Reykjavík áfram með ömurlega aðstöðu flugfarþega næstu árin.

Já þetta kom verulega á óvart að samgöngumiðstöð skildi vera lögð af en þá verða flugfarþegar að sætta sig við þessa ömurlegu aðstöðu sem er í Reykjavík sennilega til næstu ára því ekki gerir þessi ríkisstjórn neitt í því máli og því síður borgin.

 


mbl.is Samgöngumiðstöðin rís ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Marinó er raunsær maður sem hefur sanngirni og réttlæti ofar öðru.

Það þarf ekkert að ræða þetta nánar, Marinó er maður sem er mikill stígandi í og ætti heima í nýjum flokki á alþingi.
mbl.is Vill enn flata niðurfærslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ömurleg pöntuð skýrsla frá ríkisstjórn, ekki minnst á réttlæti í henni einungis kostnað.

Þetta er eitthvað sem ég átti bara alls ekki von á að ríkisstjórn sem lítið fylgi hefur skuli voga sér að fara svona leiðir að stofna einhverja reikninefnd sem kemur svo með pantaða niðurstöðu fyrir ríkisstjórn, það er sko alveg á hreinu að réttlæti hefur hvergi komið þarna við sögu. Hvenær ætlar þetta háttsetta lið sem situr í stjórninni að átta sig á því að við Íslendingar vorum rændir og við viljum fá eitthvað til baka að þýfinu þó ekki væri nema smábrot eða 20% leiðréttingu skulda sem dekkar alls ekki allar lækkanir eigna í landinu ef út í það er farið. Ég hef orft spurt mig að því hvers vegna má ekki reka ríkissjóð með halla í nokkur ár til þess að hann geti borið það að skila hluta af þeim þjófnaði sem ríkið stelur af fólki á 10 ára fresti með óstjórn, er það eingöngu vegna ASG eða er það bara vegna þess að Steingrímur vill skila ríkissjóði réttu megin sín vegna en ekki fólksins vegna?

Einu orði sagt, nú mega mótmælin byrja og ekki hætta fyrr en þessu stjórn óréttlætis er farin frá stjórn sem var að fá 20% fylgi í síðustu könnun sem ég heyrði í dag.


mbl.is Vaxtabótahækkun árangursríkust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leggja þarf VG fólk inn og rannsaka neikvæðni genin og atvinnugenin.

Mér finnst það orðin nauðsyn að rannsaka VG fólk sem situr á Alþingi og athuga hvort eitthvert genarugl er í gangi og hvort það eru tengsl á milli þessa fólks og þá er hægt að skilgreina þetta sem anti atvinnusjúkdóm. Mér heyrist að þetta fólk trúi því að það sé að gera rétt í atvinnumálum sem er alveg útilokað mál. 

Verður allt vitlaust á fimmtudaginn?

Nú er ég hræddur um að upp úr sjóði á Austurvelli á fimmtudaginn, ég spái að 40.000 manns mæti til mótmæla og ekki verði staðar numið fyrr en stjórnin fer frá.

utanthingsstjorn.is Búið að opna fyrir undirskriftir til forseta Íslands.

Jæja þá er loksins búið að opna fyrir undirskriftarlista til forsta íslands að leysa þessa stjórn frá völdum samkvæmt ákvæði úr stjórnarskrá og mynda utanþingsstjórn, var búi að heyra að því að þetta stæði til og því fangaðarefni að úr þessu varð. Nú er ekki bara þörf heldur nauðsyn að allir skrái sig enda mörg hundruð manns þegar skráðir.

Ég væri alveg til að að sjá Pál Skúlason fyrrverandi rektor spreyta sig sem forætisráðherra og Rögnu Árnadóttur sem fjármálaráðherra, fagfólk sem hefur skoðanir.


Getur Steingrímur seinkað snjóflóðum um nokkur ár??

Þetta er allt orðið svo fáránlega vitlaust að það er ekki hægt að skrifa um þessa vitleysu einu sinni.
mbl.is Fé stendur óhreyft
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn er logið af okkur og við gerum ekki neitt í málinu?

Ríkisstjórnin er stopp í öllum sínum málefnum og til hvers hún er að teigja lopann veit ég ekki en kannski er það bara valdagræðgin á ferðinni eins og hjá öllum stjórnmálamönnum landsins. Völd skipta meiru máli en fólkið í landinu.
mbl.is Niðurstaðan gerbreytir allri umræðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undirskriftarsöfnun til forseta að koma þessari stjórn frá, hvar er hún?

Það var verið að ræða það í einhverjum útvarpsþættinum í gær að sett yrði af stað undirskriftarsöfnun til forseta að koma þessari stjórn (?) frá völdum til þess að geta myndað starfhæfa stjórn í landinu. Þetta var sagt en hvar er framkvæmdin og hvar get ég skrifað undir ef einhver veit eitthvað um þetta mál?
mbl.is Nóg komið af hnútukasti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Írar að vakna við vondan draum en Íslendingar að ganga í gildru?

Það er ýmislegt komið fram að undanförnu sem mælir á móti ESB aðild eins og þessi frétt sýnir og síðan hafa margar aðrar þjóðir spáð í hvort rétt sé að ganga út úr ESB. Ýmsir sérfræðingar spá því að evran eigi eftir að hrynja og dollarinn og jenið muni halda velli, hvers vegna er þá gott að spá í evru ef spáin er nokkuð samhljóma að gjaldmiðillinn muni hrynja? Það vantar peningastefnu í þetta land í dag því hún er engin eins og er ekkert vit í öðru en að velja dollarann eftir því sem sérfræðingar segja en eitthvað verður að gera og það án valdagræðgi stjórnmálamanna, fyrst og fremst vegna fólksins sem verður að lifa við þetta ástand. 
mbl.is Ættu Írar að ganga úr ESB?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband