Færsluflokkur: Bloggar

Það er fullt af stálheiðarlegu fólki sem ekki á íbúðir sem lendir í gjaldþroti.

Mér finnst Gylfi skjóta sig í báðar lappir með svona óábyrgum ummælum, veit maðurinn ekki að það er fullt af fólki sem leigir sér húsnæði á Íslandi, sem betur fer segi ég miðað við hvernig er að eiga húsnæði á þessu landi. Gylfi vill ekki aðstoða það fólk sem ekki á húsnæði en er það óheppið að lenda í gjaldþroti með tilheyrandi óþægindum árum saman vegna meingallaðra gjaldþrotalaga. Að sjálfsögðu á sama að gilda fyrir alla varðandi fyrningarfrest skulda og það er að mínu mati mannréttindabrot að það skuli vera hægt á annað borð að viðhalda kröfum áratugum saman og hleypa fólki sem verður fyrir þessu óláni aldrei inn í eignasamfélagið aftur. Ég vona bara að þessir hugleisingjar sem á þingi sitja styðji þetta frunvarp og það verði að lögum sem allra fyrst til þess að við getum fengið þær þúsundir fólks sem er og verður gjaldþrota aftur inn í þjóðfélagið eins og venjulegt fólk það er þjóðarhagur. Gylfi, hugsaðu betur það sem þú lætur út úr þér.


mbl.is Á ekki að vera „hundahreinsun fyrir útrásarvíkinga“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það má auka tekjur Guðbjartur, bara svo þú vitir það.

Þetta er orðið alveg óþolandi að hlusta á þessa ráðherra þusa fram og aftur um stöðu ríkissjóðs og hækka um leið skatta aftur og aftur. það gengur ekkert upp hjá þessu blessaða fólki því það virðist bara ekki skilja að það er hægt að auka tekjur ríkissjóðs um fleiri miljarða á mánuði með því að koma atvinnuuppbyggingu af stað og með því að lækka vörugjöld, virðisaukaskatt, tekjuskatt, áfengisgjald og olíugjald. Þetta liggur allt fyrir svart á hvítu því í dag dregst neysla svo mikið saman vegna skattlagninga að ríkissjóður tapar og tapar tekjum.


mbl.is Tapa 250-270 milljónum á dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðstjórn gengur ekki upp, þarf utanþingsstjórn.

Þjóðstjórn gengur ekki upp þar sem Samfylking og VG ættu fulltrúa í henni og það vill engin hafa það fólk við stjórn í dag. Það þarf utanþingsstjórn fagmanna og Ragna Árnadóttir mætti gjarnan verða forsætisráðherra. 
mbl.is Mótmæla niðurskurði og vilja þjóðstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sama niðurstaða nefndar, bara álver sem er raunhæft að byggja á Húsavík.

Jæja Katrín, nú ert þú að verða komin í "eitthvað nýtt eða eitthvað annað" deildina frægu sem var stofnuð hjá Vinstri grænum þegar flokkurinn var stofnaður en eini gallinn er að Vinstri Grænir hafa leitað og leitað og leita og leitað o.s.f.v en ekkert fundið eftir öll þessi ár. Úff, hvað þetta erfitt segir VG fólk sem ekkert finnur enn og ekkert gerist í atvinnumálum þjóðarinnar.

Katrín, nú ríst þú upp úr þessu endæmisbulli og stendur við þær ákvarðandir sem teknar voru áður en þessi óstjórn tók við hérna og kemur því í gegn að álverið verði ákveðið og byggt á Húsavík. Einnig átt þú að leggja þig fram við að losa um þær hömlur sem stöðva alla atvinnuuppbyggingu í landinu, það er þitt starf sem Iðnaðarráðherra og notaðu nú þessa síðustu daga sem stjórnin á eftir að lifa og sýndu í hvað þér býr annars átt þú ekki möguleika á ráðaherrasæti næstu áratugina. Ég hef trú á að þú sért ekki svona mikil gunga eins og VG liðið.   


10 ára plan á ríkishallann og málið er dautt.

Það er alveg ótrúlegt hvað þarf að rétta ríkissjóð af á skömmum tíma, eins og himinn og jörð séu að farast, það verður að leita til annarra landa en koma að ESB eftir lántöku til lengri tíma og gera plan samkvæmt því eins og að eyða tildæmis út halla á ríkissjóði næstu 10 árin, er það ekki alveg eðlilegt eftir að við komumst í þessa stöðu að reka ríkissjóð með halla í nokkur ár? 
mbl.is Áhyggjur af stöðu velferðarkerfisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sókn er besta vörnin.

Það er bara að vona að Íslenska liðið þori að pressa aðeins á Portúgalana þó þeir séu góðir, taka þá frekar snemma á miðjunni og mata stungur inn á Heiðar og 1 -0 sigurinn verður sætur? Bjartsýnn, hver er það ekki á Íslandi í dag. 
mbl.is Byrjunarlið Íslands gegn Portúgal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uppgjafatónn stjórnarinnar er áberandi. Niðurfærið skuldir strax og segir svo af ykkur.

Það er algjör uppgjöf komin í þessa stjórn og fer það ekki á milli mála að hún er algjörlega strand í því máli sem á þjóðina hvílir. Kannski er best fyrir þau að niðurfæra skuldirnar um 18% og segja síðan af sér til þess að fara ekki frá í algjörri niðurlægingu. Það yrði þá næstu stjórnar að koma atvinnulífinu af stað og þá er björninn unninn og allt fer að rúlla upp á við á nýjan leik.

 


mbl.is Okkur hefur ekki mistekist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnin að reyna að finna eitthvað til fela sig á bak við.

Ég átti svo sem von á því að Steingrímur myndi panta einhverjar upplýsingar til þess að seinka leiðréttingu lána, það eru bara hans vinnubrögð.
mbl.is Minnihluti hefur látið fresta lokauppboðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VG þetta hefur verið svona í marga mánuði og þið eruð að vakna núna???

VG er eitthvað sem maður má alls ekki hugsa um þegar maður fer að sofa því það þýðir martröð og það sama má segja um Samfylkinguna sama óstjórnarpakkið sem veit ekki neitt í sinn haus hvað á að gera til þess að koma landinu upp úr kreppunni. Það vita það allir landsmenn í dag að þetta fólk verður að víkja og það strax, við getum bara ekki horft upp á þetta lengur.
mbl.is Stjórnvöld gangi harðar fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svandís er ekkert nema landráðakona, algjör þurs.

Það er alveg með ólíkindum hvað þessi kona getur verið þversum og hún skilur nánast ekkert á hverju við íslendingar lifum. Við erum ekki eins og margar aðrar þjóðir hvað varðar tekjumöguleika, við erum fiskveiðiþjóð út í ballarhafi sem á auðlindir sem eru vatnið og orkan sem við búum til, það eru þessi tvö atriði sem hafa komið okkur á þann stall sem við erum á í dag og hann er ekki slæmur á þetta stuttum tíma sem Ísland hefur byggst upp á. Það verða kreppur í öllum löndum og er þetta bara ein af mörgum á Íslandi, já þessi er stór í þetta skiptið en hún hefði orðið þótt VG hefði stjórnað landinu það er engin vafi. Á meðan Svandís og hennar lið getur ekki komið með eina einustu tillögu á hverju Ísland á að byggja upp tekjur er það ekkert nema landráð að halda atvinnulífunu í heljargreipum sem það svo sannarlega er að völdum Svandísar, þá verðum við að biðja um nýja stjórn án Svandísar og fara að byggja upp landið á nýjan leik.  
mbl.is Svandís svarar Samtökum atvinnulífsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband