Eru þetta virkilega ráðherrar á launum hjá okkur?

Það er sama tuggan með þessa ríkisstjórn, Gylfi ver fjármálafyrirtækin sem hann hefur hjálpað svo myndarlega með starfsbróður sínum Steingrími, er nú ekki í lagi að nokkur fjármálafyritæki fari með landanum á hausinn.

Jóhanna hefur ekki tíma til þess að sinna fólkinu í landinu vegna dag og næturdrauma um að sækja um ESB aðild.

Steingrímur er fúll vegna þess að íslenskur almenningur vill ekki borga eins rosalega mikið og hann endilega vill gera í Icesave ruglinu.

Svandís gengur alveg prýðilega að stöðva öll stærri verkefni í landinu og sjá til þess að halda uppi atvinnuleysi.

Árni féló er bara í sandkassanum að leika sér en skilur kannski þegar hann verður stór að fólk er í mjög alvarlegum vandræðum hér á landi.

Jón Bjarna stefnir ákveðið á að koma sjávarútveginum í stórfelld vandræði og gjaldþrot í stað þess að endurskoða kerfið marvisst á faglegan hátt.

Svona má lengi telja og engin spurning að mínu mati að meiri glundroða og óstjórn hef ég ekki séð á alþingi íslands, þá er ég að tala um almenna stjórnun ekki gleymsku á eftirlitsþætti aþingis. Ég rak augun í skoðanakönnun á Vísi.is þar sem spurt er hvort þú teljir að íslenskir stjórnmálamenn sé spilltir upp til hópa en 83,6? svara spurningunni já. Er það ekki bara reyndin?


mbl.is Væntir mála gegn bönkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, þetta er Ísland í dag, besta land í heimi

Atlinn (IP-tala skráð) 15.2.2010 kl. 09:20

2 identicon

Orð að sönnu. Á meðan þetta fólk gerir lítið sem ekkert er mjög mikilvægt að við kjósum sem fyrst í Iceslave málinu og sýnum þar með í verki að við höfum fengið nóg af ömurlegri hagstjórn og spillingu. Völdin til þjóðarinnar í eitt skipti fyrir öll!!!

Svavar Friðriksson (IP-tala skráð) 15.2.2010 kl. 09:23

3 identicon

Er Gylfi nokkuð að verja þá. Sýnist hann vera að segja að bankarnir ættu von á málsóknum ef þessi dómur fellur Lýsingu í óhag. Ennfremur segir hann að bankarnir hefðu þá bolmagn til aða takast á við það? Ég er nú sáttari með faglegan ráðherra heldur en dýralækninn og flugfreyjuna..

Friðrik Unnar (IP-tala skráð) 15.2.2010 kl. 10:00

4 identicon

Sammála, þessar esb hórur eru ekkert annað en útlendingar og eiga ekki að vera við stjórnvöl á þingi.

Gunnar Svanberg Jónsson (IP-tala skráð) 15.2.2010 kl. 11:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband