Færsluflokkur: Bloggar
Hagnaður af rekstri RÚV | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.4.2011 | 13:32
Sjávarútvegsmálin á hilluna að svo stöddu og ná samningum strax.
Það er aumingjaríkisstjórn að verki hér á landi og hefur hún aumingjast áfram í tómri blindni í tvö ár og erum við með sama atvinnuleysi og þegar þessi stjórn tók við og enga atvinnustefnu, okurskatta, og hækkanir á öllum vígstöðum nema á bótum og launum almennings.
Þetta blessaða sjávarútvegsmál má bíða í eitt til tvö ár til þess að það sé hægt að fara leiðrétta kaupmátt fólks og fara að skapa atvinnu, það gerum við ekki með því að taka einhliða ákvarðanir varðandi okkur stæðstu útflutningsgrein. Ef þessi stjórn ætlar að láta gæluverkefni sín ganga enn einu sinni fyrir fólkinu í landinu þá má hún biðja fyrir sér ef hún fær landsmenn á austurvöll í verkfalli, það yrði styrjaldarástand sem stjórnin myndi aldrei standa af sér.
Lokatilraun í dag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ég er ánægður að sterk öfl innan VG skuli vilja fara varlega í breytingar á kvótakerfinu, auðvitað á að fara varlega enda skiptir engu máli hvort breytingar fari í gegn strax eða ári síðar í svona risamáli.
Nú á Jóhanna að gefa eftir og setjast niður með LÍÚ og ræða málin og komast að niðurstöðu til bráðabyrgða svo hægt sé að ganga frá kjarasamningum til almennings. Síðan eiga að halda áfram viðræður um málin og finna alla galla og kosti breytinganna og niðurstaðan verði tekin samkvæmt því. Það er eins mesta fásinna sem ég heyrt á ævi minni að það sé verið að hugsa um þjóðaratkvæagreiðslu um kvótamálin, þvílíkt rugl. Hvað ætli séu mörg prósent þjóðarinnar sem veit á annað borð nokkuð um sjávarútveg og á hverju hann þrífst, gæti verið 5 til 10 % þjóðarinnar, á þannig mál heima hjá fólki sem veit ekkert um sjávarútvegs eða kvótamál?
Kvótakerfinu breytt í áföngum? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.4.2011 | 09:51
Kjarabætur eiga að snúast um lækkun skatta fyrst og fremst.
Kjaraviðræður eru á rangri leið og hafa verið það um nokkurra vikna skeið vegna þess að verið er að fara gömlu leiðina að hækka taxtana sem endar alltaf með hækkandi verðbólgu sem étur upp launahækkanir á undra stuttum tíma. Ætlum við aldrei að læra á því sem miður hefur farið í okkar kerfi hérna. Lækkanir skatta er það sem verður að koma upp á borðið, lækkun olíugjalds og þannig atriði og þá erum við á réttri leið ef ekki þá skal ég minna á orð mín eftir að næsta verðbólguskot hefur étið upp síðustu launahækkanir. Það hefur ekkert verið gert til breytinga á vísitöluhækkunum og því nokkuð öruggt að ég hef rétt fyrir mér.
Margir eru argir yfir SA og útvegsmönnum en hvers vegna er þessi ergja, jú hún er tilkomin vegna þess að ríkisstjórn Íslands hefur talað niður kvótakerfið í heild sinni og ekki sagt orð um kosti þess.Allir eru sammála um að kerfinu verður að breyta að einhverju leiti og til þess að ná fram breytingum verður að setjast niður og ræða málin en ekki taka einhliða ákvarðanir sem svo hafa kollsteypu á kerfinu í för með sér. Það þýðir ekki neitt að halda því fram að þetta verði í lagi með nýjum lögum heldur verður það að vera alveg á hreinu að allt verði í lagi í sjávarútvegi í nánustu framtíð. Ég skil SA að þessu leiti og mér finnst að fólk eigi að sýna þessu máli skilning en ekki vaða uppi með skít og skömm og valta yfir þokkalegt kerfi sem þarf að breyta.
Lífeyrismál, eitt stæðsta mál þessara kjarasamninga, þetta er risavaxið mál sem almenningur er kannski ekki alveg með á hreinu um hvað snýst. Það er búið að lækka lífeyriréttindi almennings frá hruni um 10 til 15% og það er búið að afskrifa um 25% séreignasjóði landsmanna frá hruni, þetta eru rosalegar upphæðir sem fólk hefur tapað. Ríkisstarfsmaðurinn hefur ekki tapað krónu eða prósenti í lífeyrisréttindum er þetta sanngjarnt og það á kostnað hins almenna borgara, nei sömu réttindi fyrir alla landsmenn eru krafa sem verður að nást í gegn í þessum samningum.
Tekjutengingar hafa aukist og bíta alveg rosalega á fólki sem minnst hefur. Steingrímur hefur einu sinni á tveimur árum sagt eitt af viti sem er að það ætti að sameina alla lífeyrissjóði og reka hérna einn sjóð fyrir alla landsmenn. Þetta sparar okkur milljarða á hverju ári í rekstrarkostnað lífeyrisjóða miðað við hvernig þessi mál standa í dag og að hafa þetta fé allt á sama stað í ríkistryggðum sjóði yrði mjög gott fyrir þjóðina. Ávöxtunarkrafa í þannig sjóði þarf ekki að vera nema 3 til 4% og allir munu fá sína peninga í ellinni.
ASÍ hvarf af vettvangi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.4.2011 | 19:46
Haldið ykkur á miðjunni og þá koma atkvæðin í þúsunda tali.
Okkur landsmönnum vantar sterkan miðjuflokk sem hugsar um almenning ásamt atvinnulífinu og því sem skiptir máli á klakanum, eyða fátækt og eyða ofurskattastefnunni. Tekjurnar koma frá atvinnulífinu, ekki satt.
Að mínu viti þá hefur Lilja skoðanir Framsóknarmanna og því merkilegt að hún skoði ekki að ganga þar inn?
Íhuga að stofna þingflokk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.4.2011 | 19:41
Ásmundur á heiður skilin að vilja ekki svíkja kjósendur lengur.
Ásmundur Einar segi af sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þarf meiri stuðning til að hjálpa fátæku fólki: Ákall til annarra þjóða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.4.2011 | 08:45
Hrokagikkurinn Þórunn varð sér til ævarnandi skammar ásamt Jóhönnu, vinnubrögð Árna Páls eru ekki viðunandi.
Mér finnst þessi ummæli Þórunnar sem þingmaður alveg fullkomlega þess eðlis að hún segi af sér sem þingmaður, því nú starfar svokölluð (norræn velferðastjórn) sem ætlar að taka á siðferði þingmanna og því á þetta engan vegin við, Þórunn segðu af þér strax.
Jóhanna, ég var að tala um siðferði Þórunnar og nú færð þú þinn skammt, LOKSINS,LOKSINS fær ríkisstjórnin vantrausttillögu, þú varst eins og smákrakki að bíða eftir að fá nammi en færð síðan í andlitið að stjórnin er veikari á eftir heldur en fyrir tillöguna. Þú hlýtur að sjá að það er ekki fólk eins og þú og þitt lið sem við viljum að sitji hér við stjórn, segðu af þér í dag með það í huga að Ögmundur tjáði þá skoðun sína að ESB málið yrði fellt í góðu samstarfi við Samfylkinguna? Til hvers að eyða milljörðum í mál sem á ekki möguleika á að verða samþykkt?
Árni Páll, Guðmundur Andri Skúlason var í viðtali áðan á Bylgjunni yfir ummæli þín á þar í gær um lög þau sem þú settir í lok desember um útreikning skulda og frágang þeirra mála. Þú sagðir sjálfur að þú værir eins og hálfviti þegar þú værir að skoða útreikninga þessara lána. Guðmundur tók undir það í morgun að þannig hljóti það að vera, enda ekki heil brú í viðtalinu við þig og ekkert hefur þokast í rétta átt í þessum útreikningum sem eru flestir rangt framkvæmdir og þarf 2 ár til viðbótar í dómsmálum til þess að fá úr þessu skorið. Akúrat það sem fólk þarf 2 ár til viðbótar. Árni, þetta eru einfaldlega ekki vinnubrögð sem eru bjóðandi íslenskri þjóð, það hefur nánast ekki eitt einasta verkefni sem þú hefur haft verið leyst vel af hendi, nú er komið nóg, segðu af þér.
Við Íslendingar getum ekki látið hrauna yfir okkur lengur og verðum því sjálf að koma þessu liði frá völdum hið fyrsta og skora ég á góðan leiðtoga að taka upp ófriðarfánann og kalla fólk út á göturnar til mótmæla.
„Farið hefur fé betra“ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.4.2011 | 14:06
Enn ein ringulreiðin, og þetta lið situr í stjórn landsins.
Árni Þór víkur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.4.2011 | 11:53
Þorskstofninn 2008 svipaður og fyrir 1808 árum :)
Stofnvísitala þorsks hækkar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)