Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál
12.3.2010 | 17:36
Næstu skref fyrir heimilin, er það ekki næsta hænufet?
Steingrímur segir að næstu skref fyrir skuldug heimili séu að lýta dagsins ljós fljótlega, það finnst mér frekar seint þar sem svo mörg heimili eru orðin gjaldþrota nú þegar og takið eftir einu, þetta er svona leyndarmál sem engin má vita fyrr en síðar, þekkið þið þessi vinnubrögð?
Nei Steingrímur þú vinnur ekkert traust framar, þín pólítíska framtíð er búin þar sem þú gleymdir stefnu þíns eigin flokks og lést Jóhönnu teyma þig á asnaeyrunum út í vitleysu.
![]() |
Njóta heimilin afskriftanna? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.3.2010 | 11:16
Algjört kjaftæði að þessi aumingjastjórn sitji enn.
![]() |
Þreyttur á þessu kjaftæði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nú er það alveg morgunljóst að þetta er stjórnvaldsákvörðun að koma heimilum ekki til hjálpar og hrekja þau í gjaldþrot en á sama tíma afskrifa hundruði miljarða af útrásarvíkingum og koma fjármagseigendum til aðstoðar og tryggja þeirra fé. Nú eru bankarnir eins og almenningur veit að hirða upp eignir út um allt land, reka fólk úr íbúðum sínum og síðan er afskrifað og reynt að selja eignina, þetta er vinnubrögð helvítis að mínu mati og þau gerast undir stjórn félagshyggjustjórnar. Það er það sem ég segi að það er fámenn klíka sem er að störfum og þar tekur félagshyggjufólkið fullan þátt í leiknum, sjáið sem dæmi Árna Pál Árnason eru þetta eðlileg vinnubrögð hjá manninum undanfarna mánuði svo ekki sé minnst á tvíeykið.
Svona ykkur að segja þá heyrði ég alveg óvart samtal tveggja aðila sem snerist um það að annar þeirra var að reyna að kaupa eign að banka sem bankinn hafði tekið yfir og var um einbýlishús að ræða. Sá aðili sem var að reyna að kaupa sagði að þetta hefði nú ekki verið mikið mál að ná samningum, bankinn hafði samþykkt að afskrifa sjö miljónir af húsinu til þess að umtalaður gæti keypt það af bankanum og gekk það eftir. Hvers vegna á andsk.... var ekki hægt að afskrifa þessar sjö miljónir af fyrri eiganda og hann hefði sennilega haldið heimili sínu án þess að ég viti neitt hver staða hans var en hundruðum eða þúsundum heimila hefði verið hægt að bjarga á þennan hátt að afskrifa og gefa fólki möguleika að halda heimili sínu.
Það er líka alveg morgunljóst að krafa framsóknarmanna fyrir síðustu kosningar að afskrifa þyrfti 20% á línuna var alveg raunhæf og fær leið, það sést á því að lánin eru færð yfir í nýju bankana á hálfvirði eins og Sigmundur Davíð var að reyna að tyggja ofan í fólk í landinu en það var ekki mark tekið á orðun hans, kannski hefði verið hyggilegra að flykkjast í kring um hans flokk og tryggja honum góða stöðu á þingi frekar en þessi ósköp sem við sitjum uppi með í dag. Kannski væri staðan önnur í dag ef Sigmundur væri í einum af þessum frægu stólum. Ef 20% hefðu verið afskrifuð strax þá værum við með miklu fámennari hóp sem þyrfti viðbótaraðstoð í stað þess að 20% heimila eru nú þegar tæknilega gjaldþrota og það fjölgar mjög hratt í þessum hópi. Þessi stjórn er ekki að gera neitt í þessum málum þótt forsætisráðherra boði að greiðsluaðlögun þyrfti að endurskoða en sú aðgerð er bara markleysa og ekkert til þess að binda neinar vonir við, það sem við þurfum eru alvöru aðgerðir sem blása lífi í hjörtu okkar og gefa okkur von um að sjá til sólar.
Þó ég nefni framsóknarflokkinn hér þá er það eingöngu vegna þess að hann boðaði aðgerðir sem hefðu komið okkur mjög vel en við fengum því miður ekki að upplifa og sjá útkomuna á. Þið þurfið ekki að skrifa um þáttöku framsóknar með hinum og þessum í stjórn því það er ekki það sem skiptir máli. það eru aðgerðir sem skipta máli, sama hver höfundurinn af þeim er.
![]() |
Lánin færð yfir á hálfvirði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.3.2010 | 15:01
Detta mér nú allar dauðar lýs úr höfði ef einhverjar eru.
Það eina sem er hægt að segja við þessu að það eigi áfram að þenja úr ríkisbatteríið, þetta er alveg sama stjórnunarbatteríið og var hérna áður fyrr svo nú sjáið þið það vinstra fólk, þetta er ekkert betra en var, óstjórn áfram í óbreyttri mynd eins og má sjá á öllum verkum stjórnarinnar.
(öllum verkum? Verkunum tveimur er betra, icesave og ESB umsókn)
![]() |
Ríkisstjórnin áformar nýjar ríkisstofnanir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.3.2010 | 14:48
Aðgerðir í mýflugumynd, aumingjastefna stjórnvalda í atvinnumálum.
Fresta, fresta og aftur fresta greiðslum almennings og fyrirtækja en engar haldbærar aðgerðir, þetta eru vinnubrögðin undanfarið ár og hvert fyrirtækið á eftir öðru fer í þrot og atvinnulausum fjölgar. Ef svona er haldið áfram, segjum bara í 3 mánuði, hvað þýðir það? Sennilega að ca 30 til 50 minni fyrirtæki fara í þrot og segjum til að vera hógvær að 5 manns vinnu hjá hverju fyrirtæki, það gerir það að verkum að 150 til 250 manns verða atvinnulausir og fara á framfærslu ríkisins og síðan bætist við þetta tjón, tapaðar skattakröfur, tapaðar lífeyrissjóðskröfur, lánadrottnar tapa, húsnæði sem banki eignast eða húsnæði sem ekki er hægt að leiga út og síðan er það keðjuverkunin. Nei nú er svo komið að stjórnvöld hafa með aðgerðaleysi sínu skaðað íslenskt atvinnulíf það mikið að við erum nánast komin fram á ystu brún og nú má fara að hafa alvarlegar áhyggjur af atvinnumálum. Dæmið hérna fyrir ofan er bara lítið dæmi því ef einhver stærri fyrirtæki fylgja með eykst skaðinn stórkostlega. Við verðum að fá einhverjar breitingar í stjórnkerfið mér er sama hverjar þær eru, einungis að eitthvað verði farið að vinna í atvinnumálum þjóðarinnar.
Ég hef nú mikið hugsað um ferðamannbransann sem gengur mjög vel um þessar mundir en það er svo komið víða um land að enga gistingu er að fá vikum saman og því takmarkað hvað hægt er að auglýsa upp land og þjóð og fjölga ferðamönnum svo um munar. Ástandið er bara þannig að enginn þorir að hefja uppbyggingu á nokkrum hlut því stefnuleysið er algjört í þessu landi og enga aðstoð að fá en þarna er vissilega tækifæri sem gæti skilað okkur miljörðum í gjaldeyristekjur til viðbótar sem er en það virðist eiga að láta það fara fyrir veður og vind.
![]() |
Brugðist við greiðsluerfiðleikum fyrirtækja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.3.2010 | 14:18
Icasave er óleysanlegt með þessa ríkisstjórn, það er svo einfalt.
Ég get ekki séð að þetta ráðherralið eins og Jóhanna og Steingrímur sem þykjast hafa efni á því að glotta yfir skoðunum annarra í Silfri Egils í gær, geti nokkurn tímann leyst þetta icesave mál. Þau fá alla upp á móti sér og eru mjög dugleg við það en það er þeirra eini dugnaður, almenningur er komin með upp í háls og þessu fólki og aðgerðaleysi þess, og hluti þingflokks vinstri grænna (skynsami hluti flokksins) er búin að fá nóg og nú stjórnarandstaðan sem er ekki líkleg til þess að hjálpa þessu ósjálfbjarga, máttlausa og leiðtogalausa liði í gegn um eitt né neitt mál.
Ég er á því að að þegar samninganefndin var að ná lendingu í málinu í byrjun síðustu viku þá hafi Steingrímur farið að blanda sér í málið með einhverjum embættismannafundum á bak við tjöldin og komið málinu í baklás enn á ný, þetta lyktar mjög þannig ef þið spáið í það. Nefndin dró sig til baka og embættismenn héldu fundi sem við fengum ekki að vita um hvað snérust og ekkert gerðist eftir það. Samninganefnd með fullt umboð á að klára málið en ekki embættismenn á bak við tjöldin.
Ég er stoltur af þjóðinni að mæta og kjósa um þetta Icesave mál og sýna alheiminum að við látum ekki troða okkur undir átakalaust.
![]() |
Karl Th.: Töfin hefur þegar kostað tugi milljarða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.3.2010 | 08:55
Þjóðin hefur gefið skít í vinnubrögð stjórnar, afsögn strax í dag.
![]() |
Ríkisstjórnin hefur fulla trú á viðunandi niðurstöðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.3.2010 | 15:18
Jæja, nú þurfum við nýtt fólk í brúnna, utanþingsstjórn.
Nú finnst mér vera tímamót til þess að fá nýtt fólk til stjórnar landsins og vil ég fá Helga Magnússon formann samtaka iðnaðarins sem fjármálaráðherra, frábær karakter sem er með góðar og ákveðnar hugmyndir um endurreisn landsins og þetta er maður sem talar eins og leiðtogi en við höfum ekki haft almennilegan leiðtoga í langan tíma. Það er fólk inn á milli ráðherrana sem gæti verið hægt að nota áfram eins og Rögnu dómsmálaráðherra, held að hún sé að vinna gott verk, spurning með Katrínu iðnaðarráðherra hún er að koma með ágætis hugmyndir en vantar eldmóðinn sem má kannski blása í hana, eins með Katrínu Jakobsdóttir held að hún sé mjög vandvirk í sínu starfi en þyrfti að starfa með öðru fólki en er við stjórn landsins í dag. Fleiri er nú ekki hægt að nota, svo við þyrftum að ráða nokkra góða og vandaða fulltrúa í hinar ráðherra stöðurnar, fólk sem kann að vinna.
Nú er bara spurning hvernig við komum þessu fólki frá sem í ríkisstjórn situr en svo virðist sem það ætli að halda í stólana sína sama hvað tautar og raular, spurning hvort það þarf nýja byltingu en vonandi sjá þau að þetta er gjörsamlega tapað stríð hjá þeim og allt þjóðfélagið í lamasessi og það náttúrulega gengur ekki lengur. Utanþingsstjórn hlýtur að vera niðurstaðan því það er ekki úr miklu að moða á alþingi en það er fullt af góðu fagfólki út í þjóðfélaginu sem við þurfum að virkja þegar staða sem þessi er upp komin. Alþingi ræður ekki við þetta verkefni og því verðum við að gera eitthvað annað strax, ekki er hægt að halda áfram í þessu volæði alþingismanna og ráðherra, hvar eru forystumenn fóksins í dag, standið nú upp og undirbúið mótmæli, við þurfum aðgerðir strax.
5.3.2010 | 12:53
Takið eftir, EF, kannist þið við orðið.
![]() |
Ótrúlegur samdráttur í fjárfestingum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.3.2010 | 11:39
Hvaða hrokaháttur er þetta eiginlega.
Ég held að það sé eitthvað meira en lítið að hjá Steingrími og Jóhönnu, það er ekkert búið að semja um icesave og það veit enginn hvenær eða hvort það tekst yfirleitt og auðvitað eiga allir að mæta og fella gamla samninginn það er bara okkar skilda sem lýðræðisþjóð, eru ekki stjórnleysingar kallaðir hættulegasta fólkið, fólkið sem ekki myndar sér skoðanir og hefur ekki áhrif á gang mála í þjóðfélögum, það hef ég heyrt og lesið um en kaupi það ekki dýrara en ég sel það.
Þá er komið að því á sunnudaginn að þau segja bæði af sér hjúin en það væri ekki eðlilegt ef þau sætu áfram ef búið er að fella þeirra eigin vinnubrögð. Vonandi fáum við eitthvað fólk í stólana sem getur byrjað að endurreysa landið og aðstoða illa stödd heimili.
![]() |
Steingrímur: Ólíklegt að ég kjósi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |