Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál

Alltaf er hann Árni Páll tilbúin að koma í fjölmiðla og segja ekki neitt?

Þetta er alveg merkilegt að þessi maður skuli vera ráðherra miðað við að vinnubrögð hans skila bara alls engu, allavega ekki hvað skuldamál fjölskyldna varðar. Hvar hefur hann verið undan farið ár, hefur hann ekki heyrt í fólkinu í landinu. Var hann kannnski í sumarleyfi með ríkisstjórninni, ok ef svo er þá skil ég aðgerðarleysið.
mbl.is Afar fá skuldamál leyst með skuldaaðlögun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bilaðar hugmyndir, breyta bílalánum í verðtryggð lán með 15% vöxtum???

Ég held að Árni hljóti að hafa dottið og þurfi að láta líta á sig, þetta eru allavega ekki heilbrigðar hugmyndir sem eru að koma fram núna. Ég las í fréttum að hugmyndin sé að þvinga eignaleigufyrirtækin að afskrifa hluta af bílalánunum og breyta þeim síðan í verðtryggð krónulán með 15% vöxtum, hvað er að gerast hér. Verðtryggð lán, er það ekki stefna ríkisstjórnar að minnka vægi verðtryggingar eða allavega kom það fram á margfrægum blaðamannafundi í síðustu viku þegar var reynt að ljúga því að okkur að eitthvað ætti að fara að gera varðandi verðtrygginguna en þá var það bara að bjóða upp á fastavaxtalá í meira mæli en svo kemur þetta í andlitið á fólki. Ég hefði kannski séð fyrir mér ca 10% fastvaxtalán ef lánunum er breitt í krónulán en ekki 15% plús 8,5% verðtryggingu sem gerir samtals 23,5 % vexti því þessi blessaða verðtrygging er ekkert nema þjófur sem skilar vaxtamun til lánveitenda. Að mínu mati þá verður að fara að stöðva svona klikkaðar hugmyndir áður en þeir komast í gegn en stjórn þessi er ekkert nema sandkassa og gæluverkefnaleikur einstakra aðila sem vilja einungis koma sínu í gegn með lagasetningum en samstaða og raunhæfar tillögur hafa ekki enn sést og hvað skal gera? 
mbl.is Rætt um að breyta erlendum bílalánum í innlend
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðar tillögur og nú er bara og snúa kyrrstöðu í uppbyggingu og réttlæti.

Að mínu mati eru þetta tillögur sem væri hægt að ná samstöðu um ef Steingrímur og Jóhanna víkja sætum og annað fólk tæki við, ekki þarf að kjósa, eingöngu að ná samstöðu allra á alþingi og bretta upp ermarnar og fara að vinna. Á meðan hjúin eru þarna gerist ekkert það vitum við öll, sama hvar við erum stödd í pólítík. Nú legg ég til að það verði hafin áróður að koma þeim tveim frá völdum og byrja endurreysnarstarfið, hafið ekki áhyggjur af Svandísi, hún segir af sér sjálfviljug ef einhver störf fara að skapast í landinu. Gott hjá Framsókn.
mbl.is Vilja endurskoða samstarfið við AGS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hvers samstarf við niðurrifsstjórn?

Jóhann er alltaf hvo klár í kollinum, getur hún svarað til hvers Samtök atvinnulífsins eigi að starfa með stjórn sem hlustar ekki á grundvallarrreglur???
mbl.is Hvetur SA til áframhaldandi samstarfs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú erum við á hálum ís íslendingar, þarf ekki að ræða svona stórmál áður en því er klúðrað?

Ég hef nú áður bloggað mínar skoðanir á kvótamálum án þess að vera útgerðarmaður og eru þær alveg óbreittar og finnst mér afskaplega illa staðið að lagabreytingum einhliða frá hendi ríkisstjórnar, hvaða pælingar liggja þarna á bakvið er stjórnin að reyna að fela sína verkleysu á öllum öðrum sviðum því VG var með einhverjar hugmyndir að breyta kvótakerfinu? Þetta er þvílík fásinna og illa staðið að þessu að stórskaði á eftir að hljótast af, við erum að ræða stærstu útflutningsgrein okkar, skiptir hún svona litlu máli að hægt sé að fúska með málið og koma öllu í bál og brand í stað þess að reyna að ná sátt um breytingar á kerfinu við þá menn sem hafa veiði reynsluna sem ég er handviss um að hægt er að ná. Það er strax farið að draga saman seglin í fiskvinnsluhúsum eins og Dalvík og hvað þýðir það, ríkið þarf að greiða hærri atvinnuleysisbætur og svo koll af kolli allt fer í rúst vegna ofstjórnar VG í þessu máli. Við skulum aðeins fara okkur hægar í þessu máli og ekki dæma kerfið og halda að við fáum pening beint í ríkiskassann bara ef kerfinu er breitt, nei það eru tugur atriða sem þarf að útfæra mjög vandlega áður en sátt næst um breytingar á kerfinu, það er besta leiðin fyrir íslendinga að mínu mati. Það er ekki allt eins slæmt og ríkisstjórnin okkar ekki einu sinni kvótakerfið.

Að lokum, til hamingju ríkisstjórn af hafa rústað stöðugleikasáttmálanum.


mbl.is Vilja að skötuselslög verði afnumin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reynið nú að skilja að þetta er ekki hernaður.

VG sér ekkert nema hernað í þessu dæmi en þarna er um að ræða fyrirtæki sem leigir út þotur og er ekki í hernaði. Það er bara alveg sama hvaða atvinnutækifæri koma hér upp þá er VG á móti eins og sést best á atvinnustiginu í landinu.
mbl.is Hafna algerlega her í Keflavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fiskvinnsluhús loka, þetta er allt að koma hjá VG að slátra frystihúsunum líka.

Allt á réttri leið hjá VG og SF, slátra á öllum atvinnugreinum landsins. 
mbl.is Óttast kvótaskort og stöðvun í fiskvinnslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki ríkisstjórnin orðin að fjárglæfrafólki? Tekin við af víkingunum?

Ég get bara ekki séð betur en að það sé alveg hægt að heimfæra það á ríkisstjórn íslands að hún sé samsafn af fjárglæframönnum. Hvað er annað hægt að segja eftir þær hamfarir sem stjórnin hefur sýnt varðandi auknar álögur á almenning og síðan koma nýjar og nýjar leiðir til þess að reyna að ná auknum skatti af skítblönku fólkinu sem á skerinu býr. Ég bara spyr hvort þetta sé bjóðandi þjóð eins og íslandi því það eru til aðrar leiðir sem ekki hefur verið litið á hjá þessari stjórn, eins og td. að afla tekna með fjárfestingum og aukinni atvinnu en stjórnin stendur í vegi fyrir öllum framförum. Þetta gengur ekki við þurfum aðrar áherslur.
mbl.is Nægir ekki til að lina þjáningar heimilanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veruleikaskert fólk við stjórn hér á landi. Skattar á afskriftir.

Maður er eiginlega bara orðlaus yfir þessu útspili og gerir sér ekki grein fyrir hvað er verið að fara. Við erum að tala um venjulegt fólk sem verður fyrir stökkbreittum hækkunum á lánum vegna stjórnvaldsmistaka og vegna þess er fólki hefnt ef það fær einhvern hluta af hækkununum felldan niður. Það er það sem ég segi, þessi stjórn hefur gefist upp og á að blása til fréttamannafundar klukkan 12,00 í dag og segja af sér, þetta hreinlega er ekki hægt lengur.

Mér datt nú í hug ákveðin maður sem ekki var með lýðræðislegar hvatir á sínum tíma þegar ég sé myndina af Steingrími með þessari frétt?


mbl.is Afskriftir verða skattlagðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VG úr ríkisstjórn strax, við þurfum störf, strax.

Þetta gengur ekki lengur þessi þröngsýna skoðun VG fólks á landinu, því er eina leiðin að koma þessum flokki úr ríkisstjórn og þar verður hann ekki næstu 200 árin eftir þetta ömurlega ár sem hann hefur verið í stjórn ef stjórn má kalla.
mbl.is VG hafnar alfarið einkaflugher
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband