Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál

Eyðileggur íslenskt þjóðfélag aftur og aftur. Dæmi!!! ungt fólk, lesið þetta.

Verðtrygging er það hroðalegasta sem yfir íslenska þjóð hefur dunið og alveg sama hvað hver segir þetta er trygging lánveitenda sem gerir það að verkum að hinn almenni borgari sem tekur lán með verðtryggingu getur ekki gert greiðsluáætlanir sem standa og því hefur greiðslumat alltaf verið mjög fyndinn aðgerð. Þú ferð í svokallað greiðslumat og allt í fína, þú getur fengið 20.000.000 miljón króna lán til 40 ára og ef verðbólga verður að meðaltali 4% (bjartsýni) þá greiðir þú 112.000.000 þegar upp er staðið en ef verðbólga hækkar og er 10% í nokkur ár og meðaltalið hækkar í 6%, hvað þá, hvað er að marka greiðslumat við þær aðstæður og hver tekur á sig ábyrgðina að fullu, nú, lántakandinn að sjálfsögðu, þetta er búið að bjóða okkur í 40 ár og svo kemur enn einn þingmannasauðurinn og segir að lítið sé hægt að gera í þessu, svívirðilegt að tala svo um mál sem er okkur lífsnauðsynlegt til þess að byggja upp nýtt þjóðfélag án verðtryggingar, þá fyrst erum við komin á sama plan og flestar aðrar þjóðir húsnæðislán með 3 til 4% vexti án verðtryggingar með sömu afborgun allan tímann, það er hægt að gera áætlun á þannig lán. Til umhugsunar að ef tekið er 20.000.000 kr lán með 6% vöxtum til 40 ára þá er heildargreiðslubyrgðin 60.000.000 lægri en verðtryggða lánið sem ég nefndi hérna fyrr, athyglisvert. Látið ekki bjóða ykkur þetta lengur engin verðtryggð lán lengur, verðtrygging eru vextir sem vextir safnast ofan á, stórhættulegt vaxta, vaxta fyrirbæri.
mbl.is Meinsemd hve verðtrygging er fyrirferðarmikil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spilling Steingríms að koma í hausinn á okkur.

Þá er það að byrja að skila sér spillingarvinnubrögð fjármálaráherra að henda 25 miljörðum í þetta fyrirtæki á 2% vöxtum og óverðtryggt, getum við almenningur fengið svona fyrirgreiðslu? Þetta er sennilega byrjunin, því á sama tíma hennti hann einhverjum miljörðum í Saga Capital sem er fjármálafyrirtæki í kjördæmi Steingríms. Hverrs vegna var aldrei neitt mál út af þessu í fjölmiðlum? Nei það er nákvæmlega sama spillingin í gangi og var fyrir hrun og fólki og fyrirtækjun svo mismunað að??? Það er ekki til orð yfir það sem mig langar að segja. Svona er VG og Samfylkingin er helmingi verri að þessu leiti.
mbl.is Lausafjárskortur ýtti VBS í fang FME
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkið er allt að drepa og það með ásetningi, stefnan gengur ekki upp.

Enn eitt fyrirtækið af hundruðum að leggja upp laupana, Jóhanna hlýtur að vera stolt af því að það eykst stanslaust ásóknin á lista atvinnulausra en reyndar var hún bara virkileg ánægð fyrir hálfum mánuði er hún sagði í sjónvarpsviðtali að það gleddi hana að það skuli ekki vera fleiri á skránni frægu (ekki nema 9%) en það er að breytast og breytist fljótt, mjög fljótt. Við verðum að fá annað fólk til þess að taka við stjórn landsins tímabundið, annað fólk en situr á alþingi í dag.
mbl.is Búið að loka Friðriki V.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æi, hættu nú þessum endurtekningum, það er búið að vera stutt í lausn í marga mánuði.

Það er alveg ótrúlegt að hlusta á tvíeykið hana Jóhönnu og Steingrím koma á sitthvorum fjölmiðlinum í marga mánuði og segja bæði alltaf það sama "það er stutt í lausn á ICESAVE" allavega hundrað sinnum höfum við heyrt þetta og ekkert að marka hvað þau segja. Þetta er örvænting.

Æ, ég ætlaði ekki að blogga um icesave fyrr en eftir laugardaginn en ég viðurkenni þó mistökin. 


mbl.is Segir ekki langt í land í Icesave-deilu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefðu betur hlustað á Ingólf H. Ingólfsson á sínum tíma.

Ingólfur er merkilegur maður sem hefur predikað í fjöldann allan ára yfir íslenskum stjónvöldum, lífeyrissjóðum og almenningi hvernig fara skal með peninga og að það sé varúðar þörf á ýmsum sviðum peningastjórnar. Eins og flestir vita rekur Ingólfur Spara.is og heldur fjöldann allan af námskeiðum fyrir almenning sem eru mjög góð að mínu mati og allir ættu að sækja og verða meðvitaðri um peninga og hvernig verðtryggð lán leika okkur grátt svo eitthvað sé nefnt.

Aðalerindi þessa bloggs er að Ingólfur barðist lengi fyrir því lífeyrissjóðir færu betur með fé landsmanna og fjárfesti eins öruggt og mögulegt er því krafa almennings sem á í lífeyrissjóðum er einfaldlega sú að fólk vill fá alla peningana sína til baka sem örlítilli ávöxtun. Þetta er einmitt mergurinn málsins, það er ekki gerð meiri krafa enda eru þvílíkar upphæðir inn í þessum sjóðum að ekki þarf háa ávöxtun til þess að þeir raki inn miljörðum í vaxtatekjur og síðan er bara að hafa yfirbygginguna eins litla og mögulegt er því þetta gengur nánast sjálfvirkt fyrir sig ef ekki þarf fjölda fólks til þess að vinna í fjárfestingadeildum sjóðanna til þess einmitt að fjárfesta í eignum sem eru áhættufjárfestingar og hvað gerðist 400 til 500 miljarðar eru tapaðir og ekki er allt enn komið upp á borðið, það er búið að afskrifa gríðarlegar upphæðir af séreignasparnaði fólks sem er fáranlegt að sjóðirnir hafi haft leyfi til að leika sér með þá peninga líka ásamt iðgjöldunum.

Já Ingólfur hafði rétt fyrir sér og ef hlustað hefði verið á hann væri staða sjóðanna sterk og kæmi það íslandi vel í dag. 


mbl.is Töpuðu hundruðum milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki komið nóg af þessi bulli öllu saman.

Maður er nú alveg búin að fá upp í háls af þessu ruglmáli og ég rak augun í frétt í gærkvöldi þar sem talað var um að íslendingar væru með nýtt tilboð þar sem höfuðstóllinn hafði verið hækkaður frá síðasta tilboði sem bretar og hollendingar hafa verið að melta, sem sagt, eftirgjöf sem er nú ekkert nema uppgjöf í þessu máli.

Nú segi ég í síðasta skipti fyrir laugardaginn varðandi Icesave, kjósum öll, það skiptir máli að sem allra flestir kjósi, enga leti, mæta á kjörstað og kjósa á móti þessu, ólögum og sjáum til þess að fólk út í evrópu átti sig á því að ekki er sjálfsagt að stjórnvöld traðki á því og láti það greiða skuldir fjárglæframanna.

Síðan fer málið fyrir dóm og við vinnum það þar er það ekki málið?


mbl.is Utanríkisráðherra bjartsýnn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enga embættismenn í viðræður.

Alveg dæmigert að blanda slöppum embættismönnum inn í viðræðurnar, dæmt til að misheppnast að ná samningun.
mbl.is Fundur fyrir hádegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kemur alls ekki á óvart, er bara byrjunin.

Þetta er eru bara dæmigerð viðbrögð þar sem vinstri stjórn situr við völd og sparifé landsmanna mun líka leita til útlanda sem er líka eðlilegt, hérna er engin ávöxtun á féð. Þetta er eitt af mörgun atriðum sem gerir það að verkum að vintri stjórnir ná aldrei inn þeim sköttum sem þær áætla því það er eins og enginn vinstri maður átti sig á að svona er þetta og hefur alltaf verið og á þetta við alla skattaflokka, beina skatta og óbeina skatta.
mbl.is Lagabreytingar fæla á brott skattgreiðendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AGS eru bara glæpasamtök.

Þarna eru á ferðinni glæpasamtök sem eru skipuð fjármagnseigendum sem gera allt til þess að hirða upp bestu bitana þar sem þeir drepa niður fæti, það þarf ekki mörg orð um þetta mál því búið að að skrifa tugi greina þar sem vinnubrögð AGS er fordæmd. Fólk verður að átta sig á því að ímynd íslands er að styrkjast og mun styrkjast enn frekar, hvers vegna, jú, vegna þess að við stöndum í fæturnar og látum ekki bjóða okkur hvað sem er, þá á ég auðvitað við almenning en ekki ríkistjórnina. Það hefur alltaf verið hægt að fá lán frá fleirum en AGS og norðurlandaþjóðum. Við erum að svínbeygja breta og hollendinga og gerum það sama við AGS klíkuna.

 


mbl.is Vilja hafna aðstoð AGS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þráhyggja að plaga hjúin eða eru það stjórnarlokin?

Ég spyr, hvers vegna ættum við að einangrast hvað höfum við gert af okkur til þess að einangrast? Þegar stórt er spurt er oft fátt um svör, þarna er verið að deila um lög og reglur sem hefur verið gert  frá fyrstu tíð og er kallað "engin er sekur fyrr en sekt er sönnuð". Við íslendingar þurfum að fá dóm til þess að fá það staðfest hvort við eigum að greiða skuldir Björgúlfanna og ef við eigum að gera það þá gerum við það en ef dómur fellur okkur í hag þá gerum við það ekki.

Eins og staðan er í dag þá er ég ansi hræddur við að Jóhanna og Steingrímur séu lasin og nauðsynlegt að senda þau í blóðprufu og fá úr því skorið hvort það sé þráhyggja sem er að plaga þau eða hvort það er kvíði fyrir starfslokum sem ráðherra. Eitthvað er að, því viðræðum er lokið og þarf ekkert að velta sér upp úr því lengur og nú kjósum við.

Það eru fleiri þjóðir en ESB þjóðir í heiminum sem geta lánað okkur þetta smotterí sem vantar til þess að geta greitt að lánum í lok næsta árs en ég held að tímanum sé best varið í að afla tekna til þess að greiða af lánum en ekki taka lán (það gerðu útrásarvíkingarnir) tækifærin eru gríðarleg mörg á íslandi með gengið svona skráð en það þarf þá að vinna í málinu. 


mbl.is Times: Hætta á einangrun Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband