Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál
![]() |
Dómi um aðalskipulag áfrýjað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.10.2010 | 14:52
Árni Páll "verið er að vinna í" þetta er það eina sem sagt er en ekkert framkvæmt.
![]() |
Rótgrónum þankagangi þarf að breyta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.10.2010 | 12:53
Verðtrygginguna burt fyrst og þá er hægt að gera plön sem standast.
![]() |
Kaupleigurétt á eignir við lokasölu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.10.2010 | 12:49
Við viljum sjá aðgerðir framkvæmdar en ekki eingöngu spjall.
Ég sé kki betur en það verði að blása til alherjarmótmæla á ný því ríkisstjórnin heldur bara áfram á sömu braut aðgerðaleysis. Mér finnst eitt í umræðunni frá hendi ríkisstjórnar að mótmælin séu fyrst og fremst vegna skuldamála en hvergi er minnst á atvinnumál en þetta tvennt er samhangandi. Það þarf að vinna þetta samhliða, að koma af stað atvinnu og laga skuldastöðu heimila.
![]() |
Þetta var gott samtal |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.10.2010 | 14:38
Öll óþarfa frumvörp í skúffuna strax og byrjið á því mikilvægasta.
![]() |
Farsýsla og Vegagerð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.10.2010 | 09:29
Þá er bara eftir að hreinsa húsið að innanverðu sem er enn mikilvægara.
![]() |
Hreinsað til við Alþingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.10.2010 | 10:46
Afsögn Jóhönnu í kvöld?
Jæja, þetta er í annað sinn á stuttum tíma sem Jóhanna er í ríkisstjórn sem er mótmælt kröftulega og verður örugglega hrakin frá völdum að lokum, þetta er ekki glæsilegur ferill hjá henni blessaðri. Hún er búin að eyðileggja tvö húsnæðislánakerfi, hún er búin að sitja sem ráðherra í hrunastjórn og nú er hún búin að stuðla markvisst að fátækt og óréttlæti varðandi skuldaleiðréttingu landsmanna. Svo má ekki gleyma því að Samfylkingin er með kúkinn upp á bak varðandi atvinnumálin, ég hef orðið áhyggjur af þessu orði "atvinna" því það er deyjandi orð því enga atvinnu er að hafa þar sem Jóhannna er búin að stöðva alla uppbyggingu í landinu eða er hún kannski blásaklaus í því máli eins og hún slapp frá síðustu stjórn þar sem hún sat í miklum peninganefndum en hafði ekki hugmynd um annað en hér væri allt í blóma, það kemur nú ekki á óvart að hún geti ekki stjórnað landinu með þennan bakgrunn. Eitt sem stjórnin þarf að átta sig á er að það er hægt að stefna að því að AUKA TEKJUR með atvinnu sem gerði það að verkum að ekki þyrfti endalausan niðurskurð til velferðamála.
Mótmælafólk, gangi ykkur vel í kvöld, ég kæmi örugglega ef ég ætti heimangengt. Munum eitt, það þarf ekki að slasa neinn í mótmælum, þetta fólk inn í þinghúsinu er bara svona og getur ekkert við því gert, því miður.
![]() |
Tunnumótmæli við stefnuræðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.9.2010 | 09:58
Blóðsugurnar unnu sigur, plott á hæðsta stigi, fólk á að forða sér úr landi ef það á möguleika á.
Þarna er það komið í ljós hvernig staðið hefur verið að málum varðandi þetta mál og spillingin er komin alveg upp á borðið og nú þarf engin að efast lengur um að ísland er spilltasta land veraldar pólitískt séð og það er orðin þvílíkur óþefur að vart er líft hér enn.
Og nú tekur ekkert við ekkert nema hráskinnsleikur þessa liðs sem vill sjúga blóð alveg þar til þjóðin er gjaldþrota, ef stjórnin heldur er kannski best fyrir það fólk sem hefur möguleika á að koma sér úr landi að gera það strax því hér mun ekkert gerast og er það opinbert frá ríkisstjórn íslands að ekkert mun verða gert til þess að bjarga heimilum fólks og ekkert á að gera til þess að byggja upp atvinnu, því er lítið gagn að því að hanga hérna ef tækifæri gefst erlendis. Hugsið ykkur bara þá umræðu sem er búið að taka upp í dag að byggja þurfi upp nýtt verkamannabústaðakerfi á sama tíma og fólk er hrakið út af heimilum sínum. Ef ríkið hefði leiðrétt skuldir landsmanna strax eftir hrun hefði það kostað pening og allt í lagi með það en hvað haldið þið að kosti að byggja upp nýtt verkamannabústaðakerfi og hvað haldið þið að öll gjaldþrotin eigi eftir að kosta ríkið?
![]() |
Samfylking réð úrslitum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
![]() |
Ríkisstarfsmönnum fækkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
![]() |
Sigurplast gjaldþrota |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |