að hann líkur engu einasta verkefni sem hann tekur sér fyrir hendur, það er nú þannig og enn er ekki búið að klára gengislánafrumvarpið en var það ekki brýnasta verkefnið þá en er það ekki lengur???
mbl.is Brýnasta verkefnið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mistök aldararinnar hingað til ekki viðurkennd af Steingrími.

Auðvitað er kallinn skíthræddur að verða dregin fyrir landsdóm enda mjög skrýtið ef það gerist ekki, þvílík hafa vinnubrögðin verið á allri hans vinnu eins og skattpíningar, hækkanir gjalda sem draga úr tekjum ríkissjóðs, sala bankanna á kostnaðu landsmanna, skuldamál heimilanna, lán til stofnana og fyrirtækja, Icesave, atvinnumála og svona má lengi telja. Þetta er algjörlega óviðunandi og vil ég fá þennan mann úr brúnni ásamt ríkisstjórninni, því fyrr því betra.
mbl.is „Nú er þetta allt orðið ég einn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnin búin að missa tökin á fjármálum sínum, mistökin að koma fram núna.

Það kemur sko ekki á óvart að tekjur ríkisins skuli fara hratt lækkandi því það gerist alltaf ef almenningur er ofskattaður á öllum sviðum og neyslan dregst enn meira saman. Hvers vegna geta ekki stjórnmálamenn séð þetta auðvelda reiknisdæmi og unnið eftir því.

Atvinna skapar neyslu og sparnað, hæfilegt skattlagning eykur tekjur ríkisins vegna þess að skattarnir koma til baka vegna þess að fólk hefur meira fjármagn á milli handanna og þegar fólk hefur meira afgangs og kaupir aukna þjónustu skapar það störf og þar með erum við komin hringinn.

Einfalt dæmi sem gengur upp.


mbl.is Skatt- og vaxtatekjur ríkisins lækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tryggingarfélög hækkuðu iðgjald af bifreiðum um 10% fyrir 2 mánuðum síðan??

Ég var að fara yfir bifreiðaiðgjöld fyrir foreldra mína og dætur og komst þá að því að iðgjöld hækkuðu um 10% þann 1 október. Er þetta í lagi og það án þess að nokkur sé látinn vita af þessu og ekki kom þetta fram í fjölmiðlum.

Góð hugmynd hjá Lilju en getur hún reynst skeinuhætt???

Hugmyndin er góð hjá Lilju enda upprennnadi stjórnmálamaður þarna á ferð sem á bara eftir að ganga í nýtt stjórnmálaafl sem hlýtur að koma fram á næstunni. Það sem ég er hræddastur við um þessa hugmynd er að þetta eflir hagkerfið og neysla mun aukast og allt í góðu með það en það er bara þannig hérna á skerinu að um leið og neyslan eykst þá hækkar verðbólga og étur upp allan ávinninginn því ekki eiga laun eftir að elta verðbólgu á næstu árum. Verðtryggingarlaus er hugmyndin flott. 
mbl.is Vill lækka fasteignavexti í 3%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rannsaka galla þess að afnema verðtryggingu er þess þörf?

Miðað við hvernig verðtrygging hefur rústað fjárhag heimila á íslandi á 10 ára fresti frá því hún var sett á og afnumin af launum þá held ég að gallarnir séu ekki fyrir hendi heldur er það bara krafa venjulegs fólks að fá að sitja við sama borð og aðrar evrópuþjóðir að geta keypt eða leigt húsnæði á þeim kjörum sem boðlegt er til lengri tíma litið án þess að til eignaupptöku komi það má aldrei gerast á ný.
mbl.is Verðtrygging í nefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigurður Snævarr hefur fengið heilaþvottssnámskeið Jóhönnu.

Það er sko alveg tandurhreint eftir að hafa lesið þessa frétt að ríkisstjórnin hefur verið með puttana í öllu starfi reiknimeistaranna því þegar einn kemur og segir að annar megi ekki hafa sínar skoðanir innan nefndarinnar þá er eitthvað mikið að. Nú hef ég enga trú á að þessi Siggi sé með hreina samvisku og sé bara einn af mörgun sem unnið hafa einhverja markleysu fyrir stjórnina.
mbl.is Hefði tekið mánuði eða ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki farin almenn leið, það á eftir að verða okkur dýrt.

Nú er það ljóst samkvæmt orðum forsætisráðherra að ekki verður farin almenn niðurfærsla og leiðrétting skulda og reynt að fara einhverja blandaða leið sem aldrei verður sátt um en hvað svo?

Segjum að það sé farið hálfa leið og einhverjum ákveðnum hópi bjargað sem er nauðsynlegt að mínu mati og allt í góðu með það. Síðan eftir nokkra mánuði eða kannski eitt ár þá fer að þrengja að þeim hópi sem er á þolmörkum að geta greitt að sínum lánum og sá hópur mun stækka hratt og að lokum þá verða önnur 20.000 heimili komin í þá stöðu sem þeir verst settu eru í dag, hvað á þá að gera, fara aðra hálfa leið eða hvað? Þetta gengur ekki upp á þennan hátt.

Annað sem er fylgifiskur svona ákvarðana er að ungt fólk gefst bara upp á þessum háu afborgunum og flýr land er búið að reikna út hvaða það kostar þjóðina, hvað með reiknimeistara Jóhönnu, hafa þeir þær tölur fyrir almenning? Þar erum við að tala um alvöru tölur. Það á að hverfa af þeirri leið að það þurfi að rétta ríkissjóð af á örtíma og reka hann með halla næstu ár og vinna okkur hægt út úr hallanum án þess að það þurfi að hamast í vasa fólks með hækkunum á öllu sem hægt er að hækka.  


mbl.is Mikill vilji til að finna varanlega lausn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Marinó er raunsær maður sem hefur sanngirni og réttlæti ofar öðru.

Það þarf ekkert að ræða þetta nánar, Marinó er maður sem er mikill stígandi í og ætti heima í nýjum flokki á alþingi.
mbl.is Vill enn flata niðurfærslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband