Færsluflokkur: Bloggar

Hvað með alla sem eru á móti, tilheyra þeir ekki þjóðinni?

Maðurinn er ekki í lagi miðað við að það er fjölmörg sveitarfélög að auglýsa um þessar mundir að þessi frumvörp séu þeim hreint og beint skaðleg, það er fjöldi sérfræðinga, ASÍ, og fjöldinn alllur af almenningi sem hringir inn á útvarpsstöðvarnar sem eru mjög mikið á móti þessum vinnubrögðum. Ég hef þjóðina með mér segir Jón, hvað þá með alla sem eru opinberlega á móti þessu rugli, eru það ekki líka Íslendingar og tilheyra þeir ekki þjóðinni eða hvað, Þvílíkt rugl í kallinum.
mbl.is „Við höfum þjóðina með okkur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á meðan greiðslubyrgðin er of þung verður kreppa áfram.

Þetta er ósköp einfalt mál með öll þessi blessuðu lánamál og stökkbreytt ólögleg lán hvíla á fólki næstu áratugi því verðtryggingin mun sjá til þess að þau lækki ekki heldur hækki eins og þau eru að gera þessar vikurnar. Ísland er stjórnlaust land þar sem alsskyns óþverri er upp á borðum hjá núverandi stjórnvöldun sem vaða áfram í blindni. Kreppan verður á meðan þessi stjórn situr.
mbl.is Markmiðið að stuðla að greiðslugetu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefur ekki verið talið brýnt að landsmenn hafði greiðan aðgang að RÚV?

Þetta er allt eins og sannast nú að nefskattur er einungis skattur en ekki afnotagjald að RÚV.

Þessa stofnun verður að leggja niður hið fyrsta.


mbl.is Myndlykill ekki inni í nefskatti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ásmundur er nú stígandi Framsóknarmaður, gott hjá honum.

Mér lýst vel á Ásmund að velja flokk sem hefur tekið til í sínum herbúðum, svona allavega að mesti leiti og ég spái því að Framsóknarflokkurinn eigi eftir að verða forystuflokkur í íslenskum stjórnmálum með sama áframhaldi. Það er góð og skýr stefna hjá flokknum og hann virðist ætla að halda fast í þá stefnu sem mótuð hefur verið, hann hefur líka sýnt fram á að hans leið með 20% almenna leiðréttingu lána hefði verið farsæl leið fyrir fólkið en því miður þá tókst flokkum sem þykir vænt um fjármálastofnanir að ná völdum og því fór sem fór, hér ríkir fátækt og stöðnun.

Sigmundur Davíð er stígandi sem formaður og á eftir að verða feykilega sterkur í nánustu framtíð.


mbl.is Ásmundur Einar í Framsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Koma svo VG grænir, fjölgum álverum hið fyrsta.

Það er ekki annað hægt en að gantast svolítið með blessaða VG liðið sem hefur ekki tekist að skapa eitt starf eftir að flokkurinn komst í stjórn og allt hefur mistekist sem lagt var upp með, hvert og eitt einasta atriði. Það verður ekki vinstri stjórn á Íslandi næstu 300 árin allavega sem betur fer. Það sem er svo magnað með VG er að það komst í stjórn með ákveðnum kosningarloforðum sem hafa svo öll verið svikin og kjósendur þeirra sitja sveittir eftir og naga handabökin og hugsa, hvað hef ég gert með því að veita þeim atkvæði mitt. Svona er Ísland í dag.
mbl.is Hækkandi álverð skilar auknum tekjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn einu sinni étur verðtryggingin heimilin og rétt að byrja.

Nú erum við að fara í sama farið enn og aftur vegna vísitölunnar og áhrif kjarasamninga eiga eftir að koma beint á bakið á okkur ofan þær verðbólguhækkanir sem þegar hafa átt sér stað á árinu. Þetta sýnir okkur hvað stjórnmálamenn á íslandi eru ömurlega þröngsýnir og miklir afturhaldssinnar, þeir fara allir sömu leiðina og ekkert breytist. Gamla Ísland lifir áfram.
mbl.is Vaxandi verðbólga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fella á alla samninga, stjórnin þarf að fara áður en lengra er haldið.

Svik,svik og aftur svik, það er varla til sá maður sem stjórnin hefur ekki svikið síðan hún tók við og nú er komið á endastöð, við erum strand sem þjóð og nú þarf eitthvað róttækt að gerast sem allra fyrst.
mbl.is Brigð og svik – stjórninni slétt sama um allt samráð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvö til þrjúhundruð miljarða afskrift Landsbankans framundan, skattfé okkar.

Það er alveg morgunljós sama hvað hver segir að ef þetta eru réttar fréttir að frumvarpið sem er unnið einhliða án samráðs við sjávarútveginn, fer á þennan veg þá erum við að horfa fram á afskriftir vegna sjávarútvegsfyrirtækja upp á tvö til þrúhundruð miljarða og það í ríkisbankanum sem ætti samkvæmt því að verða gjaldþrota. Er það virkilega ætlunin að fara svona í málið, stúta sjávarútvegsmálum og einum banka í leiðinni???

Það er alltaf verið að tala um að þjóðin sé svo samstíga að þessa leið eigi að fara en það er ekki þannig hjá þeim sem ég hef rætt þessi mál við sem eru alls ótengdir sjávarútvegi, þeir myndu allir kjósa gegn þessum breitingum og aðalega einhliða vinnubrögðum ríkisstjórnar.


mbl.is Sægreifarnir ekki í sáttahug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessi orð Jóhönnu eru þvættingur og geta aldrei staðist. Varist verðtryggð lán.

Það að halda því fram að launahækkanir sem þessar sem framundan eru muni ekki hækka verðbólgu meira en 0,5% eru algjör fásinna, hefur þessi manneskja ekki verið á þingi lengst allra sem á þingi sitja og veit hún ekki að við launahækknir sem þessar muni hækka verðbólgu mjög mikið.

Jóhanna veit þetta og hún veit líka að það er verið að fara leið sem aldrei hefur virkað, aldrei, verðbólgan étur þetta upp á augabragði og væri ég ekki hissa að sjá 15 til 20% verðbólgu um næstu áramót og hvað þá, æ,æ við fórum ekki rétta leið enn eina ferðina og lánin og allt fer til....... já þið vitið hvert íslendingar góðir.

Við lærum aldrei af neinum mistökum sama hvað við brennum okkur, áratugum saman, það er verið að fara leið þar sem ríkið fær 40% í sinn vasa af hækkununum, verslunin í landinu mun þurfa að segja upp einhverju af fólki vegna hækkandi launakostnaðar og mun vöruverð hækka töluvert næstu mánuðina hjá því verður ekki komist.

Nú er ríkisstjórnin komin í þá stöðu að hafa mistekist hrappalega í að koma atvinnulífinu af stað og því þorir hún ekki að taka betur þátt í að gera kjarasamninga sem ganga út á það að hækka kaupmáttinn í gegn um skattakerfið, olíuna, vörugjöld og fl. Þess í stað á atvinnulífið að auka kostnað sinn gríðarlega og nú skulum við sjá hvernig fer. Í fréttum eigum við eftir að sjá eftirfarandi setningu "verðbólga hækkar" aftur og aftur.

Alþingismenn verða að fara læra af reynslunni en ekki veit ég hvernig í ósköpum það er hægt að kenna þeim.

Ég segi það hér og nú og ekki gleyma þvi, varist að taka verðtryggð lán.

Ég er ekkert svartsýnn á framtíð Íslands og er viss um að Ísland á eftir að verða mjög vel statt land í náinni framtíð en með þessa afturhaldsstjórn í stólunum gerist harla lítið og því nauðsynlegt að almenningur varist að taka lán við núverandi aðstæður.


mbl.is Samningar auka verðbólgu um 0,5%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki starf ASÍ að ná samningum eða hvað?

Var bara að velta fyrir mér hvers vegna þessi staða er komin upp að ASÍ neitar að semja?
mbl.is Stál í stál í viðræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband