Ólína þarf að leita lækninga við ofurskattaóráði.

Það hlýtur að vera eitthvað meira en lítið að þessari blessaðri konu, hugsar fólk aldrei út í hvaða afleiðingar skyndiákvarðanir geta haft.
mbl.is Nóg komið af vitleysunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslensku stelpurnar flottar, til hamingju.

Þær standa sig vel stelpurnar okkar á Algarve mótinu og vinna alla sína leiki og mæta bandaríkjunum í úrslitum og nú þarf RÚV að koma inn og sína þann leik til þess er RÚV.
mbl.is Ísland í úrslit á Algarve mótinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og enn er lokað klukkan 13.12.

Skrýtið að tilkynna fyrir opnum að búið sé að opna.
mbl.is Opnað fyrir skattframtöl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórlækkun skatta er lykillinn úr kreppunni.

Nú koma menn fram og eru með alls kyns yfirlýsingar á ástandi sem þeir sköpuðu sjálfir, ekki fyrri ríkisstjórnir heldur núverandi ríkisstjórn (ég á við þróun mála undanfarið eitt og hálft ár) fátækt eykst hratt, landflótti eykst hratt, gjaldþrotahryna heimila er framundan, öryrkjar svelta og svona má lengi telja.

Í dag höfum við tvær leiðir til þes að eitthvað fari að gerast í þessu landi, stórlækka skatta til þess að auka ráðstöfunarfé fólks því ekki gengur að hækka laun vegna þess að sagan segir okkur að launahækkanir hækka ávallt verðbólgu og þar með skuldir okkar. Þegar ráðstöfunarfé fólks verður meira þá skapar það atvinnu vegna meira peningastreymis og ríkið fær meira í kassann vegna aukinnar veltu í þjóðfélaginu, þetta vita allir. Hin leiðin sem þarf að fara samhliða er að setja allan okkar kraft í að koma af stað stórum verkefnum af öllum toga sem skapa þúsundir starfa, það þarf kannski að ýta umhvefisráðherra til hliðar en það margborgar sig fyrir þjóðina. Þúsundir starfa gera það að verkum að ríkissjóður verður í góðum málum innan skamms vegna tekna frá atvinnulífinu.

Ef stjórnmálamenn halda því fram að Icesave sé alltaf fyrir okkur varðandi atvinnuuppbyggingu þá verða þeir að sannfæra okkur um að segja já í kosningunni.

Að koma okkur af stað er ekki svo flókið mál, það sem til þarf er viljinn og leggja til hliðar eldgamlar stórnunaraðferðir sem hvergi í heimunum hafa virkað. Það átti að verða til nýtt Ísland, byrjum þá á því að móta nýtt Ísland. 


mbl.is Ekki nóg að hækka bæturnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þversögn Jóhönnu, sýnir hvers konar heimska er í gangi í stjórnkerfinu.

Allt aðrar aðstæður voru árið 2006 og ríkiskassinn fullur af peningum segir forsætisráðherra, skoðum þetta aðeins betur. Árið 2006 hvatti Jóhanna ríkisstjórnina að lækka álögur á eldsneyti en þá átti fólk miklu meiri peninga enn samt var þörf á að lækka álögur á þeim tíma að hennar mati. Í dag 2011 á hinn almenni borgari litla sem enga peninga og ekki er þörf á að lækka álögur, þetta rugl í forsætisráðherra sýnir glögglega hvers konar stjórnendi er hér á ferð sem hefur ekki hundsvit á því sem hún er að gera. Hún segir að það þurfi að athuga hvaða áhrif hækkanir olíu hafi og hvort fólk hefur minnkað við sig akstur, enn og aftur er hún ekki með hvað hér er að gerast, það var einmitt frétt um daginn þess efnis að umferð hefur ekki verið eins lítil til fjölda ára skyldi það vera vegna eldsneytisverðs? Þingmenn verða sennilega að stofna nefnd númer 387 í tíð þessara stjórnar til þess að komast að því hvort fólk keyrir minna eftir morðhækkanir á eldsneyti. Ég kýs færri nefndir og lækkaðar álögur á olíu.
mbl.is Aðrar aðstæður nú en 2006
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður komin 50% verðbólga eftir nokkra mánuði og allt fer í sama farið?

Nú veltir maður fyrir sér hvort sama leið verður farin og farin hefur verið undanfarna áratugi. Nú standa yfir kjarasamningar og allir vita að ef laun verða hækkuð um td 20% þá mun verðbólga hækka töluvert, þetta eru einu úrræði sem virðast vera notuð hér á landi og engin virðist hafa vit á því að það verður að fara aðrar leiðir til þess að halda eignaupptöku bólgunni niðri. Lækkun tekjuskatta er þar fyrsta skref og er nauðsynleg leið, í öðru lagi þarf að stjórna álögum ríkis á olíu hækka og lækka álögur samkvæmt heimsmarkaðsverði, lækka þarf virðisaukaskatt um allavega 1% og draga úr álögum í formi vörugjalda. Mér er ansk.sama hvað stjórnmálamenn hafa um þetta að segja það virðist nefnilega nóg vera til að peningum í ríkissjóði í kosningar og umsóknaraðildir inn í alls kyns bákn og þá erum við að tala um þúsundir miljóna. Nú er komið að því að leiðrétta kjör fólksins í landinu án þess að hér verði enn ein kollsteypan, ég hef lifað fjórar og ef þetta gerist einu sinni enn þá lætur maður sig hverfa af landinu sem hafði svo mikla möguleika, sem það hefur vissulega en lélegir stjórnmálamenn virðast ekki ráða við að stjórna því. 
mbl.is Verðbólgan eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er Steingrímur ánægður eða var hann búin að gera ráð fyrir þessum hækkunum?

Alltaf versnað ástandið hjá fjölskyldum landsins og byrgðarnar aukast og aukast en ekkert er gert til þess að létta aðeins á frá hendi stjórnvalda. Málið er að þegar bensín og olíuverð er orðið svona hrikalega hátt þá geta stjórnvöld lækkað tímabundið skattlagningu sína á þessa vöru, þau geta það og það er auðveld framkvæmd sem er öllum landsmönnum til bóta. Nei það er ekkert gert í málinu frekar en öðrum málun er snerta almenning og landið stefnir hraðbyr í algjöra stöðnun. Hvað olíuna varðar veltir maður fyrir sér hvort Steingrímur hafi vonað að verðið skildi hækka svona mikið og þetta væri allt á áætlun hjá honum, er það raunin? Maður með hans vald og hefur eitthvað í fari sínu sem heitir manngæska myndi gera eitthvað í þessu máli strax.
mbl.is Bensínskattar hafa aldrei verið jafnháir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég spái að 80% felli Icesave, stuðningur er fjarlægur möguleiki.

Það er að mínu mati alveg útilokað að íslendingar styði mál að þessu tagi, það eru engin rök fyrir því nema kannski að það sé komin uppgjöf í landann vegna málsins en það má ekki gerast, alls ekki.
mbl.is 57,7% myndu samþykkja Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mjög eðlilegt hjá Ólafi en óeðlileg viðbrögð hjá Jóhönnu og Steingrími. Fellum Icesave.

Ég vil byrja á því að þakka forsetanum fyrir að standa með landsmönnum og leyfa okkur að klára þetta icesave mál sem við tókum að okkur að kjósa um og ekki verður afgreitt nema í atkvæðagreiðslu, það er mjög eðlileg niðurstaða og finnst mér undrun Jóhönnu og Steingríms furðuleg hegðun og lítilsvirðing við lýðræðið. Málið er að alþingi hefur ekki fengið nýtt umboð frá þjóðinni til þess að taka einhliða ákvörðun um afgreiðslu þessa máls, það situr enn stjórn sem hefur ekki stjórn á neinu hér á landi og hefur þjóðina ekki með sér, það er ástæða þess að hún nær engu í gegn. Stjórn sem vinnur ekki með fólkinu er ekki góð stjórn og því langbest fyrir alla landsmenn að hún víki strax og kosið verði til alþingiskosninga um leið og Icesave málið, með því spörum við stórfé og fáum nýja stjórn og þá er hnúturinn leystur og alþingi öðlast nýtt umboð frá þjóðinni.

Fellum Icesave samninginn með 80% atkvæða, þjóðin greiðir ekki skuldir einkafyrirtækis.


mbl.is Undrast mjög ákvörðun forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers vegna er Icesave samningurinn ekki kynntur almenningi í almennri umræðu?

Það sem mér hefur alltaf fyndist mjög undarlegt í þessu hundleiðinlega Icesave máli er hræðsla ráðamann að kynna okkur almenningi í tildæmis sjónvarpsþáttum á öllum stöðvum hvað þessi samningur þýðir. Hvað er mikil áhætta af því að samþykkja hann, hverjir eru plúsarnir við samþykkt, og þarf þá álit fagmanna ekki alþingismanna. Við vitum öll hvað gerist ef við höfnum samningnum og það er akúrat ekki neitt hvorki til hins betra eða verra. Eru Bretar og Hollendingar í skýjunum að hafa náð þessum samning á borðið vegna þess að þeir bjuggust aldrei við því að við Íslendingar tækjum að okkur að græða skuldir einkafyrirtækis. Það má halda svona áfram lengi.

Það er fjölmörgum spurningum ósvarað varðandi þennan samning og við eigum fullan rétt á því að hann sé kynntur almennilega fyrir okkur á mannamáli og við eigum líka fullan rétt á því að hann fari fyrir þjóðaratkvæði aftur vegna þess að hann á annað borð fyrir þjóðaratkvæði síðast, ekkert hefur breyst varðandi þann þátt málsins.


mbl.is Icesave á hraðferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband