Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál

Aðildarumsókn dregin til baka?

Ég á nú ekki von á því að umsóknin verði dregin til baka og þær 2000 miljónir sem á að eyða í tigangslausar viðræður sparaðar til þess að hjálpa illa förnum fjölskyldum á íslandi en mikið væri það nú skynsamlegt því aðild að ESB yrði felld með ca 70 til 80% ef marka ma kannanir sem gerðar hafa verið og síðan þarf ekki annað en hlusta á fólkið í landinu það vill ekki ganga í ESB.

Hvað varðar að Jóhanna gefi ekki kost á sér í viðtöl við blaðamenn í förinni er einfaldlega það að hún og Steingrímur hafa aldrei reynt að styrkja okkar málstað útávið það er ljót staðreynd og hneykslanleg.


mbl.is Jóhanna í einkaheimsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Málið snýst ekki um hvað skilar sér frá Landsbankanum.

Jóhanna reyndu nú að fara að gera þér grein fyrir því að Icesave er krafa fólksins um sanngjarna meðferð þjóðarinnar á almannafé, það er ekki víst hvað við þurfum að greiða, um það þurfum við að finna sanngjarna lausn við breta og hollendinga. Ef Landsbankinn skilar meiru en áætlað var þá er það bara gott fyrir þjóðina ekki bara ykkur ráðherrana. Svo talar forsætisráðherra um að umsamdir vextir séu ekki háir miðað við vexti AGS, er það eitthvað skrýtið að AGS sé með háa vexti því þarna fer fyrirtæki sem er með allt á hælunum eftir að hafa skilið þjóðir eftir í holræsunum eftir að hafa rústað efnahag landanna sem þeir komu í til aðstoðar. Við skulum ekki bera okkar saman við svona ruslsjóði eins og AGS við eigum að miða við þá vexti sem eru í gangi í bretlandi og hollandi og ekkert annað kemur til greina. Ég segi enn einu sinni, reisið þið Jóhanna og Steingrímur hausinn upp af bringunni og talið röddu fólksins í landinu, það er ykkar verk og fyrir það fáið þið greitt, engan hræðsluáróður framar, takk fyrir.
mbl.is Eignir Landsbankans gætu skilað meiru en áður var talið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fagna glundroðanum og fjöldagjaldþrotunum framundan. Þurfum leiðtoga.

Hvað er fólk sem staðið hefur sig svona herfilega illa í stjórn landsins að fagna, það er einfaldlega ekkert tilefni til þess að fagna og ef talað er um að eitt ár sé síðan ógnarstjórnin tók við þá ættum við að gráta en ekki fá okkur tertu en kannski gráta þau yfir tertunni og tárin gera tertuna að einhverskonar samsulli sem ekki er gott en þá líkist hún vinnubrögðum stjórnarinnar.

Nei nú er tímabært að finna einhver utanaðkomandi aðila sem er með leiðtogahæfileika og getur staðið hnarreistur fyrir framan þjóðina og rifið hana upp úr öldurótinu, þetta er vel hægt ef réttur aðila stendur í brúnni og stjórnar skútunni í einhverja ákveðna átt en ekki láta hana reka stjórnlaust eins og verið hefur undanfarið ár. Nýjan forsætisráðherra strax sem vill vinna með okkur fólkinu, ópólítískan aðila sem hefur mikla reynsku í alþjóðamálum og rekstri, leiðtoga með bein í nefinu. Engar kosningar, bara finna foringja.


mbl.is Kaka í tilefni dagsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinnubrögð föður síns, bara dæmigert.

Þetta ætti ekki að koma nokkrum manni á óvart því Svandís Svavarsdóttir hefur ekki hundsvit á því sem hún er að gera og vinnur hart og ákveðið gegn atvinnuuppbyggingu og nýtingu orkuauðlinda okkar. Allar framkvæmdir eru stöðvaðar og síðan á bara að lifa á því að bíta gras, ekta vinstri stefna sem er ekkert annað en óstefna.

 


mbl.is Kom mjög á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Löngu tímabært að afnema vísitölukjaftæðið.

Manni lýður orðið eins og hálfvita í þessu þjóðfélagi þegar svona fréttir koma að kaupmáttur launa lækki um 3,6% síðustu 12 mánuði og síðan mun koma frétt næstu daga um hækkun verðbólgu, auðvitað hefur kaupmáttur rýrnað mörgu sinnum meira, það vitum við. Hvers konar þjóðfélag er þetta að verða, það er ekkert að gerast í landinu og allir á leið til andskotans en samt er mikil verðbólga og himinháir útvextir en mínus raunávöxtum á venjulegum verðtryggðum bankareikningum. Þetta auðvitað gengur ekki lengur að láta fara svona með okkur og láta draga okkur á asnaeyrunum og ljúga að okkur að ekkert sé hægt að gera í þessu, það er stjórnleysi í þessu annars fallega landi sem maður er farin að hugsa alvarlega að yfirgefa fyrir fullt og allt. Það er nú bara þannig að þó það sé kreppa víða þá eru vextir bara brot að því sem þeir eru hér og verðbólga einnig og því hlýtur að vera hægt að byggja upp framtíð erlendis frekar en hérna þar sem allar áætlanir breytast á einum degi og ríkið ræðst á fólk og féfléttir með eignaupptöku og ofursköttum eins og hefur gerst reglulega undanfarna áratugi. Það er mikið órétlæti hérna því miður en því verður ekki breytt nema að taka á málinu en ég veit bara ekki hvaða fólk í stjórnkerfinu hefur þor í það, ekki er úrvalið mikið, spurning að hleypa fagmönnum að stjórn landsins og hvíla þetta uppgjafalið sem á alþingi situr?     
mbl.is Kaupmáttur launa lækkar enn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afsögn Jóhönnu væri það besta fyrir íslendinga.

Alveg er þetta ótrúlegt að forsætisráðherra íslands skuli haga sér eins og landráðamaður út um allan heim og tala á móti málstað okkar fólksins í landinu, getur hún ekki bara sætt sig við það að við erum að fara að fella þessa ömurlega Svavars samninga í þjóðaratkvæðagreiðslu og við viljum hætta þessu ESB kjaftæði og spara þær 2000 miljónir sem eiga að fara í aðildarviðræður. Við viljum aðgerðir innanlands strax á meðan fólk hrökklast ekki burt frá þessu allherjarrugli sem hér er á ferð.

Ég fer að halda það þurfi uppþot í landinu til þess að stöðva Jóhönnu og Steingrím, þetta gengur bara ekki lengur hvernig þau tala, þau eru í vinnu fyrir þjóðina og ekkert annað á að hafa forgang en fylgja eftir vilja meirihluta þjóðarinnar. Ég vil afsögn Jóhönnu og að ráðin verði forsætisráðherra á faglegum forsendum sem treystir sér til að fara okkar máli.

 

  


mbl.is Icesave skaði ekki alþjóðleg tengsl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt tekur sinn tíma.

Þetta er svo sem ekki mikil frétt að Icesave muni taka langan tíma í dómskerfinu en ef það gæti sparað þjóðinni hundruði miljarða þá er það þess virði og það er líka þess virði fyrir evrópu að fá dóm í svona máli sem enginn er sammála um hvernig á að leysa.

Nú er bara einbeita sér lengra austur eftir lánafyrirgreiðslu og fara að hugsa aðeins um fallandi fjölskyldur í landinu en nú virðist ljóst að holskefla er framundan á næstu vikum í þeim efnum því nú er venjulegt fólk sem tók ekki þátt í eyðslufylleríinu líka búið með sína peninga líka og þolir ekki meira. Því miður þá er hætt við að landflóttinn sé að aukast all verulega, það er allavega mikið að gera hjá skipafélögunum í búferlaflutningum. Nú duga ekki 20% afskriftir lengur, heldur erum við að tala um 35 til 40% flatar afskriftir á almenning.


mbl.is Icesave tæki eitt til þrjú ár fyrir dómstólum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfram talar Steingrímur okkar málstað niður.

Fólk hlýtur nú er vera búið að fá nóg af málflutningi Steingríms að hann vilji bara borga Icesave sama hvað það kostar, bara borga, borga og borga.

Nú finnst mér mál til komið að Steingrímur hætti alveg að koma fram í fjölmiðlum til þessa að veikja málstað okkar sem reyndar styrkist með hverjum deginum en að hafa fjármálaráðherra á ferðinni út um allt til þess að vinna á móti okkur gengur einfaldlega ekki upp. Stígð þú nú til hliðar Steingrímur og taktu Jóhönnu með þér td í gott frí til London í góðan vinahóp og látið fagfólk vinna að þessum málum og klára þau.


mbl.is NPR fjallar um Icesave-deiluna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott framtak Attac. Stöndum sameinaðir íslendingar.

Það er gott að Einar Már og co skuli halda þennan kynningarfund í noregi og ekki veitir af og koma okkar sjónarmiðum á framfæri eins og fólkið í landinu upplifir stöðuna, þá á ég við fólkið fyrir utan ríkisstjónina sem telst ekki með okkur þrælunum.

Ég hef orðið miklu sterkari trú á því að við eigum eftir að ná miklu betri samningum vegna þessa blessaða Icesave máls ef við stöndum þétt saman um að láta ekki kúga okkur, við höfum rétt í þessu máli og eigum því að sækja hann. Svo væri það auðvitað bara draumur ef við gætum losað okkur við AGS því það fyrirbæri hefur aldrei gert nokkuð sem sæmandi þykir fyrir nokkra þjóð sem lent hefur í sambærilegum efiðleikum en til þess þurfum við lánasamninga við norðurlönd, kínverja, rússa eða bandaríkjamenn og það sem allra fyrst. 


mbl.is Attac til opins fundar í Ósló
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á að taka allar innistæður út úr Landsbankanum?

Það eru alltaf að koma fram nýjar upplýsingar um að Landsbankinn sé í raun að verða aftur eins og hann var undir stjórn Björgúlfanna. Það er farið að reka stór fyrirtæki á kostnað skattgreiðenda og virðist ekki hlustað á þá aðila sem vilja kaupa yfirtekin fyrirtæki eins og td Húsasmiðjuna en erlent fyrirtæki vildi skoða kaup á henni en ekki var hlustað á það og nú er búið að skipta þar um forstjóra og búið að koma þar fyrir manni sem er sjálfsagt vinur einhvers sem fer með stjórn Landsbankans. Það var vitað að þetta gæti gerst að einkavinavæðingin næði tökum sem hún hefur nú gert og smákóngaveldið stækkar hratt. Þar sem stjórnmálamenn styðja þessa þróun og gera ekkert til þess að stöðva hana er bara eins leið sem er því miður sú að landsmenn taki sig saman og færi allar innistæður sínar yfir í aðra bankastofnun þá er búið að stöðva Landsbankann og þá þróun sem er í gangi þar.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband