Færsluflokkur: Bloggar

Leggja þarf VG fólk inn og rannsaka neikvæðni genin og atvinnugenin.

Mér finnst það orðin nauðsyn að rannsaka VG fólk sem situr á Alþingi og athuga hvort eitthvert genarugl er í gangi og hvort það eru tengsl á milli þessa fólks og þá er hægt að skilgreina þetta sem anti atvinnusjúkdóm. Mér heyrist að þetta fólk trúi því að það sé að gera rétt í atvinnumálum sem er alveg útilokað mál. 

Verður allt vitlaust á fimmtudaginn?

Nú er ég hræddur um að upp úr sjóði á Austurvelli á fimmtudaginn, ég spái að 40.000 manns mæti til mótmæla og ekki verði staðar numið fyrr en stjórnin fer frá.

utanthingsstjorn.is Búið að opna fyrir undirskriftir til forseta Íslands.

Jæja þá er loksins búið að opna fyrir undirskriftarlista til forsta íslands að leysa þessa stjórn frá völdum samkvæmt ákvæði úr stjórnarskrá og mynda utanþingsstjórn, var búi að heyra að því að þetta stæði til og því fangaðarefni að úr þessu varð. Nú er ekki bara þörf heldur nauðsyn að allir skrái sig enda mörg hundruð manns þegar skráðir.

Ég væri alveg til að að sjá Pál Skúlason fyrrverandi rektor spreyta sig sem forætisráðherra og Rögnu Árnadóttur sem fjármálaráðherra, fagfólk sem hefur skoðanir.


Getur Steingrímur seinkað snjóflóðum um nokkur ár??

Þetta er allt orðið svo fáránlega vitlaust að það er ekki hægt að skrifa um þessa vitleysu einu sinni.
mbl.is Fé stendur óhreyft
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn er logið af okkur og við gerum ekki neitt í málinu?

Ríkisstjórnin er stopp í öllum sínum málefnum og til hvers hún er að teigja lopann veit ég ekki en kannski er það bara valdagræðgin á ferðinni eins og hjá öllum stjórnmálamönnum landsins. Völd skipta meiru máli en fólkið í landinu.
mbl.is Niðurstaðan gerbreytir allri umræðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undirskriftarsöfnun til forseta að koma þessari stjórn frá, hvar er hún?

Það var verið að ræða það í einhverjum útvarpsþættinum í gær að sett yrði af stað undirskriftarsöfnun til forseta að koma þessari stjórn (?) frá völdum til þess að geta myndað starfhæfa stjórn í landinu. Þetta var sagt en hvar er framkvæmdin og hvar get ég skrifað undir ef einhver veit eitthvað um þetta mál?
mbl.is Nóg komið af hnútukasti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Írar að vakna við vondan draum en Íslendingar að ganga í gildru?

Það er ýmislegt komið fram að undanförnu sem mælir á móti ESB aðild eins og þessi frétt sýnir og síðan hafa margar aðrar þjóðir spáð í hvort rétt sé að ganga út úr ESB. Ýmsir sérfræðingar spá því að evran eigi eftir að hrynja og dollarinn og jenið muni halda velli, hvers vegna er þá gott að spá í evru ef spáin er nokkuð samhljóma að gjaldmiðillinn muni hrynja? Það vantar peningastefnu í þetta land í dag því hún er engin eins og er ekkert vit í öðru en að velja dollarann eftir því sem sérfræðingar segja en eitthvað verður að gera og það án valdagræðgi stjórnmálamanna, fyrst og fremst vegna fólksins sem verður að lifa við þetta ástand. 
mbl.is Ættu Írar að ganga úr ESB?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert lát á uppsögnum á meðan atvinnuleysi minnkar hjá Jóhönnu og Steingrími.

Já þetta er að takast jafnt og þétt að eyðileggja allt atvinnulíf og uppbyggingu á Íslandi, þessi stjórn er alveg ótrúlegalega lygin og óforskömmuð í framkomu sinni til fólks almennt og hún heldur í stefnu sína þrátt fyrir að sjá að hún hafi ekki gengið upp. Hvað í ósköpum á almenningur að gera í þessu ástandi? Mér lýst ekki á blikuna ef það eru 12 fjölskyldur á dag sem eru að flytja erlendis eins og stendur, það eru bara 756 fjölskyldur fram til áramóta en það gleður sennilega Steingrím og Jóhönnu því það dregur úr atvinnuleysi að þeirra mati, fleiri flytja og fleiri detta út af skránni. Það verða sennilega bara hækkaðir skattar til þess að brúa þennan fólksflótta.


mbl.is Uppsagnir hjá Símanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með þessa ríkisstjórn við völd er allt svart, svo niðurstaða Gallup er ekki óvænt.

Það er alveg borðleggjandi að það er ekki nokkur skapaður hlutur að gerast í landinu, það verður mikið atvinnuleysi í vetur, skuldir fólks verða ekki leiðréttar, það er ekkert traust til staðar til þingmanna eða ráðherra landsins og því er staðan vonlaus, því miður.

Nú er búið að gera almenning að fíflum enn einu sinni eftir að mótmælin miklu fóru fram, það hefur nákvæmlega ekkert gerst í landinu, það voru gefnar væntingar sem voru svo sviknar og nú bíða ráðamenn eftir því hvort almenningur er búin að gefast upp á því að mótmæla, það er bara þannig þeir bíða ráðherrarnir og ljúga því að það séu einhverjir reiknimeistarar að verki, bara rugl og þvæla það vita allir hvernig staðan er hérna og það þarf að leiðrétta þann þjófnað sem hefur átt sér stað og það verður að taka á því með því að draga sístækkandi ríkisbákn saman og það strax. Ég held að fólk ætti að fara að taka sig saman og finna lopapeysurnar og rölta sér svo á Austurvöll og ekki hnika sér þaðan fyrr en þessi stjórn hefur gert eitthvað eða drattast frá völdum með bakið svart af skít.


mbl.is Íslendingar verulega svartsýnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lífeyrissjóðir áfram illa reknir, í áhættu ólgu sjó.

Það er alveg sama hvað margir koma fram með hugmyndir og góðar ábendingar til lífeyrissjóða landsins en þeir láta ekki segjast og halda áfram að fjárfesta í mjög áhættusömum fyrirtækjum hvort sem er á Íslandi eða erlendis. Nú vil ég benda á að bankar eru að ávaxta sitt fé að mestu leiti hjá Seðlabankanum um þessar mundir því það er hagstæðast en ekki lífeyrissjóðirnir, nei þeir gætu hagnast á því og þess vegna gengur það ekki að ávaxta fjármagnið innanlands hjá bönkum og í ríkisskuldabréfum sem virðist vera borðleggjandi ávöxtun samkvæmt tuga viðtala við hina og þessa fræðinga í þessum málum. Kristinn Pétursson talar um hérna á bloggi sínu við þessa frétt að það þurfi að fækka lífeyrissjóðun í 2 til 3 og er ég sammála í meginmáli en vil ganga lengra og fækka í einn sjóð sem mun heita einfaldlega Lífeyrissjóður Íslendinga, sjóður sem verður rekinn með litlum tilkostnaði og sjóður þar sem mjög áfráttarlaus lög og reglur verða settur hvað varðar rekstur hans og fjárfestingastefnu. Við þurfum bara sömu stefnu og er í þýskalandi, lága og örugga ávöxtun og þá fær fólk peningana sína aftur þegar að því kemur og aldrei þarf að skerða lífeyri. Stöðvum valdabaráttuna um peningana okkar og heimtum einn lífeyrissjóð. 
mbl.is Neikvæð ávöxtun erlendra eigna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband