Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál

Maðurinn er ekki að skilja hvað er að gerast hér á landi en samt er hann ráðherra.

Það er staðreynd að landflótti í gangi og allir sjá það, enda eru mun betri laun og velferðferðkerfi í Noregi heldur en hér og það er vitað og ekki möguleiki á að fela sig á bak við verð á olíu á Íslandi og annarstaðar eins og Steingrímur hefur gert því kjörin eru allt önnur í Noregi heldur en hér í heildina litið. Hér eigum við eftir að missa mikið af góður fólki á næstu mánuðum og það verður ekki aftur tekið nema á mörgum árum liðnum og þá þann hátt verða menn að líta málið, með alvöru en eki svörum sem eru ekki svör, við þurfum atvinnustefnu sem skapar ríkinu tekjur svo einfalt er það.

Stefna sem gengur ekki upp verður að víkja.


mbl.is „Ekki taka læknana okkar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvö mjög erfið ár framundan fyrir íslendinga.

Nú er það ljóst að stefna núverandi stjórnar hefur mistekist og tekjur eru að dragast saman sem er afleiðing minnkandi atvinnu og fólksflótta sem er bara að byrja. Útflutningstekjur hafa ekki aukist þrátt fyrir hagstætt gengi fyrir þær greinar og segir það sína sögu. Það getur orðið íslendingum mjög dýrt ef breytingar á lögum í sjávarútveg verða að veruleika vegna þess að erfitt og tímafrekt getur orðið að hnekkja lögunum þegar ný og betri stórn tekur við. Nú erum við búin að sjá hvað Steingrímur og Jóhanna eru að fara án samþykkis þjóðarinnar og því brýnt að koma þeim frá völdum sem allra fyrst. spurningin er bara hvernig? Ég spái því að hérna sé skálmöld framundan vegna tekjuleysis ríkissjóðs, þá er ég að tala um stöðnun næstu tvö ár.

Er þetta, allt á réttri leið eins og Steingrímur tuðar um.

Það er allt á leiðinni á hausinn að mínu mati en ekki á réttri leið eins og Steini er að reyna að koma í hausinn á okkur. Gjaldþrotum fjölgar, ferðaþjónusta dregst saman, verðbólga er að aukast, vextir eru trúlega að hækka o.s.f.v. Vinsamlegast segið af ykkur strax Jóhanna og co.
mbl.is Auknar líkur á vaxtahækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta var alltaf vitað mál að verðbólgan færi af stað á ný.

Jæja þá er darraðadansinn hafin á nýjan leik og íbúðalán landsmanna fara hækkandi, verðlag mun fara hækkandi, kjarasamningar með beinum launahækkunum voru stór mistök, og verða þær launahækkanir uppétnar eftir 2 mánuði, olíuverð er allt og hátt og mun draga saman tekjur ríkissjóðs vegna minnkandi ferðalaga landans, ekkert gerist í atvinnumálum. Er þetta það sem kallast stjórnun á landi? Það eina sem gerist er að það er alltaf verið að setja ný lög og frumvörp fram um að hitt og þetta sé bannað, hvers konar vitleysa er í gangi hérna?
mbl.is Spá mestu verðbólgu í 10 mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með alla sem eru á móti, tilheyra þeir ekki þjóðinni?

Maðurinn er ekki í lagi miðað við að það er fjölmörg sveitarfélög að auglýsa um þessar mundir að þessi frumvörp séu þeim hreint og beint skaðleg, það er fjöldi sérfræðinga, ASÍ, og fjöldinn alllur af almenningi sem hringir inn á útvarpsstöðvarnar sem eru mjög mikið á móti þessum vinnubrögðum. Ég hef þjóðina með mér segir Jón, hvað þá með alla sem eru opinberlega á móti þessu rugli, eru það ekki líka Íslendingar og tilheyra þeir ekki þjóðinni eða hvað, Þvílíkt rugl í kallinum.
mbl.is „Við höfum þjóðina með okkur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á meðan greiðslubyrgðin er of þung verður kreppa áfram.

Þetta er ósköp einfalt mál með öll þessi blessuðu lánamál og stökkbreytt ólögleg lán hvíla á fólki næstu áratugi því verðtryggingin mun sjá til þess að þau lækki ekki heldur hækki eins og þau eru að gera þessar vikurnar. Ísland er stjórnlaust land þar sem alsskyns óþverri er upp á borðum hjá núverandi stjórnvöldun sem vaða áfram í blindni. Kreppan verður á meðan þessi stjórn situr.
mbl.is Markmiðið að stuðla að greiðslugetu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn einu sinni étur verðtryggingin heimilin og rétt að byrja.

Nú erum við að fara í sama farið enn og aftur vegna vísitölunnar og áhrif kjarasamninga eiga eftir að koma beint á bakið á okkur ofan þær verðbólguhækkanir sem þegar hafa átt sér stað á árinu. Þetta sýnir okkur hvað stjórnmálamenn á íslandi eru ömurlega þröngsýnir og miklir afturhaldssinnar, þeir fara allir sömu leiðina og ekkert breytist. Gamla Ísland lifir áfram.
mbl.is Vaxandi verðbólga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fella á alla samninga, stjórnin þarf að fara áður en lengra er haldið.

Svik,svik og aftur svik, það er varla til sá maður sem stjórnin hefur ekki svikið síðan hún tók við og nú er komið á endastöð, við erum strand sem þjóð og nú þarf eitthvað róttækt að gerast sem allra fyrst.
mbl.is Brigð og svik – stjórninni slétt sama um allt samráð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvö til þrjúhundruð miljarða afskrift Landsbankans framundan, skattfé okkar.

Það er alveg morgunljós sama hvað hver segir að ef þetta eru réttar fréttir að frumvarpið sem er unnið einhliða án samráðs við sjávarútveginn, fer á þennan veg þá erum við að horfa fram á afskriftir vegna sjávarútvegsfyrirtækja upp á tvö til þrúhundruð miljarða og það í ríkisbankanum sem ætti samkvæmt því að verða gjaldþrota. Er það virkilega ætlunin að fara svona í málið, stúta sjávarútvegsmálum og einum banka í leiðinni???

Það er alltaf verið að tala um að þjóðin sé svo samstíga að þessa leið eigi að fara en það er ekki þannig hjá þeim sem ég hef rætt þessi mál við sem eru alls ótengdir sjávarútvegi, þeir myndu allir kjósa gegn þessum breitingum og aðalega einhliða vinnubrögðum ríkisstjórnar.


mbl.is Sægreifarnir ekki í sáttahug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessi orð Jóhönnu eru þvættingur og geta aldrei staðist. Varist verðtryggð lán.

Það að halda því fram að launahækkanir sem þessar sem framundan eru muni ekki hækka verðbólgu meira en 0,5% eru algjör fásinna, hefur þessi manneskja ekki verið á þingi lengst allra sem á þingi sitja og veit hún ekki að við launahækknir sem þessar muni hækka verðbólgu mjög mikið.

Jóhanna veit þetta og hún veit líka að það er verið að fara leið sem aldrei hefur virkað, aldrei, verðbólgan étur þetta upp á augabragði og væri ég ekki hissa að sjá 15 til 20% verðbólgu um næstu áramót og hvað þá, æ,æ við fórum ekki rétta leið enn eina ferðina og lánin og allt fer til....... já þið vitið hvert íslendingar góðir.

Við lærum aldrei af neinum mistökum sama hvað við brennum okkur, áratugum saman, það er verið að fara leið þar sem ríkið fær 40% í sinn vasa af hækkununum, verslunin í landinu mun þurfa að segja upp einhverju af fólki vegna hækkandi launakostnaðar og mun vöruverð hækka töluvert næstu mánuðina hjá því verður ekki komist.

Nú er ríkisstjórnin komin í þá stöðu að hafa mistekist hrappalega í að koma atvinnulífinu af stað og því þorir hún ekki að taka betur þátt í að gera kjarasamninga sem ganga út á það að hækka kaupmáttinn í gegn um skattakerfið, olíuna, vörugjöld og fl. Þess í stað á atvinnulífið að auka kostnað sinn gríðarlega og nú skulum við sjá hvernig fer. Í fréttum eigum við eftir að sjá eftirfarandi setningu "verðbólga hækkar" aftur og aftur.

Alþingismenn verða að fara læra af reynslunni en ekki veit ég hvernig í ósköpum það er hægt að kenna þeim.

Ég segi það hér og nú og ekki gleyma þvi, varist að taka verðtryggð lán.

Ég er ekkert svartsýnn á framtíð Íslands og er viss um að Ísland á eftir að verða mjög vel statt land í náinni framtíð en með þessa afturhaldsstjórn í stólunum gerist harla lítið og því nauðsynlegt að almenningur varist að taka lán við núverandi aðstæður.


mbl.is Samningar auka verðbólgu um 0,5%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband