Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál

Allir úr fyrrverandi stjórn verði ákærðir og Samfylkingin víki úr núverandi stjórn.

Mín skoðun er sú að öll fyrrverandi stjórn verði ákærð í stað þess að velja tvo til fjóra til að ákæra, því ríkisstjórn á að vinna saman að stjórn landsins og allir eiga að bera sömu ábyrgð. Í dag er ríkisstjórn sem vinnur ekki saman heldur lætur bara landið rúlla áfram í óstjórn á meðan 40.000 heimili eru í stórfelldum vandræðum, er ekki ástæða til þess að ákæra núverandi stjórn fyrir þessi vinnubrögð?


mbl.is Ágreiningur um hve marga ætti að ákæra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það má eyða í að hirða beinagrind að hvalferlíki og koma fyrir á safni???

Ég hélt að 1 apríl hefði verið í síðustu viku þar sem komu fram í sjónvarpi Katrín Jakobsdóttir og Svandís Svarsdóttir þar sem þær sögðust hafa ákveðið að láta skafa utan að beinum hvalsins sem rak hér á land á dögunum og láta móta hana og koma fyrir á safni. Hvaða andsk.... rugl er hér í gangi á sama tíma og verið að að drepa þjóðina hægt vegna niðurskurðar á þjónustu á öllum sviðum. Hvað ætli svona aðgerð kosti margar miljónir fyrir utan að það þarf eflaust að byggja utan um þetta ferlíki og þarf það ansi marga fermetra og síðan þarf að reka húsnæðið, er komið 2007 aftur??? Þetta eru vinnubrögð sem sýna hvað er í gangi innan þessarar ríkisstjórnar, það er bullandi spilling sem aldrei fyrr, ekkert gerist í atvinnumálum, ekkert gerist í leiðréttingu lána, engar nýjar hugmyndir í tekjuöflun fyrir ríkissjóð o.s.f.v. Það er samt hægt að láta eins og síðasti hvalurinn hafi rekið hér á land og byggja yfir hann. Þjóðfélag á harðri niðurleið og ekki skrítið að okkur fækki hratt en þar er skýringin á minna atvinnuleysi, einfaldlega færra fólk í landinu.


Ríkissjónvarpið á ekki lengur rétt á sér.

Þar sem Rúv hefur gerst sekt um að sinna ekki menningarhlutverki sínu og efla og sinna vel íslenskri dagskrárgerð, hefur misst frá sér landsleiki íþróttaleikja og fleira, þá er það skoðun mín að það eigi að leggja þessa stofnun niður í núverandi mynd og að eina sem ríkið þyrfti að reka væri gamla góða gufan sem öryggisventil. Aðrar stöðvar eða sjónvarpsstöðin og Rás 2 verði seldar eða lagðar niður. Skattur sem hefur verið lagður á landsmenn vegna þessarar stofnunar er þvingun á greiðslu á dagskrá sem allt og fáir eru ánægðir með og vildi því gjarnan losna við þenna skatt og taka áskrift hjá öðrum stöðvum. Það eru mörg hundruð miljónir sem tapast hafa á Rúv undanfarin ár og því er sparnaðartækifæri þarna á ferð.
mbl.is Vill ekki skerða tekjur RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt var svo æðislegt hjá Jóhönnu á þinginu í gær, veruleikaskert lið.

Það þarf eiginlega ekki ekkert að skrifa meira því titillinn segir allt sem segja þarf, þetta fólk sem á að vera að stjórna hér ætlar sér ekki að gera það og láta þjóðina róa áfram án aðgerða og síðan koma stóru málin og þá á allt eftir að hrynja eins og spilaborg. Ég vil minna á að ég mynnti á það í bloggi mínu þegar þessi stjórn tók við að íbúðarlánasjóður yrði gjaldþrota ef ekki kæmi til leiðréttingar lána strax og hvað hefur gerst, hann er gjaldþrota.

Nú er eini ráðherra sem vann á faglegum og vönduðum nótum farin úr stjórninni og reyndar fannst mér Kistján ágætur og skemmtileg uppákoma hjá honum í lokin varðandi þotiliðið, alltaf gaman að hrissta upp í kommunum. Nei landsmenn góðir, nú lýst mér ekki á blikuna því landið verður stjórnlaust fram að næstu kosningum og nú er bara að vona að þetta lið hrökklist frá sem fyrst.


mbl.is 3,1% samdráttur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ánægjulegt að einhver skuli átta sig á spillingunni varðandi þetta mál.

Ég vil byrja á því að minnna á blogg mitt þann 20 ágúst um þetta mál, kaupin á Vestia sem eru kaup sem eru mikil áhætta og það er einmitt það sem við Íslendingar viljum ekki sjá í dag. Okkar lífeyris eru ekki fjármunir til þess að leika sér með og það þarf ekkert að ræða það nánar, eina sem við þurfum er lág ávöxtun en örugga og þá er allir í góðum málum.

Ég styð málstað Bandalags háskólamanna heilshugar og gangi þeim vel í baráttunni gegn klíkunni sem er ríkisstjórnin og lífeyrissjóðirnir. 


mbl.is Ósátt við fjárfestingar sjóðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Búið að liggja fyrir í nokkrar vikur að svona yrði þetta unnið, ESB treður sér inn.

Það eru nokkrar vikur síðan ég las góða grein um hvernig ESB ætlar að troða sér inn á íslendinga og kafgleypa þá og þar á meðal annars var talað um breitingar á reglugerðum og lögum sem yrðu að gerast hér á landi sem allra fyrst og nú er það ferli hafið, þarf ekki að koma nokkrum á óvart.

Við skulum bara gera okkur grein fyrir að Ísland hefur sótt um formlega um aðildarviðræður sem samþykki VG einnig svo að VG fólk verður bara að fylkjast saman og styðja þennan málstað og stefnu flokksins varðandi ESB, ég reikna nú með því að VG fylgi eftir því sem þeir hafa samþykkt?

Ég segi nú bara svona vegna þess að þetta mál er skrípaleikur og engin samtstaða í ríkisstjórn með þetta mál og þjóðin er einnig á móti þessum peningaaustri í ótímabæra aðildarumsókn, stöðvum ferlið strax og tökum upp dollar leggjum niður verðtryggingu lána og byggjum upp sanngjarnt velferðarþjóðfélag bæði fyrir fjármagnseigendur og almenning.


mbl.is Kominn tími til að segja stopp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Betri árangur við verðbólgu í Simbabve heldur en á Íslandi.

Já það var skynsamleg ákvörðun að taka upp dollarann í Simbabve verðbólgan dottin niður um miljónir prósenta á tveimur árum en íslendingar ætla að troða sér inn í Evrópusambandið og taka upp hnignandi evru.
mbl.is Verðbólgan í Simbabve aðeins 4,1%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott að rannsaka lífeyrissjóði og í leiðinni kaup þeirra á Vestia í dag.

Það er mjög þarft mál að rannsaka fjárfestingar lífeyrissjóða undanfarin ár og þar þarf að fara mjög vel ofan í hagsmuna og fjölskyldutengsl vegna fjárfestinga þeirra. Það rifjast alltaf upp hjá manni að Ingólfur Margeirsson var búin að vara við fjárfestingaleið þeirra í nokkur ár en engin vildi hlusta á hann en það er komið í ljós í dag að hann hafði rétt fyrir sér allan tímann, örugga ávöxtun vildi hann, þó hún væri lægri en í boði var á ákveðnu tímabili, það er trygging okkar sem eigum sjóðina og fá peningana okkar til baka þegar að því kemur en það verður ekki héðan í frá þar sem búið er að afskrifa miljarða af almannafé innan sjóðanna.

Hvað varðar kaup fjárfestingafélags lífeyrissjóðina á Vestia í dag þá finnst mér það rannsóknarefni því að mínu mati er þetta mjög vafasöm fjárfesting og ekkert nema áhættan en það er kannski hlegið að mér eins og Ingólfi á sínum tíma en það kemur í ljós síðar. Sem eitt dæmi, hvernig á að verðmeta Húsasmiðjuna þar sem mikil samkeppni er alveg á næsta leiti Bauhause er tilbúið með verslun sem þeir munu opna um leið og velta fer að aukast í þeim bransa, hvað þá? Vodafone er í bullandi samkeppni o.s.f.v. Er þetta skynsamleg fjáfesting eða er þetta skipun frá Steingrími nokkrum Sigfússyni sem er búin að klúðra öllu því sem hann á að sinna?


mbl.is Lífeyrissjóðir rannsakaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fólk er að fara, ríkisstjórnin hefur brugðist alvarlega.

Nú er það orðið ljóst að landflótti er bara að byrja því að framundan er holskefla uppboða á eignum fólks, það er allt stopp í dómi hæstarétts varðandi gengistryggð lán svo ekki er hægt að ganga frá því máli svo fólk viti hvar það stendur bæði hvað íbúðalán, bílalán, einkaleigubíla o.s.f.v en ef það mál fer þannig að almenningur fái það sem honum ber þá skiptir það miklu máli upp á framhaldið, þessi stjórn ætlar sér ekki að láta það mál fara þannig að réttlætið sigri það er ljóst.

Það er ekkert að gerast varðandi atvinnumálin og nú er tíminn að líða undir lok þar sem tímabundin störf sem ríkisstjórn bjó til að sögn Steingríms en það er ekkert annað sem tekur við svo það fólk fer á atvinnuleysisskrá aftur.

Og nú byrjar ruglið aftur um Icesave og ESB á alþingi, ráðherrar ljúga hver ofan í annan og almenning, spennandi eða hitt og heldur.   

Hvað er það sem heldur fólki á landinu næstu mánuði eins og klakanum er stjórnað í dag, já, hvað er það???      Ekki veit ég svarið.

Þetta er sorglegt hvernig er haldið á málum í þessu ríka landi sem er troðfullt að auðlindum sem eru þúsunda miljarða virði en engin sem er við stjórn landsins virðist hafa hundsvit á því hvernig á að vinna úr þeim málum, eina leiðin virðist vera að hækka skatta eins og það hafi einhverntímann skilað árangri. Við verðum að fá nýtt fólk til starfa við stjórn landsins og þar á meðal fagfólk til þess að stjórna framkvæmdaþættinum að nýta auðlindir okkar og skapa þannig tekjur inn í þjóðfélagið á nýjan leik. Við verðum að átta okkur á að við íslendingar erum ekki nema meðal stórfyrirtæki í umfangi svo að það þarf ekki hóp að fólki sem ekkert veit til þess að reyna að stjórna hér.


mbl.is Mesta fólksfækkun í 122 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ríkisstjórnin öll sem ætti að víkja.

Það eru flest allir ráðherrar búnir að klúðra einhverjum málum og því eðlilegt að stjórnin öll segi af sér strax, annan eins glundroða hefur maður ekki upplifað hér á landi fyrr.
mbl.is Mátti ekki dreifa minnisblaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband