Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál

Bara jákvætt, loksins.

Þetta er það besta sem maður hefur lesið í yfir ár og það er frábært.

Það væri nú gaman að sjá ríkisstjórnina gera eitthvað svipað.


mbl.is Framkvæmdir við einkasjúkrahús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sýnið hnefana samningarnefnd, Landsbankann eða ekki neitt?

Það er magnað að við skulum vera komin allt í einu í þessa stöðu að geta beinlínis ógnað viðsemjendum með lýðræðislegri kosningu, það er merkileg staða. Ég er á því að þetta mál væri farsælast að leysa með því að afhenda eignir Landsbankans til breta og hollendinga og ljúka málinu þar með, ef það tækist erum við laus við þá óvissu hvað fæst úr þrótabúinu. Þetta eru kannski drómórar en mikið rosalega yrði það gott ef væri hægt að ljúka þessu máli alfarið þannig að íslendingar stæðu eftir stoltir með sitt framlag á móti ríkisstjórn Íslands. Get eiginlega ekki skrifað meira í bili er hálf óglatt eftir að hafa heyrt Jóhönnu fagna því brosandi að við séum að fara í aðildarviðræður við ESB, alveg ótrúlegt að nokkrar manneskjur skuli fagna þessu með allt niður um sig annarstaðar.


mbl.is Bjartsýni um árangur í viðræðunum ytra um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sannur sjálfum sér hann Gylfi.

Hann ætlar seint að skilja blessaður karlinn hann Gylfi að ef eitthvað af viti væri búið að gera fyrir almenning þá væri ekki svona mikil gremja og reyði í þjóðfélaginu vegna afskrifta fyrirtækja, það vissu allir að það yrði að afskrifa fullt af skuldum fyrirtækja en almenningur vissi líka að það þyrfti að afskrifa hluta af þeirra skuldum. Það var bara byrjað á vitlausum enda og þá verða sökudólgarnir sem er ríksistjórnin að taka það á sig en það er líka í lagi að viðurkenna einfaldlega mistök og tala til þjóðarinnar að úr þeim verði bætt og það strax en nú er verið að tala um allavega 35% almennar afskriftir þar sem höfuðstóll lána hefur hækkað gríðarlega á þessu ári aðgerðarleysis síðan stjórnin tók við.
mbl.is Vinnan aldrei unnin þannig að öllum líki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB vantar fisk og orku, Ísland tilvalið skotmark.

Jæja það er komið að því að ausa peningum í þessar tilgangslausu viðræður og kerlingin getur sofið betur því það er hægt að fara að eyða þessum 200 miljónum sem ríkisstjórnin á aukalega undir koddanum í viðræður sem munu kannski skila því að okkur verður boðin aðild en við munum fella í kosningum. Svona er ísland í dag.
mbl.is Munu mæla með aðildarviðræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarna er það staðfest, stjórnin er að hrekja fólk í burt.

Það vill nú svo til að ég var að blogga um Grikkina blessaða og fór þar inn á nokkur grundvallaratriði fyrir okkur íslendinga og þar tók ég fram að íslendingum ætti eftir að fækka en reyndar átti ég ekki von á svona hröðum landflótta en nú er hann staðreynd og að öllum líkindum aðeins og byrja. Þetta er það sem allir hafa óttast, íslendingar hafa gefist upp á aðgerðarleysinu og einfaldlega flytja úr landi, hvers vegna ekki, hér er ekki rassgat að gerast nema að það er verið að aðstoða fjármálastofnanir og fjárglæframenn. Þetta er eðlileg þróun sem á eftir að stórskaða þjóðina ofan á allt annað.

Munið hvað Færeyingar sögðu við okkur eftir hrunið, (varið ykkur á einu, missið ekki fólkið úr landi, það var það dýrasta sem við urðum fyrir í síðustu kreppu okkar, misstum menntað fólk sem ekki kom aftur).

Ríkisstjórn íslands hefur mistekist á öllum sviðum endurreisnar landsins og nú verður hún að segja af sér og þjóðstjórn verður að taka hér völd og ef þjóðstjórn getur ekki komið sér saman um ráðherrastólana frægu, þá verður að ráða faglega í þá stóla.


mbl.is Mestu búferlaflutningar Íslandssögunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland í ESB, svo fáránleg hugmynd.

Þetta er það sem Jóhanna og co vilja endilega gera til þess að bjarga íslandi, ganga í ESB til þess að láta koma svona fram við okkur eins og er gert gagnvart Grikkjum þessa dagana.

ESB er bara nýtt AGS dæmi sem við eigum ekkert erindi inn í.

Lokið nú augunum Samfylkingar og VG (já VG styður aðildarumsókn) og losið ykkur við stjörnurnar úr augunum og lýtið á veruleikann eins og hann er og vinnið samkvæmt því með okkar eigin úrræðum og ef þessi stjórn á engin úrræði verður að fá fagmenn til þess að taka við stjórninni, þetta er ekki flókið mál.

Veruleikinn er þessi:

Eftir nokkrara vikur verða fjármálastofnanir og Íbúðalánasjóður búin að setja hundruði fjölskyldna í gjaldþrot til viðbótar og það mun kosta þjóðina mikið fé. þetta vita allir.

Eftir 3 vikur erum við íslendingar að fara að kolfella Icesave samningana með mestu einingarkosningu allra tíma en ég giska á að 80% muni fella samningana enda eru þetta ekki boðlegir samningar.

Eftir nokkra mánuði, segjum bara 3 mánuði mun íslendingum hafa fækkað um allavega 250 manns miðað við búslóðaflutninga skipafélaganna og ekki hafa margir áhuga á því að koma heim.

Þetta eru bara nokkrar staðreyndir sem gott er að hafa í huga. 


mbl.is Evruríki skipa Grikkjum fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru þetta virkilega ráðherrar á launum hjá okkur?

Það er sama tuggan með þessa ríkisstjórn, Gylfi ver fjármálafyrirtækin sem hann hefur hjálpað svo myndarlega með starfsbróður sínum Steingrími, er nú ekki í lagi að nokkur fjármálafyritæki fari með landanum á hausinn.

Jóhanna hefur ekki tíma til þess að sinna fólkinu í landinu vegna dag og næturdrauma um að sækja um ESB aðild.

Steingrímur er fúll vegna þess að íslenskur almenningur vill ekki borga eins rosalega mikið og hann endilega vill gera í Icesave ruglinu.

Svandís gengur alveg prýðilega að stöðva öll stærri verkefni í landinu og sjá til þess að halda uppi atvinnuleysi.

Árni féló er bara í sandkassanum að leika sér en skilur kannski þegar hann verður stór að fólk er í mjög alvarlegum vandræðum hér á landi.

Jón Bjarna stefnir ákveðið á að koma sjávarútveginum í stórfelld vandræði og gjaldþrot í stað þess að endurskoða kerfið marvisst á faglegan hátt.

Svona má lengi telja og engin spurning að mínu mati að meiri glundroða og óstjórn hef ég ekki séð á alþingi íslands, þá er ég að tala um almenna stjórnun ekki gleymsku á eftirlitsþætti aþingis. Ég rak augun í skoðanakönnun á Vísi.is þar sem spurt er hvort þú teljir að íslenskir stjórnmálamenn sé spilltir upp til hópa en 83,6? svara spurningunni já. Er það ekki bara reyndin?


mbl.is Væntir mála gegn bönkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Atvinnulífið í heild lagt í einelti af ríkisstjórn.

Þið eigið alla mína samúð hjá HSS og er þetta alveg gjörsamlega óskyljanlegt mál að ekki megi leiga út þessar skurðstofur og skapa ríkinu tekjur en það virðist bara alls ekki vera upp á borðina hjá stjórnvöldum að skapa tekjur í ríkissjóð nema í formi skatta, þetta kalla ég að leggja atvinnulífið og fólkið í landinu í einelti. Eins og ég hef margoft bloggað um áður þá verður að byggja upp atvinnulífið og nýta þau tækifæri sem felast í auðæfum landsins og stöðu krónunnar, það er fullt að tækifærum sem fólk úr atvinnulífinu er að benda á fyrir daufum eyrum ríkisstjórnar, það eru tildæmis útflutningsmöguleikar, ferðaþjónusta sem ætti að efla gríðarlega með aðkomu ríkisins, varast óbeinar skattahækkanir eins og á bensín, áfengi og aðra neysluvöru, alls ekki hækka tekjuskatta o.s.f.v. tekjurnar til ríkisins eiga að koma frá atvinnulífinu ekki úr vasa fólksins nema í gegn um neyslu þess, vsk og þannig skatta sem eru nú fyrir en vöru því miður hækkaðir og neysla heldur áfram að dragast saman, atvinnuleysi eykst og tekjur ríkisins dragast saman.

Ég heyrði í fréttum í gær að lítil saumastofa á Akureyri þar sem er vitlaust að gera væri að leggja niður reksturinn og hvers vegna, það eru orðnir svo háir skattar á reksturinn að eigendurnir treysta sér ekki lengur að reka þessa saumastofu, segir þetta ekki þó nokkuð um það sem er að gerast?

Þetta eru bara staðreyndir sem allir vita, þetta sama var reynt í síðustu vinstri stjórn og það skilaði engu og því að fara sömu leið í dag? Það hlýtur bara að vera heimska.


mbl.is Reksturinn ríkinu ofviða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sendum Buchheit einan út til samninga ásamt fagmönnum.

Mikið er gott að vera búin að semja við sérfræðing að semja um Icesave ef til samninga kemur en mér er ekki sama að það séu íslenskir stjórnmálamenn í nefndinni þeir geta ekki annað en talað af sér og klúðrar málum, það segir sagan okkur. Setjum saman nefnd sem er skipuð af okkar færustu lögfræðingum og enga íslenska pólítík í málið. Tek undir það sjónarmið að afhenda eignir Landsbankans til breta og hollendinga og búið mál í eitt skipti fyrir öll.


mbl.is Buchheit leiðir samninganefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætli einhver ráðherrann stöðvi ekki stækkunina.

Mér finnst mjög ánægjulegt að sjá að fyrirtæki vilja fjárfesta hér og byggja upp atvinnu en því miður þá virðist ríkisstjórnin alls ekki á því að hérna verði byggt upp atvinnulíf á nýjan leik því allt hefur verið brotið niður að undanförnu sem hefði getað skapað okkur atvinnutækifæri. Því miður ESB leikurinn tekur allan tíma.
mbl.is 50 ný störf hjá Actavis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband