Færsluflokkur: Bloggar

Allt á réttri leið segir stjórnin en sú er ekki raunin og við eigum eftir að sjá það svartara.

Nú er það að byrja, já byrja, að koma fram það sem maður óttaðist að fyrirtæki gæfust upp því það er ekki úr neinu að moða hér á landi lengur og það hefur gerst, hrynan er byrjuð og nú er ekkert hægt að gera því ekkert hefur verið gert til þesss að byggja undir atvinnuvegi landsins. Krónan er byrjuð að falla á nýjan leik, hver ætli ástæðan fyrir því sé?
mbl.is 170 starfsmönnum ÍAV sagt upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur ánægður, en hvernig kemur hans leið niður á fólkinu?

Já vertu bara ánægður kallinn því það eru eiginhagsmunapot sem þú ert að stríða við eða orsök siðlausrar hegðurnar, þarna á ég við að þú ert að hugsa um þín völd fyrst og fremst en almúginn má eiga sig ekki rétt? Það er nánast allt í hegðun þinni og framkvæmdum sem segir manni að þú sért að vinna á móti fólki en ekki með því og ekkert virðist geta snúið þig af villu vegar eins og tildæmis það litla augljósa atriði að ríkið þarf tekjur í gegn um atvinnulífið ef þannig hefði verið unnið frá byrjun hefði málið snúið allt öðru vísi við í dag. Nei þín ákvörðun og Jóhönnu að ráðast á fólkið og mjólka það mun seint gleymast enda er það krafa meirihluta þjóðarinnar að þið segjið af ykkur sem allra fyrst. Það er þessir frægu þremenningar sem virðast taka mannlega þáttinn framyfir valdahrokann en þér er að takast að berja niður þeirra skoðanir að mér virðist.
mbl.is Lítið samráð við hagsmunaaðila
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En Lilja mín, hvers vegna styður þú þetta??

Þú hefur yfirleitt rétt fyrir þér og hefur án vafa skoðanir fólksins en ert að láta flokksræði stjórna þér eins og kolleggum þínum Atla og Ásmundi. Ykkar útspil er að sprengja stjórnina og þá fer þessi blessaða ESB aðild sem þjóðin er alfarið á móti kannski í annan farveg. Með þessu áframhaldi verðum við komin inn í þessa klíku áður en við vitum, ef Jóhanna tildæmis tekur þá ákvörðun um að þjóðin þurfi ekki að kjósa, já það getur allt gerst í spillingunni á íslandi.
mbl.is Þjóðin klofin í fylkingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers konar flokkur er VG að verða og hver er stefna hans???

Þetta er að verða hið undarlegasta mál hvert VG stefnir og hvað fólk innan flokksins á erfitt með að fylgja sannfæringu sinni þrátt fyrir tilraunir til þess. Þetta er vinstri flokkur sem var kallaður félagshyggjuflokkur sem hann getur varla kallast lengur því öll grunnmálefni flokksins hafa verið svikin eftir síðustu kosningar og því veit fólk innann flokksins að hann mun fá mjög lítið fylgi í næstu kosningum og þar með fara völdin sem verið er að reyna að halda í um þessar mundir.

Mín skoðun er sú að ef flokkur sem gengur svona gróft að kjósendum sínum að svíkja öll sín loforð þá eigi hann að stíga til hliðar og endurskoða sín mál því VG var ekki kosið á þing tildæmis til þess að standa í aðildarviðræðum við ESB með tilheyrandi peningaaustri á meðan heimilin hrynja.


mbl.is Umræðunni ekki lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framtíð þjóðarinnar í húfi ef stjórnin situr áfram.

Ég vona bara að þetta mæta fólk sem studdi ekki fjárlagafrumvarpið haldi sínu striki og kljúfi þennan landráðaflokk og stjórnin falli, þá erum við hólpin því engin kýs þetta VG á þing næstu 100 árin allavega.
mbl.is „Þetta verður góður fundur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fólkið er ekki þjónar, heldur ræður fólkið, svo einfalt er það.

Þótt ég styðji forsetann og finnst gott að hann samþykkti ekki Icesave á sínum tíma þá hefði hann átt að sleppa þessu að kalla okkur þjóna, því þjónarnir eru fólkið á alþingi en ekki almenningur sem heldur þjóðinni á floti.
mbl.is Fátæktin er smánarblettur á þjóðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við heyrum þetta og sjáum sjálf og vitum allt um þetta vitleysingjahæli.

Það það þarf ekki fleiri orð um það.
mbl.is Segir það ábyrgð þingmanna að leiðrétta ranghermi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn er logið af okkur, hvað getur þetta gengið svona lengi?

Það er alveg hroðalegt hvað hægt er að ljúga okkur full og til hvers þarf að ljúga vegna þessa máls sem liggur morgunljóst fyrir að stjórnin er að falla og er að reyna að bjarga sér, það eru bara eðlileg viðbrögð að stjórnin reyni að halda velli og styrki sig. Nú verður að stöðva alla þessa lygi og koma hreint fram með alla hluti sem verið er að leyna okkur, það er eftir allt, fólkið sem eftir er í landinu sem öllu máli skiptir og mun sýna það á næsta ári,  það er þrátt fyrir allt það sem ræður hér á landi.
mbl.is Jóhanna blæs á framsóknarsögur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnendur með góða samvisku og sanngirni að leiðarljósi.

Já það má með sanni segja að Samherji er verðmætasta fyrirtæki okkar eyfirðinga miðað við umfang þess á svæðinu sem eru feiki mikil og mörg fyrirtæki sem hafa hag af gengi Samherja. Að Samherji skuli greiða háa bónusa á laun og háa styrki til íþróttastarfs og annarra mikilvægra hluta er ómetanlegt og eiga stjórnendur miklar þakkir fyrir að láta fólkið njóta góðrar afkomu félagsins sem ég óska heilla inn í komandi framtíð.


mbl.is Samherji gefur 75 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýsandi fyrir Steingrím sem öll loforð hefur svikið.

Það er gott að rifja aðeins upp fyrir hverju Steingrímur barðist áður en hann varð verjandi fjármagnsfyrirtækja og gaf skít í almenning. Svona er þessi maður bara og Jóhann er nákvæmlega eins.
mbl.is Lilja rifjar upp orð Steingríms um AGS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband