Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál

Á að dæma þessa þrjá ráðherra í fangelsi?

Eftir að hafa hugsað þetta allt saman fram og aftur þá er ég efins um að það sé rétt að kalla landsdóm saman til þess eins og dæma þrjá ráðherra til refsingar og hvers vegna finnst mér það?

Þessir menn Geir, Árni og Björgvin hafa verið sakaðir um vanrækslu sem er auðvitað alveg hárrétt og er auðvitað það mikil refsing að þessir menn ættu ekki að starfa fyrir hið opinbera framar og því finnst mér að Björgvin verði að segja af sér þingmennsku hið fyrsta.

En að dæma þessa þrjá menn er ekki sanngjarnt að mínu mati vegna þess að ef réttlætið á að sigra þá yrði að dæma alla þá ráðherra sem að þessu hrunamáli hafa komið frá byrjun þegar bankarnir eru einkavæddir og það eru margir ráðherrar og þeir gerðu mörg afdrifarík misstök og eru alveg jafn sekir og þessir þrír sem hafa verið sakaðir um vanrækslu.

Það væri kannski nær að útbúa vanrækslulista sem yrði aðgengilegur öllum íslendingum í nánustu framtíð og þá sitja allir þeir seku embættismenn við sama borð að vera samsekir um slæma stjórnunarhætti á Íslandi frá einkavæðingu bankanna til október 2008 það ætti nú að vera næg refsing að mínu mati.

Ef við skoðum þetta í víðara samhengi þá er Gordon Brown að byðjast fyrirgefningar á að hafa ekki hert bankareglur í sinni tíð sem fjármálaráðherra og þar með hefur hann viðurkennt að hann sjálfur á sinn þátt í því að íslensku bankarnir fengu að vaða inn á breskan markað eins og frægt er orðið. Síðan má spyrja sig hvort Steingrímur Sigfússon sé ekki sekur um landráð varðandi vinnubrögð sín í Icesave málinu er Jóhanna sek um að hafa vaðið yfir þjóðina á skítugum skónum og sótt um aðildarviðræður við ESB án umboðs þjóðarinnar er núsitjandi ríkisstjórn sek um fjöldagjaldþrot heimila eftir hrun, á að dæma hana fyrir að hafa ekki leiðrétt skuldir fólks? Margar spurningar en allar eiga þær rétt á sér.

Ég held að við verðum að hugsa þessi mál mjög vel áður en landsdómur er kallaður saman en útrásarvíkingarnir og bankamennirnir verða sakfelldir samkvæmt dómskerfi okkar og fá þar vonandi þá dóma sem þeir ber að fá.


Breyta þarf gjaldþrotalögum, endurskoða greiðslumat og afnema verðtryggingu.

Í fyrsta lagi þarf að taka gjaldþrotalögin í gegn og breyta þeim þannig að fólk komist af stað aftur í lífinu því algjör forsendubrestur hefur orðið hjá skuldurum vegna banka og ríkisstjórna landsins. Við þurfum að fá fólk af stað aftur og því þarf að breyta lögum og stytta fyrningartíma skulda mikið. Mikið hefur verið rætt um að ábyrgðarmannakerfið væri orðið úrelt og viðskipti ættu að vera eingöngu á milli lántakanda og lánveitenda og þar með tryggingar líka.

Nú vil ég koma inn á furðulegt fyrirbæri sem hefur verið við lýði á Íslandi þrátt fyrir að það eigi engan rétt á sér og er ég þar að tala um svokallað greiðslumat sem er ein mesta fásinna sem hér hefur verið tekin upp. Þetta mat á vissan rétt á sér í löndum þar sem verðtrygging er ekki til staðar og vaxtastig nokkuð stöðugt en greiðslumat gerir ekkert gagn á Íslandi.

Tökum dæmi: Þú ferð í bankann þinn og ferð í greiðslumat og bankinn metur það þannig að þú getir greitt 80.000 kr á mánuði af húsnæðisláni og þú slærð til og kaupir húsnæði. Jú fyrsta greiðslan er 80.000 en síðan hækkar verðbólgan og lánið ríkur upp með henni og eftir tvö ár er greiðslubyrgðin komin í 130.000 og höfuðstóllinn hefur hækkað myndarlega líka. Svo er það annað mál hvort húsnæðið hefur hækkað eða lækkað, það veit enginn og það veit enginn hver greiðslubyrgði af húsnæðisláni er til lengri tíma litið og því er greiðslumat  bara hlægileg aðgerð sem gengur ekki upp á Íslandi.

Ég ræddi við einnkunningja minn sem bjó í Noregi í nokkur ár og sagði hann mér að kerfið þar væri þannig að þú ert í viðskiptum með allt þitt við ákveðinn banka eða sparisjóð og ef þú ætlar að kaupa bifreið eða húsnæði eða jafnvel bara leiga húsnæði þá fer bankinn nákvæmlega yfir öll þín útgjöld og tekjur og síðan færð þú svar við því hvað þú mátt skuldsetja þig mikið og þá er búið að taka tillit til þess að þú eigir fyrir öllum útgjöldum mánaðarins, sumarfríi o.s.f.v og síðan færðu greiðsluplan sem stendur næstu árin, ekkert rugl, þú veist hvað þú þarft að greiða og búið mál og allar greiðslur af lánum eru skuldfærðar af launareikning mánaðarlega. Hugsið ykkur hvar við íslendingar stæðum í dag ef við hefðum getað tekið húsnæðislán hérna áður fyrr á föstum vöxtum (eðlilegum vöxtum) og vitað hvað við þyrftum að greiða á mánuði næstu árin? Með góðri ábyrgri landsstjórn og án óðaverðbólgu verðbóta þá væru það hundruðir miljarða sem hefðu ekki tapast á undanförnun áratugum sem væru í dag í eigu almennings en ekki banka og íbúðalánasjóðs. Hérna þarf verulegar breytingar á öllum sviðum en það eru engin merki um að breitingar séu í sjónmáli, því miður.

Það er vitað að það kostar 94.miljónir að taka 20 miljóna verðtryggð lán til 40 ára, þú greiðir 114 miljónir í heildina miðað við 4% meðalverðbólgu og 5% vexti. Sumir verja þetta og segja að húsnæðið standi undir þessari hækkun lánsins en mér er spurn hvernig þeir reikna það út ef hérna er hrun á 10 ára fresti með tilheyrandi lækkunum á húsnæðisverði. Síðan þarf að taka tillit til þess að á 40 árum fer mikið af peningum í viðhald og svo koma afskriftir á húsnæðið líka. Ég veit um íbúð sem var keypt fyrir tíu árum síðan á 10 miljónir en það fást um 13 miljónir fyrir hana í dag, það er ekki mikil hækkun miðað við verðbólguna.  


mbl.is Lög afnámu ekki sjálfskuldarábyrgð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er að fjara undan okkur með óhæft fólk við stjórn landsins.Þurfum fagfólk til starfa.

Ég er orðin mjög hissa hvað pressan er lítil á þetta fólk sem þykist stjórna hér á landi í dag að koma sér frá völdum, hvers vegna á það að stíga til hliðar? Svarið er einfalt, þetta fólk sem situr í ríkisstjórn Íslands hefur sýnt það rækilega að það er alls ekki hæft í þessi störf og hefur gert landinu mikinn skaða sem mun verða mun meiri eftir nokkra mánuði þegar gjaldþrotunun á eftir að fjölga all rosalega. Ég ætla samt að undanskilja Rögnu dómsmálaráðherra sem hefur unnið mjög vandaða og agaða vinnu í sínu ráðuneyti og vil gjarnan hafa hana áfram sem ráðherra. Ég hjó eftir því hjá Jóhönnu í gær að hún talaði um í sjónvarpsviðtali að nú þyrfti að fara fram heiðarlegt uppgjör á Íslandi, er manneskjan ekki í lagi og hefur hún ekki búið meðal oss frá hruninu, þurfti ekki heiðarlegt uppgjör strax eftir hrun til þess að bjarga heimilinum frá gjaldþrotum og fátækt, hún er veruleikaskert þessi kona og algjörlega vanhæf sem ráðherra. Steingrímur auðvitað þurfti að gera sig breiðan og líkja hruninu við Tyrkjaránið, ok ef þér finnst málið vera þannig Steingrímur þá spyr ég, hverjir eru þjófarnir í dag, hverjir hafa séð til þess að illa farnar fjölskyldur í Íslandi eftir hrun hafa ekki fengið neitt að þýfinu til baka, hverjir hafa staðið fyrir hækkun vöruverðs og olíu, hækkun lána (verðbólgu) svo við tölum ekki um hækkun skatta á fjölskyldur sem gátu ekki tekið á sig aukna skatta. Það þarf ekkert að fela sig á bakvið að það sé verið að tala um einhvern oftalaðan jöfnuð, góðu skattakerfi var rústað og tekið upp kerfi sem fer verst með millitekjufólkið og nú er það sá hópur sem gjaldþrotin blasa við án aðgerða ríkisstjórnar.

Ef við skoðun aðeins nokkra ráðherra, eru þeir eitthvað hæfari enn hrunaráðherrar sem er verið að skamma fyrir vanrækslu, er þetta ekki nákvæmlega eins í dag, þarf ekki að skamma núverandi fólk fyrir vanrækslu og draga fyrir landsdóm á sama tíma og hitt liðið, taka bara allt heila klabbið í einum pakka og dæma það í tveggja ára fangelsi fyrir landráð, það væri tildæmis hægt að fá Bauhaus húsið lánað og látið liðið sitja þar af sér til þess að spara fangelsisbyggingar undir hópinn.

Steingrímur, hefur gerst sekur um spillingu með því að bjarga tveimur fjármálafyrirtækjum eftir að hann varð ráðherra og hann er sekur um að hafa reynt að semja fyrir hönd íslands varðandi Icesave málið er hálfgert landráð miðað við þann samning sem hann lagði fyrir okkur. (óhæfur).

Jóhanna, Yfirgangsseggur sem öllu vill ráða og hefur sótt um ESB aðildarviðræður án þess að hafa umboð þjóðarinnar fyrir því en eins og við vitum vill þjóðin ekki standa í þessu ESB rugli um þessar mundir. Jóhanna valtar yfir fólk og ketti eins og ekkert sé og er með ríkisstjórn í höndunum sem er óstjórnhæf og alls ekki líkleg að vakna. Það þarf ekki að fara yfir verk Jóhönnu þau eru ekki mörg en þau eru illa unnin. Það nýjasta sem heyrst hefur er að Jóhanna íhugi að henda vinsælasta ráðherranum (Rögnu) úr ríkisstjórn til þess að bjarga lífi stjórnarinnar. (Óhæf)

Álfheiður, manneskja sem ætti að vera búin að segja af sér vegna yfirgangs, ekta VG típa. (Óhæf)

Svandís: Stopp, stopp, stopp, stopp, þarf ekki fleyri orð á hana þetta eru hennar embættisverk.(Óhæf)

Gylfi, þó hann sé utanþingsráðherra þá hefur hann skipt um skoðun eins oft og hann skiptir um sokka, hann vildi tildæmis afskriftir á almenning við hrun en ekki eftir hrun þegar hann varð ráðherra. Hefur ekkert gert sem er bitastætt og þó við hefðum engan í þessum stól væri samt allt við það sama, hann er greinilega undir stjórn Jóhönnu og getur því ekki tekið sjálfstæðar ákvarðanir. (óhæfur)

Katrín iðnaðarráðherra, hefur einfaldlega ekki faglega reynslu í embættið, hefur reyndar komið fram með hugmyndir sem eru ágætar en þær eru bara á hugmyndastigi en það er þó meira en VG fólk sem vill bara gera eitthvað annað í atvinnumálum en það eru engar hugmyndir. Málið er að við þurfum aðgerðir í atvinnumálum en ekki óunnar hugmyndir. Myndi segja að eftir 3 til 4 ár á þingi gæti Katrín komið til. (óhæf sem stendur)

Kristján samgönguráðherra, já nú er ég farin að setja spurningamerki við hann, hefur ekki áorkað neinu undafarin misseri og að ætla að setja 25 miljarða í vegagerð við núvernda aðstæður kallar einfaldlega á allt of mikla gjaldeyriseyðslu og allt of fá störf á móti (óhæfur)

Allir hljóta að sjá að þetta gengur alls ekki upp eins og málin standa í dag og ekki höfum við fólk á þingi til þess að taka við ráðherrastólunum því verður að ráða fagfólk í stólana sem leggur síðan fram faglega unnin frumvörp fyrir alþingi.

 


Svipuð óstjórn á alþingi í dag og var fyrir hrun, eingöngu annars eðlis.

Þegar maður veltir fyrir sér hvernig alþingi starfar fyrir og eftir hrun þá er þetta bara svipuð staða eini munurinn er að óstjórnin er annars eðlis en það er til fólk sem er bara ánægt með störf alþingis í dag sem er mér óskiljanlegt?

Fyrir hrun var greinilega algjört stjórnleysi í landinu og engin þorði að taka á vandamálunum og því fór sem fór, allt hrundi. Það er í raun ekkert sem hefur komið mér á óvart í skýrslunni frægu, þetta eru allt saman gjörningar sem við horfðum upp á í nokkur ár en stór hluti þjóðarinnar bara rúllaði með fyrir utan einn og einn hagfræðing sem reyndi að vara við því sem væri að gerast en það var ekki hlustað á þannig menn frekar en í dag. 

Í dag eru flokkar í ríkisstjórn sem eru alls ekki sammála um hvaða leiðir eigi að fara í mörgum málum, spillingin snýst í dag um að verja fjármagnseigendur og hrekja almenning í gjaldþrot ásamt því að bjarga ákveðnum fyrirtækjum sem eru svo rekin á okkar kostnað með afleiðingum sem eiga eftir að koma í ljós. Það er í raun engin ákveðin stefna í gangi í landinu í dag eins og td atvinnustefna, hver er hún. Skoðun aðeins hugmyndir varðandi vegagerð en þar er talað um háar upphæðir eða 25 miljarða næstu 3 til 4 ár en hvert fer meirihluti þessara fjármuna, nú í gjaldeyriskaup, í innflutning tækja og hráefnis í vegagerðina, minnir það ekkert á gangrýni á fyrri ríkisstjórnir um allan innflutninginn sem fylgdi stóriðjunni eða hvað? Þessi vegagerð skapar nú ekki mörg störf. Það er meira áríðandi að efla útflutningsgreinar við þessar aðstæður en það virðist nú frekar eiga að hræra upp í td. sjávarútveg og jafnvel tefla þeirri grein í tvísýnu, þetta er bara ekki réttur tími í svoleiðis aðgerðir. Nýjar raunhæfar leiðir eins og sölu á raforku í gegn um sæstreng virðast ekki vera á borðinu en það gæti þýtt fimmföldum á því verði sem fengist fyrir raforkuna og fjármögnun er einföld því mörg erlend fyrirtæki eru tilbúin að fjármagna þannig verkefni sem kallast græn orka. Heimilin voru skilin eftir og nú eru þau að fara í gjaldþrot hvert á eftir öðru og allt of seint að bjarga málum þar og í raun bara sami sandkassaleikurinn í gangi í þeim málum. Icesave klúðrið sem við ræðum ekki nánar, það er búið að sækja um ESB aðildarviðræður sem munu kosta okkur gríðarlega fjármuni en það er tímaskekkja að mínu mati og svona má lengi telja áfram um verk núverandi ríkisstjórnar. Er ekki nokkuð til í því að þetta sé svipuð óstjórn og var hjá fyrri stjórnum eingöngu annars eðlis? 


Björgvin segi af sér þingmennsku strax í dag.

Það ætti að vera verk númer eitt að Björgvin G.Sigurðsson segi af sér þingmennsku nú þegar og starfi ekki framar á vegum hins opinbera.
mbl.is Tólf gerðu athugasemdir við skýrsluna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins eitthvað sagt af viti, frestum viðræðum um 3 til 5 ár.

Þó Ingibjörg sé ekki pólitíkus að mínu skapi þá ætla ég að hrósa henni fyrir að koma fram með þá skoðun að fresta eigi aðildarviðræðum við ESB, þetta er það skynsamlegasta sem heyrst hefur á íslandi í langan tíma og vonandi tekur ríkisstjórnin á málinu og leggur aðildarumsókn til hliðar í nokkur ár. Betri niðurstaða er ekki til og mun spara okkur ómælt magn af peningum, það má svo skoða það síðar hvort áhugi er að skoða þessi mál á ný.
mbl.is Betra að fresta ESB-viðræðum en halda þeim áfram í óvissu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lífeyrir fólks er ekki fé sem á að leika sér með, einfalt mál.

Hvað varðar tap lífeyrissjóða vegna áhættubrasks þeirra með verðbréf og hlutabréf er ekkert annað að segja en það að þetta eru ekki ykkar persónulegu peningar, þetta eru okkar peningar. Hvaða kröfu gerum við fólkið? Ekki mjög flókið, við viljum fá alla peningana okkar til baka með hæfilegri ávöxtun, kröfurnar eru ekki meiri en þetta.

Héðan í frá fer ég fram á að lífeyrissjóðir landsins heiti því til landsmanna að þeir fái allt sitt fé til baka með einhverrri lágmarksávöxtun 3 til 4% eða svo, þetta gera sterkustu sjóðir þýskalands en þeir standa við sitt og þar með eru allir ánægðir. Þessar afskriftir af séreignasjóðum landsmanna allt að 25% eru forskastanlegar og hefði aldrei átt sér stað ef rétt hefði verið staðið að málum og síðan er verið að lækka lífeyrissgreiðslur fólks á sömu forsendum, sjóðirnir hafa tapað svo miklu að þeir standa ekki undir greiðslum óskerts lífeyris.

Það er allatf verið að tala um að verðtryggingu megi alls ekki afnema vegna lífeyrissjóðanna, ef það sé gert standi þeir illa, bíðið nú við, það er búin að vera verðtrygging hérna í tugi ára en samt standa sjóðirnir illa? Nei nú þarf miklar breytingar, mjög miklar.


mbl.is Lífeyrissjóðir geri strangari kröfur til útgefenda verðbréfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara misskilningur hjá þér Álfheiður.

Forstjórinn hlýtur að hafa fullan rétt á því að snúa sér til ríkisendurskoðanda ef honum sýnist svo og alls ekki bundin því að ræða við ráðuneytið fyrst. Ef sú regla er alltaf við lýði þá er hægt að svæfa fullt að málum sem sýni slæmar og óvirðulegar vinnureglur eins og greinilega hefur gerst í þessu máli, þetta er ekkert annað en yfirgangur og frekja hjá ráðherra og er afsögn mjög eðlileg leið.  


mbl.is Bréf byggt á „misskilningi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En atvinnumálin, stjórnin er föst í sama sporinu.

Æ ég veit það ekki það virðist alltaf verið að undirrita allan asskotann sem engu máli skiptir fólkið og atvinnulífið máli nema kannski að litlu leiti óbeint. Ég er farin að hafa verilegar áhyggjur af því að ríkisstjórnin ætli ekki að gera nokkurn skapaðan hlut til þess að koma íslandi af stað aftur og held ég að ástæðan sé sú að það er alls ekki mögulegt fyrir þessa stjórn að ná saman um tildæmis að fara af stað með stórframkvæmdir sem bíða. Allt er þetta vegna VG fólks sem er á móti öllum framkvæmdum sem okkur standa til boða og ef Samfylkingin pressar á að fara að stað þá er stjórnin sprungin, þetta er bara bláköld staðreynd og að mínu mati er stjórnin alls ekki starfhæf eins og sést hefur undanfarna mánuði.
mbl.is Samkomulag um þrjú mál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Segjum upp samtarfi? "jæja, það er kallað samstarf" við AGS. Förum okkar leiðir.

Hæstsvirtu ráðamenn (bara hátíðlegur í dag) þá er komin tími til að við stöðvum þetta einelti sem AGS er búið að láta yfir okkur ganga, hisjið nú upp um ykkur brækurnar og segið þessu já ok, samstarfi upp og farið að skoða nýjar leiðir ef það vantar frekari fyrirgreiðslu fyrir okkur íslendinga, það eru leiðir en það þarf bara að líta í aðrar áttir heldur en þessa einu, það eru til áttir eins og austur bara til að mynna ykkur á það. Hættum að vera litla þjóðin sem verður að gera allt sem aðrir segja okkur að gera og verðum bara við með okkar gríðarlegu tækifæri, segja ekki sérfræðingar að ef ísland tekur þá stefnu að koma sæstreng yfir til evrópu og fara að selja raforku þangað að við yrðum ríkasta þjóð í heimi á undraverðum tíma, þetta jafnist á við að vera risastór gullnáma, hefur einhver kjark til þess að fara að kynna sér þetta mál til hlýtar, þá á ég við að byrja á því strax? Takið eftir, ekkert álver, kostnaður á við Kárahnjúka, græn orka og mjög hátt verð sem við fáum fyrir afurðina, er eitthvað að þessu VG fólk, fyrir utan að það verður að virkja aðeins en það er bara okkar gullnáma, græna orkan sem við getum framleitt. Já ég veit VG en virkjanir geta verið fallegar líka ef hönnunin er rétt svo það er engin afsökun, meira segja eru sumar virkjanir með aðdráttarafl fyrir ferðamenn, ég hef skoðað virkjanir og það er bara mjög fróðleg og skemmtileg upplifun.


mbl.is Ísland kann að skorta stuðning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband